Morgunblaðið - 01.12.2022, Side 28

Morgunblaðið - 01.12.2022, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022 Seiðandi sætindi frá 17 sortum Sörumús Sörubotnar 200 g hakkaðar möndlur 200 g flórsykur 100 g eggjahvíta (2 stórar eggjahvítur) @ Hitið ofninn í 180 gráður. Blandið flór- sykrinum saman við möndlurnar og passið að það séu ekki kögglar í flórsykrinum. @ Stífþeytið eggjahvíturnar þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar renni úr. @ Blandið möndlunum og flórsykrinum varlega saman við með sleikju. @ Setjið deigið í sprautupoka eða notið teskeiðar og setjið á bökunarpappír. @ Hafið þær stærri en venjulegar sörur. Bakið í 12-13 mínútur. Frönsk súkkulaðimús 250 g dökkt súkkulaði (við notum Callebaut) 50 g smjör 5 egg – skiljið að rauður og hvítur 4 msk. sykur smá sjávarsalt ef vill @ Bræðið súkkulaði, smjör og salt saman í örbylgjuofni (hitað í 10-15 sek. í einu). @ Hrærið eggjarauðurnar saman við þar til vel samlagað. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við með sleikju, í tveimur skömmtum. Súkkulaði-ganache 200 g rjómi 200 g mjólkursúkkulaði eða 54% súkkulaði @ Hitið rjómann að suðu og blandið söxuðu súkkulaði saman við. @ Hrærið þangað til súkkulaðið er allt bráðnað og blandan farin að glansa fallega. @ Ef þið eigið mót til þess að láta súkkulaðimúsina stífna í í hálfkúlu er voða gaman að nota það og hella svo ganache yfir. En auðvelda aðferðin er að nota skálar. @ Brjótið sörubotna upp og setjið í botn á fallegu glasi eða skál. @ Hellið súkkulaðimúsinni yfir og látið stífna í kæliskáp í minnst tvo tíma. @ Lagið súkkulaði-ganache á meðan og setjið þunnt lag af ganache ofan á hverja og eina. Skreytið að vild. @ Einnig má fela konfekt- eða líkjörsfyllta mola í miðjunni, sé þess óskað. @ Einnig er hægt að kaupa tilbúna sörumús hjá 17 sortum. Þær Auður Ögn og Sylvía Haukdal halda um stjórnartaumana hjá 17 sortum en þær opnuðu nýverið kökubúð í Hagkaup í Smáralind auk þess að selja kökur og girnilega eftirrétti í verslunum Hagkaups. Þær eru miklir listamenn á sínu sviði og reiða hér fram afskaplega skemmti- legan eftirrétt sem smellpassar á veisluborðið. Um er að ræða þeirra út- gáfu af hinni klassísku söru en hér er það frönsk súkkulaðimús sem leik- ur stórt hlutverk og útkoman er alveg hreint geggjuð. Með sörumúsinni er svo boðið upp á ferskan jólabrönsmöns, eins og þær kalla hann, en það er ferskur eftirréttur sem á sérstaklega vel við með brönsinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.