Morgunblaðið - 01.12.2022, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.12.2022, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022MORGUNBLAÐIÐ 35 Hassel- back-kartöflur 4 bökunarkartöflur 50 g smjör 2 stk. hvítlauksgeirar salt timían @ Kartöflurnar skolaðar og þerraðar. @ Síðan eru skornar djúpar, þunnar rifur í þær en passa þarf þó að skera ekki alveg í gegnum kartöfl- una svo að hún detti ekki í sundur. @ Smjör, hvítlaukur og timían sett í pott og brætt saman. @ Kartöflunum raðað í eldfast mót og smjörinu hellt yfir þær og ofan í rifurnar, síðan saltað vel yfir kart- öflurnar. @ Bakaðar á 180°C í 60 mínútur eða þar til þær eru bakaðar í gegn, gott er að taka þær út 1-2 á þess- um tíma og ausa smjöri yfir þær. Fylltir sveppir 8 stórir sveppir 100 g rjómaostur með graslauk og lauk 25 g rifinn parmesan ½ tsk. hvítlauksduft pipar 6 sneiðar beikon @ Stilkarnir teknir úr sveppunum (gott er að nýta þá í sósuna) og smá olíu sáldrað yfir þá. @ Beikonið steikt þar til stökkt og þá skorið smátt. Rjómaosti, parmesanosti, hvítlauksdufti, pipar og beikoni blandað saman og sveppirnir fylltir með blöndunni og bakað í ofni á 180°C í um 15 mínútur. Hörpuskel hörpuskel olía smjör salt sítrónusafi @ Hörpuskel er þídd og þerruð vel. @ Þá er panna hituð upp með olíunni og hörpuskelin sett á heita pönnuna og söltuð. @ Steikt í um það bil 45 sekúndur, þá er henni snúið við og smjöri bætt á pönnuna, hörpuskel söltuð aftur og steikt í aðrar 45 sekúndur. @ Gott er að ausa smjörinu aðeins yfir hana meðan hún er steikt. @ Að lokum er hún tekin af pönnunni og pínu sítrónusafi kreistur yfir. Ávaxtasalsa 1 dl gúrka 1 dl mangó 1½ dl granatepli ½ dl rauðlaukur ½ dl steinselja sítrónusafi salt og pipar @ Gúrka, mangó, rauðlaukur og steinselja skorin smátt og blandað saman í skál með granateplinu, sítrónusafi kreistur yfir og smakkað til með salti og pipar. Hvítlaukssósa 2 dl majónes 2 dl sýrður rjómi 2 hvítlauksgeirar 1 tsk. ítölsk hvítlauksblanda 1 msk. hunang 1-2 tsk. sítrónusafi salt @ Hvítlaukurinn skorinn smátt og hrært saman við öll hin innihaldsefnin í skál, smakkað til með salti. @ Sósan verður betri ef hún bíður í klukkutíma fyrir notkun. Beikon-panko-raspur 6 sneiðar beikon 70 g panko-raspur @ Beikonsneiðar skornar smátt og steiktar á pönnu. Þegar bitarnir eru orðnir stökkir eru þeir teknir af pönnunni en reynt að halda mestu af fitunni eftir. @ Þá er raspinum bætt út á pönnuna og steiktur upp úr beikonfitunni á lágum hita þar til hann er gullinbrúnn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.