Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER2022
Fylltar kalkúnabringur eru einn af þessum
réttum sem allir elska. Með því að fylla
bringurnar með alls kyns gúmmelaði er
bragðið tekið upp á næsta stig en hér má
leika sér með ólíkt bragð og áferð. Það
sem toppar þó þessa máltíð er sósan
sem Guðrún fullyrðir að sé ein sú allra
besta sem hún hefur lagað. Hún notar
góðan grunn sem hún bragðbætir síðan
eftir kúnstarinnar reglum og útkoman er
alveg hreint upp á tíu!
Rósakálsgratín
500 g rósakál
4 gulrætur
100 g beikon
3 skalottlaukar
1 msk. hveiti
3 hvítlauksrif
150 ml parmesanostur
250 ml rjómi
1 msk. dijonsinnep
1 tsk. timían
½ tsk. pipar
50 ml brauðrasp
100 ml rifinn ostur
@ Stillið ofn á 180°C.
@ Skerið rósakál í tvennt og gulrætur í 1
cm bita.
@ Gufusjóðið rósakál og gulrætur í 5-8
mín.
@ Skerið beikonið og steikið þangað til
það er orðið stökkt og leggið til hliðar á
pappír.
@ Skerið þá laukinn niður og afhýðið
hvítlaukinn, bætið lauknum á pönnuna
og steikið í 1-2 mín og bætið þá kreist-
um hvítlauk saman við.
@ Bætið hveiti, 100 ml parmesanosti
og beikoni saman við laukinn og hrærið
vel saman og bætið þá rósakálinu og
gulrótum saman við.
@ Blandið saman í skál rjóma,
dijonsinnepi, timíani og pipar og hrærið
vel saman.
@ Setjið þá allt í eldfast mót og hellið
rjómablöndunni yfir.
@ Blandið saman í aðra skál brauðraspi,
rifnum osti og 50 ml af parmesan.
@ Dreifið yfir réttinn og setjið inn í ofn og
eldið í 25-30 mín. eða þar til osturinn er
farinn að brúnast.
Það er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir sem á hér stórleik
í eldhúsinu en hún býður lesendum upp á fylltar
kalkúnabringur með ljúffengu meðlæti. Rósakál
hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og hér
galdrar Guðrún fram rósakálsgratín sem inni-
heldur meðal annars beikon og parmesanost.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Fylltar kalkúna-
bringurmeð
rósakálsgratíni
Koníaks-
sveppasósa
2-3 sveppir
20 g smjör
2 msk. koníak
½ teningur nautakraftur
200 ml rjómi
200 ml vatn
1 pk sveppasósa frá Toro
½ tsk. timían
½ tsk. pipar
salt eftir smekk
@ Skerið sveppina smátt, setjið í pott ásamt
smjöri og steikið í 2-3 mín.
@ Bætið þá koníaki saman við ásamt öllum
hinum hráefnunum.
@ Hrærið vel saman og leyfið suðunni að koma
upp.
@ Lækkið hitann í miðlungshita og leyfið að
sjóða vægt í 3-4 mín.