Morgunblaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022
Heilsteikt nautalund og hátíðarkartöflusalat
Heilsteikt nautalund
Um 1 kg nautalund
ólífuolía og smjör til steikingar
salt, pipar og gott steikarkrydd
@ Hitið ofninn í 220°C.
@ Brúnið lundina á pönnu upp úr blöndu af olíu og smjöri stutta stund
allan hringinn.
@ Færið yfir í ofnskúffu og klárið eldun í ofninum þar til æskilegum kjarn-
hita er náð (við tökum hana yfirleitt út í 52-54°C en þetta er smekksatriði).
@ Leyfið steikinni að standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið
skerið hana í sneiðar.
@ Berið fram með kartöflusalati og trufflumajónesi (sjá uppskriftir hér að
neðan).
Hátíðarkartöflusalat
Um 800 g soðnar kartöflur (niðurskornar)
80 g Til hamingju-pekanhnetur (saxaðar)
60 g Til hamingju-graskersfræ
60 g Til hamingju-þurrkuð trönuber (söxuð)
80 g blaðlaukur (saxaður)
300 g Hellmann‘s-majónes
2 msk. dijonsinnep
2 msk. hunang
1 tsk. timían (saxað)
salt og pipar eftir smekk
@ Setjið kartöflur, pekanhnetur, graskersfræ, trönuber og blaðlauk saman
í skál.
@ Pískið majónes, sinnep og hunang saman og hellið yfir allt saman
ásamt timíani.
@ Blandið öllu varlega saman með sleikju og smakkið til með salti og
pipar.
@ Geymið í kæli fram að notkun.
Hér býður matarbloggarinn og áhrifavaldurinn Berg-
lind Hreiðarsdóttir upp á dýrindis nautalund sem hún
heilsteikir og ber fram með hátíðarkartöflusalati og
trufflumajónesi. Afganginn nýtir hún svo á snilldar-
hátt í brauðtertu sem hún býður upp á daginn eftir.
Um er að ræða undurfagra og afar bragðgóða roast-
beef-brauðtertu með heimagerðu remúlaði.