Víkurfréttir - 16.02.2022, Blaðsíða 11
„Þetta hefur gengið rosalega vel frá því ég byrjaði fyrir átta árum síðan og það hefur bara verið aukning
síðustu ár,“ Jóhanna Ingvarsdóttir, íþróttafræðingur og ungbarnasundkennari, sem á laugardags-
morgnum er með ungbarnasund í sundlaug Akurskóla. Ungbarnasundið nýtur mikilla vinsælda og í
dag eru fimm til sex hópar að jafnaði á námskeiðum Jóhönnu.
„Að kenna ungbarnasund er það
skemmtilegasta sem ég geri. Mér
líður aldrei eins og ég sé að fara að
mæta í vinnuna þegar ég vakna á
laugardagsmorgnum, þetta eru virki-
lega gefandi gleðistundir. Það er svo
dásamlegt andrúmsloft sem ríkir í
sundlauginni og það er svo gaman að
fá að upplifa þessar samverustundir
með foreldrum þar sem nýja barnið
er í forgrunni,“ segir Jóhanna um
ungbarnasundið.
Hvað þarf barn að vera gamalt til
að hefja ungbarnasund?
„Til þess að hefja ungbarnasund
þarf barn að vera átta vikna og hafa
náð fjögurra kílóa þyngd. Þriggja til
sex mánaða er algengasti aldur sem
börn byrja. Barnið er samt aldrei
orðið of gamalt til að byrja. Ég er
með hópa fyrir börn frá aldrinum
þriggja mánaða til fjögurra ára.“
Tilgangur og markmið með ung-
barnasundi er margþætt, m.a. að
venja barn við vatnsumhverfi og
að það upplifi vellíðan og öryggi í
vatninu. Að barnið fái útrás fyrir
hreyfiþörf og efli hreyfiþroska og
styrk. Að barnið fái örvun gegnum
snertingu, hljóð, söng, liti og sam-
skipti. Að efla tengsl milli foreldra
og barns. Að foreldrar tengist öðrum
foreldrum sem eru einnig með ung-
börn. Börnunum þykir einnig mjög
spennandi og áhugavert að hitta og
vera í samskiptum við önnur börn.
Á ungbarnasundnámskeiðinu
vekur athygli að litlu krílin eiga
auðvelt með að kafa. Af hverju geta
ungabörn kafað?
„Börn fæðast með ósjálfrátt við-
bragð sem kallast köfunarviðbragð.
Þetta viðbragð er varnarviðbragð
sem lýsir sér þannig að barn getur
lokað öndunarfærum sínum þegar
vatn kemst í snertingu við andlit og/
eða öndunarfæri þess. Þegar barn
hefur kafað reglulega verður þetta
ósjálfráða viðbragð að sjálfráðu við-
bragði. Barn getur því haldið niðri í
sér andanum þegar það fær merki
um að köfun sé að hefjast.
Þegar Jóhanna er spurð um
ástæður þess að hún fór að kenna
ungbarnasund og hvort hún væri
sjálf sundkona, þá stóð ekki á svari.
„Ég er alls ekki sundkona. Ég fór
í íþróttafræði en kem ekki úr sund-
grein. Steindór Gunnarsson, sund-
kappi, plataði mig hins vegar til að
þjálfa sund og ég heillaðist af því.
Hann lét mig ekkert vera og hringdi í
mig daglega til að fá mig til að kenna
og þjálfa sund fyrir ÍRB. Ég leiddist
svo út í að kenna sund hér við Akur-
skóla og hef kennt hér síðan 2007.
Ég hef alltaf meira og meira verið í
sundlauginni. Ég hætti þjálfun hjá
ÍRB og fór að kenna ungbarnasund
2014, þannig að Steindór er kannski
bara upphafið af þessu hjá mér að ég
endaði hér sem sundkennari, því það
var ekki það sem ég ætlaði að gera.“
Hvernig kemur svo ungbarna-
sundið hjá þér?
„Það er bara tilviljun. Ég var í fæð-
ingarorlofi með yngsta barnið mitt.
Heiðrún, sem var að kenna ung-
barnasundið áður, vildi taka pásu frá
þessu en hún hafði verið með ung-
barnasundið í sjö ár. Hún sendi á
okkur nokkrar sem vorum að kenna
sund, hvort við vildum taka við af
henni. Þetta heillaði mig og tilvalið
að bæta þessu við,“ segir Jóhanna.
Jóhanna segir að þetta sé einstak-
lega gott fyrir pabbana að taka þátt
í svona námskeiði með börnin sín,
hitta aðra pabba og deila reynslunni
með öðrum foreldrum sem eru
að gera sömu hluti. Jóhanna segir
pabbana yfirleitt endast lengi í ung-
barnasundinu. Þegar mæðurnar
eru að eiga fleiri börn, þá halda þeir
áfram með krílin í sundinu en sund-
kennsla er í boði fyrir börn upp í
fjögurra ára aldur.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
Barnið upplifi vellíðan
og öryggi í vatninu
Í rafrænni útgáfu Víkurfrétta má sjá sjónvarpsinnslag úr
Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta þar sem rætt er nánar við Jóhönnu
og einnig foreldra sem voru með krílin sín á sundnámskeiði.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Jóhanna Ingvarsdóttir, íþróttafræðingur og ungbarnasundkennari.
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 11