Morgunblaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 35
Hassel-
back-kartöflur
4 bökunarkartöflur
50 g smjör
2 stk. hvítlauksgeirar
salt
timían
@ Kartöflurnar skolaðar og þerraðar.
@ Síðan eru skornar djúpar, þunnar
rifur í þær en passa þarf þó að
skera ekki alveg í gegnum kartöfl-
una svo að hún detti ekki í sundur.
@ Smjör, hvítlaukur og timían sett í
pott og brætt saman.
@ Kartöflunum raðað í eldfast mót
og smjörinu hellt yfir þær og ofan
í rifurnar, síðan saltað vel yfir kart-
öflurnar.
@ Bakaðar á 180°C í 60 mínútur
eða þar til þær eru bakaðar í gegn,
gott er að taka þær út 1-2 á þess-
um tíma og ausa smjöri yfir þær.
Fylltir sveppir
8 stórir sveppir
100 g rjómaostur með graslauk og lauk
25 g rifinn parmesan
½ tsk. hvítlauksduft
pipar
6 sneiðar beikon
@ Stilkarnir teknir úr sveppunum (gott er að nýta þá í sósuna) og smá olíu sáldrað
yfir þá.
@ Beikonið steikt þar til stökkt og þá skorið smátt. Rjómaosti, parmesanosti,
hvítlauksdufti, pipar og beikoni blandað saman og sveppirnir fylltir með blöndunni
og bakað í ofni á 180°C í um 15 mínútur.
Hörpuskel
hörpuskel
olía
smjör
salt
sítrónusafi
@ Hörpuskel er þídd og þerruð vel.
@ Þá er panna hituð upp með olíunni og hörpuskelin sett á heita pönnuna og
söltuð.
@ Steikt í um það bil 45 sekúndur, þá er henni snúið við og smjöri bætt á
pönnuna, hörpuskel söltuð aftur og steikt í aðrar 45 sekúndur.
@ Gott er að ausa smjörinu aðeins yfir hana meðan hún er steikt.
@ Að lokum er hún tekin af pönnunni og pínu sítrónusafi kreistur yfir.
Ávaxtasalsa
1 dl gúrka
1 dl mangó
1½ dl granatepli
½ dl rauðlaukur
½ dl steinselja
sítrónusafi
salt og pipar
@ Gúrka, mangó, rauðlaukur og steinselja skorin smátt og blandað saman
í skál með granateplinu, sítrónusafi kreistur yfir og smakkað til með salti
og pipar.
Hvítlaukssósa
2 dl majónes
2 dl sýrður rjómi
2 hvítlauksgeirar
1 tsk. ítölsk hvítlauksblanda
1 msk. hunang
1-2 tsk. sítrónusafi
salt
@ Hvítlaukurinn skorinn smátt og hrært saman við öll hin innihaldsefnin í
skál, smakkað til með salti.
@ Sósan verður betri ef hún bíður í klukkutíma fyrir notkun.
Beikon-panko-raspur
6 sneiðar beikon
70 g panko-raspur
@ Beikonsneiðar skornar smátt og steiktar á pönnu. Þegar bitarnir eru
orðnir stökkir eru þeir teknir af pönnunni en reynt að halda mestu af fitunni
eftir.
@ Þá er raspinum bætt út á pönnuna og steiktur upp úr beikonfitunni á
lágum hita þar til hann er gullinbrúnn.