Morgunblaðið - 01.12.2022, Side 30

Morgunblaðið - 01.12.2022, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022 Snowdonia Margverðlaunaðir Cheddar ostar frá Wales María Gomez er flinkari en flestir í að galdra fram ótrúlega magn- þrungnar uppskriftir sem geta haft meiriháttar áhrif á líf þeirra sem þær prófa. Þessi uppskrift hér er í þeim flokki en hér er á ferðinni ís sem inniheldur ekki eggjarauður og er því öruggur til neyslu fyrir ófrískar konur. Þess í stað notar hún niðursoðna mjólk eða condensed milk sem er geggjað hráefni. Bakaða hveitið ruglar svo endanlega í okkur en tryggir að uppskriftin er við allra hæfi. Útkoman er einn allra besti ís sem gerður hefur verið og ætti að taka hátíðarmáltíðina upp á næsta stig og gott betur. Snilldin við að setja ísinn í svona form er að hann verður svo fallegur og hátíðlegur. Piparmyntuísmeð ferskrimyntu og brúnkudeigsbotni Piparmyntuís 1 dós (397g) af niðursoðinni mjólk (e. condensed milk) 500 ml rjómi 30 g fersk mynta 1 dl vatn 1 msk. sykur 1 tsk. vanilludropar 1 tsk. piparmyntudropar 100 g Rapunzel-súkkulaði með karamellufyllingu 100 g Rapunzel-súkkulaði með piparmyntufyllingu Brúnkudeigsbotn 110 g mjúkt smjör 115 g sykur 100 g púðursykur 35 g kakó 2 msk. mjólk 1 tsk. vanilludropar 165 g bakað hveiti (sjá aðferð) ½ tsk. fínt borðsalt 100 g Rapunzel-súkkulaði með piparmyntufyllingu Ísinn @ Byrjið á að setja 1 dl af soðnu vatni og 1 msk. af sykri yfir 30 g af myntulaufum í skál en tínið laufin af stilknum fyrst. @ Gott er að gera þetta jafnvel kvöldið áður og láta standa í kæli yfir nótt en ekki láta liggja styttra í bleyti en 30 mínútur. @ Byrjið svo á að gera ísinn með því að þeyta rjómann. @ Blandið svo vanillu- og piparmyntudropum saman við niðursoðnu mjólkina og hrærið vel, ef þið viljið setja smá grænan matarlit er gott að setja hann einnig saman við niðursoðnu mjólkina. @ Takið þá myntuna og setjið í blandara ásamt vatninu og maukið þar til verður nánast að vökva, setjið þá í fínt sigti og þrýstið vökvanum í gegn og leyfið sem mestu af korginum að fara með gegnum sigtið og hendið svo afganginum. @ Blandið sigtaða myntuvatninu saman við niðursoðnu mjólkina og hrærið vel saman. @ Blandið þeytta rjómanum saman við niðursoðnu mjólkina í þrennu lagi og hrærið varlega á milli með sleikju þar til rjóminn og mjólkin hafa blandast vel. @ Bætið þá smátt skornu súkkulaði saman við ísblönduna og hrærið varlega saman með sleikju. @ Hellið í mót og frystið yfir nótt eða að lágmarki í átta tíma. Brúnkubotn @ Hitið ofninn á 175°C blástur og bakið hveitið í 10 mínútur á bök- unarplötu með bökunarpappír á. @ Takið hveitið svo út og kælið alveg en með því að baka hveitið er óhætt að borða deigið hrátt. @ Á meðan hveitið bakast hrærið þá saman mjúkt smjör, sykur og púðursykur í hrærivél þar til létt, ljóst og vel blandað saman. @ Bætið næst kakói út í og hrærið áfram. @ Næst eru vanilludropar og mjólk sett saman við og hrært ögn áfram. @ Hrærið saman kældu hveitinu og salti og bætið út í deigið og hrærið þar til allt er vel komið saman í klístrað deig. @ Skerið svo Rapunzel-fyllta myntusúkkulaðið niður og bætið saman við og hrærið ögn í vélinni. @ Þjappið deiginu í form sem er jafn stórt ísforminu og geymið í kæli. @ Gott er að taka brúnkudeigið út eins og 20 mínútum áður en á að setja ísinn á það svo það mýkist. @ Þegar ísinn er tilbúinn hvolfið honum þá yfir brúnkudeigið og berið fram. Jólaísinn 2022 Einn allra besti ís sem gerður hefur verið að okkar mati og það er engin önnur en María Gomez sem á heiðurinn af honum. María fékk verkefnið að búa til jólaísinn í ár og eins og henni einni er lagið náði hún að toppa sig eina ferðina enn – og geri aðrir betur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.