Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 34

Morgunblaðið - 01.12.2022, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2022 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Smjörsteiktar hreindýralundir Hreindýralundir olía smjör salt pipar hvítlaukur timian @ Lundirnar eru látnar þiðna, þær sinahreinsaðar og síðan þerraðar vel. @ Kryddaðar með salti og pipar og síðan steiktar á heitri pönnu með olíu. Eftir um það bil 1 mínútu er þeim snúið við og smjöri, hvítlauk og timian bætt út á pönnuna, steikt í 1 mínútu í viðbót. @ Allt sett í eldfast mót með smjörinu og kryddjurtunum og lundirnar kláraðar í ofni á 180°C í um það bil 5 mínútur. @ Lundirnar eru síðan látnar hvíla í 5 mínútur áður en þær eru skornar. Rjómasveppa(gráðaosta)sósa 100 g sveppir 200 g portobello-sveppir 1 hvítlauksgeiri ½ l vatn ½ l rjómi 1 msk. villikraftur 1 tsk. sveppakraftur gráðaostur (má sleppa) olía salt @ Sveppirnir skornir í sneiðar og steiktir á háum hita í olíu. @ Hvítlaukurinn skorinn smátt niður og bætt út í sveppina þegar þeir eru farnir að brúnast örlítið og þá steikt aðeins lengur. @ Vatninu er bætt út á pönnuna og látið sjóða niður um rúmlega helming. @ Þá er rjómanum bætt saman við, sveppa- og villikraftinum og gráða- ostinum ef hann er notaður. Sósan er þá aftur soðin niður við lágan hita þar til hún fer að þykkna. @ Að lokum er hún smökkuð til með salti. @ Þessi sósa krefst svolítillar þolinmæði, en er algjörlega þess virði. Villipaté Ljúffengt villipaté

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.