Morgunblaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lúxus-wellingtonHinriks
Wellington
400 g nautalund
1 msk. Dijon-sinnep
200 g sveppir smátt skornir
1 skalottlaukur smátt skorinn
5 g steinselja smátt skorin
5 sneiðar parmaskinka
1 msk. brauðrasp
salt
pipar
olía
smjör
plastfilma
eggjarauður
1 x 20 x 20 cm smjördeig
1 x 5 x 20 cm smjördeig
@ Kryddið nautalund með salt og pipar eftir smekk, grillið eða steikið á
öllum hliðum.
@ Penslið Dijon-sinnepi á lundina og setjið í kæli í 2-3 klst.
@ Hitið pönnu með olíu og smjörklípu og steikið sveppi og skalottlauk þar
til fulleldað.
@ Bætið næst steinselju út í og smakkið til með salti og pipar.
@ Setjið filmu á borðið og leggið parmaskinku ofan á til að mynda ferkant-
að lag, jafn breitt og nautalundin.
@ Dreifið sveppa-duxelle með spaða ofan á parmaskinkuna og stráið
brauðraspi jafnt yfir.
@ Leggið nautalund í miðjuna á parmaskinkunni og rúllið upp.
@ Setjið inn í kæli í plastfilmu í 12 klst.
@ Setjið 20 x 20 smjördeigsörk á boðið og nautalundina vafða í
parmaskinku og sveppi þar í miðjuna.
@ Vefjið upp og skerið aukadeig frá.
@ Penslið vel með eggjarauðum og lokið báðum endum.
@ Penslið allt smjördeigið með eggjarauðum.
@ Skerið út smjördeigsörkina sem er 5 x 20 í munstur að eigin ósk og
leggið það yfir smjördeigið.
@ Penslið aftur með eggjarauðum.
@ Bakið við 190 gráður með blæstri og eldið upp í 43 gráða kjarnhita, látið
standa í 30 mínútur.
Það berast reglulega fregnir af því í aðdraganda hátíð-
anna að wellingtonsteikur í Sælkerabúðinni séu upp-
seldar. Við fengum því Hinrik Lárusson, sem á og rekur
Sælkerabúðina ásamt Viktori Erni Andréssyni, til að deila
með okkur þessari frægustu wellingtonuppskrift lands-
ins ásamt sínu besta meðlæti.