Morgunblaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 7
Trufflumajónes
160 g Hellmann‘s-majónes
1 rifið hvítlauksrif
2 msk. truffluolía
salt og pipar eftir smekk
@ Pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.
Roastbeef-
brauðterta
1 rúllutertubrauð (fínt)
heimagert remúlaði (sjá uppskrift hér
að neðan)
250 g nautalund (skorin í litla bita) +
þunnar sneiðar til skrauts
5 harðsoðin egg
4 msk. súrar gúrkur (saxaðar)
12 msk. steiktur laukur + meira til að
þekja hliðarnar
agúrkusneiðar og timían til skrauts
@ Affrystið rúllutertubrauðið og notið
botninn úr 15 cm smelluformi til að
gera fjóra heila brauðhringi og tvo
hálfa (samtals fimm brauðhringi).
@ Setjið næst smelluhringinn (ekki
botninn) á lítinn kökudisk og byrjið að
stafla brauðtertunni inn í hann.
@ Fyrst fer einn brauðhringur, næst vel
af remúlaði (magn er smekksatriði),
fjórðungur af niðurskorna nautakjötinu,
eitt harðsoðið egg (í sneiðum), 1 msk.
súrar gúrkur og um 3 msk. steiktur
laukur.
@ Endurtakið þrisvar og lokið síðan
tertunni með heilum brauðhring.
@ Þá má smyrja alla tertuna að utan
með örþunnu lagi af remúlaði (gott að
nota lítinn kremspaða).
@ Setjið síðan vel af steiktum lauk í
lófann og rennið lófanum upp hliðarnar
á tertunni svo þær þekist af lauk og
aðeins upp á tertuna sjálfa (svo það
komi lauk-kantur á toppnum).
@ Skreytið síðan að vild með þunnum
nautakjötssneiðum, harðsoðnu eggi,
agúrkusneiðum og timíani.
Heimagert
remúlaði
320 g Hellmann‘s-majónes
100 g sýrður rjómi
120 g dijonsinnep
40 g súrar gúrkur (smátt saxaðar)
1 tsk. karrí
salt og pipar
@ Pískið allt saman og smakkið til með
salti og pipar.
@ Geymið í kæli fram að notkun.
Alvöru sósa fyrir sælkera
Smjér