Morgunblaðið - 01.12.2022, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022
Sænskar
dásemdir
Jennifer Berg
Saffrankakameð
hvítu súkkulaði
Í Svíþjóð er afar vinsælt að nota saffran í eftirrétti og sætindi á aðventunni.
Þessi kaka er sérstaklega góð þar sem ég nota súrmjólk í uppskriftina. Ég
notaði 20 cm kökuform. Það er ekkert mál að nota stærri form ef þið viljið
en þá borgar sig að tvöfalda uppskriftina.
85 g smjör
0,5 g saffran
1 egg
1,5 dl flórsykur
1,5 dl súrmjólk
2 dl hveiti
1 tsk. vanillusykur
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
75 g hvítt súkkulaði, fínt saxað
@ Hitið ofninn í 175°C. Smyjið formið með smjöri, hveiti og brauðmylsnu.
@ Bræðið smjörið og blandið saffrani við. Þeytið eggin og flórsykurinn uns
létt og ljóst.
@ Blandið þurrefnunum saman og blandið varlega saman við eggja-
blönduna. Bætið súrmjólkinni við, því næst smjörinu og loks helmingnum
af hvíta súkkulaðinu. Blandið varlega uns deigið er mjúkt.
@ Hellið í formið og sáldrið afganginum af súkkulaðinu yfir. Bakið í miðjum
ofni í 25-30 mínútur. Stingið prjóni í kökuna til að kanna hvort hún sé
tilbúin. Takið úr ofninum og látið kólna áður en þið takið hana úr forminu.
Snjallt er að sáldra svolitlum flórsykri yfir hana.
Matreiðslugúrúinn og fyirsætan Jennifer Berg deilir hér
með lesendum tveimur dásemdaruppskriftum að eftir-
réttum sem ættu að hitta í mark á hverju heimili. Jenni-
fer býr í Stokkhólmi ásamt unnusta sínum, Skúla Jóni
Friðgeirssyni, og syni þeirra Malcolm en hún heldur úti
afar vinsælu matarbloggi þar í landi og hafa lesendur
Morgunblaðsins reglulega fengið að njóta góðs af upp-
skriftum hennar í gegnum tíðina.