Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.03.2022, Side 4

Víkurfréttir - 02.03.2022, Side 4
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Þjónustuaðili fyrir: Volvo - Ford - Mazda - Peugeot Citroen - Suzuki Alhliða bílaverkstæði og dekkjaþjónusta þar sem þjónustan er í fyrirrúmi Iðjustíg 1, 260 Reykjanesbæ 421 4620 bilaverk.thoris@gmail.com facebook.com/Bílaverkstæði-Þóris Alhliða bifreiðaverkstæði sem býður einnig upp á dekkjaþjónustu ÞJÓNUSTAN Í FYRIRRÚMI Á BÍLAVERKSTÆÐI ÞÓRIS Rótarýklúbbur Keflavíkur afhenti í síðustu viku öllum grunnskólum Reykjanesbæjar þrívíddarprentara að gjöf í tilefni þess að í ár hefur Sísköpunarsprettur grunnskólanna göngu sína. Sísköpunarsprettur er verkefni sem leitt er af þeim Hauki Hilmarssyni, Brynju Stefánsdóttur og Sveinbirni Ásgrímssyni. Þau eru kennarar við Stapaskóla en þau hlutu styrk úr Nýsköpunar- og þró- unarsjóði Reykjanesbæjar skóla- árið 2021–2022 til þess að setja á laggirnar nýsköpunarkeppni grunn- skóla Reykjanesbæjar sem nú hefur fengið nafnið „Sísköpunarsprettur“ með það að markmiði að hvetja til hönnunar og sköpunar í gegnum endurvinnslu og endurnýtingu. „Sísköpunarsprettur er hugmynda- banki fyrir grunnskólakrakka í Reykjanesbæ þar sem þeir geta sent inn hugmyndir, sem ég skapa sísköpun. Við erum að leita leiða til að horfa til náttúrunnar og endur- nýta. Við erum að opna vettvang fyrir krakka til að hugstorma um hugmyndir og senda þær inn til okkar hugmyndir,“ segir Haukur Hilmarsson, kennari í hönnun og smíðum við Stapaskóla. Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar er afar ánægður með þetta framtak. „Þetta er frábært verkefni sem þau hafa frumkvæði að í Stapaskóla. Við komum að þessu með stofnun nýsköpunar- og þróunarsjóðs sem settur var á stofn fyrir tveimur árum síðan og ýtir mjög undir nýbreytni og þróunarstarf í skólum, sem er mjög gjöfult og frjótt. Sjóðurinn ýtir undir það að svona verkefni hljóta brautargengi. Við erum gríðar- lega stolt af þessu verkefni sem nú er verið að kynna,“ segir Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar. Haukur segir að verkefnið eigi að verða uppspretta hugmynda hjá ungmennunum. „Hugmyndin er að krakkar getið fundið leiðir til að endurnýta alls- konar dót, hvort sem það eru pappa- hólkar af eldhúsrúllum og ýmiskonar plastafgangar. Ég hef ekki hugmynd um hvaða hugmyndir krakkar fá en krakkar eru endalaus uppspretta frábærra hugmynda. Þetta er vett- vangur þar sem við ætlum að reyna ýta undir að krakkar geti skoðað um- hverfi sitt og finni hugmyndir sem geta haft jákvæð áhrif á umhverfið.“ „Stapaskóli mun stýra ferðinni og við hjá fræðslusviði bæjarins verðum til stuðnings. Þetta verður ekki í keppnisformi, heldur meira hátíð og hugsað þannig að allir taki þátt. Það að þetta sé í nærumhverfinu og sjálfskapað hér ýti undir þátttöku skólanna. Við höfum lengi horft til þess að krakkarnir hér taki þátt í nýsköpunarkeppni grunnskólanna á landsvísu en ég hef þá trú og vænt- ingar að við fáum góða þátttöku hjá krökkunum okkar og skólunum í þessu verkefni, þegar það er unnið svona í nærumhverfinu,“ segir Helgi. Haukur segir að vegleg gjöf Rotary komi sé vel. „Já, við erum heldur betur heppin. Rotaryklúbbur Keflavíkur er ótrú- lega gjafmildur að gefa öllum skól- unum þrívíddarprentara sem mun alveg örugglega opna enn meira fyrir sköpun þegar krakkarnir fá vöruna beint í hendurnar og gert frumgerðir í stað þess að vera bara að teikna og pæla. Við erum Rotaryklúbbnum ótrúlega þakklát fyrir þennan geggjaða stuðning. Ég vil einmitt að skólarnir eigi bara verkfærin til að grípa sköpun barnanna. Við vorum svo heppin þegar Stapaskóli opnaði að geta hoppað beint inn í 21. öldina og erum einmitt að þróa þetta, að kenna krökkum að hugsa í þrívídd og tölvutækt. Að nota spjaldtölvur og tölvur. Og síðan að geta skilað vörunni í hendur, jafnvel samdægurs. Þetta hefur gengið ótrúlega vel hér í Stapaskóla og krakkarnir eru enda- laust og teikna, pæla og alltaf að 3D-prenta. Þetta er langvinsælasta verkfærið hjá yngstu krökkunum. Þau eru steinhætt að saga og pússa, þau vilja bara 3D-prenta,“ segir Haukur. Þetta er gott dæmi um að við erum á tölvu- og tækniöld. Liggur þetta vel við ungmennunum? „Já, þetta liggur vel við krökk- unum. Þau hafa ímyndunaraflið og erum forvitin. Það er okkar hlutverk að ýta undir það og skapa umhverfi og að þau fái notið sín. Þar kemur búnaður til sögunnar en fyrst og fremst mannauðurinn. Kennararnir búa til þetta umhverfi börnin. Þá skiptir umhverfið líka höfuðmáli. Þá vil ég nefna að þetta verkefni smellpassar við nýja menntastefnu Reykjanesbæjar, sem er framsýn og um leið sígild. Áherslur í þessu verk- efni smellpassa við áherslur mennta- stefnunnar,“ segir Helgi. Grunnskólar í Reykjanesbæ hafa verið framsýnir í nýtingu á tækni í skólastarfi. Heiðarskóli ruddi brautina með innleiðingu á spjald- tölvum í kennslu og hinir skólarnir í bænum hafa fylgt í kjölfarið að vera með skólastarfið í takti við tímann og þróun í samfélaginu. Haukur segir að nemendur Stapa- skóla séu fljótir að tileinka sér alla þá tölvutækni sem beitt sé í náminu og segir að það komi á óvart hvað hóp- arnir séu alltaf að verða yngri og yngri sem tileinki sér tölvutæknina í náminu. Hann hafi haldið að ungling- arnir yrðu leiðandi, en það séu frekar yngstu nemendurnir sem sýni tölvu- tækninni mestan áhuga. Okkar leið til að örva sköp- unarhugsun hjá krökkum Rotaryklúbbur Keflavíkur afhenti í síðustu viku öllum grunnskólum Reykjanesbæjar þrívíddar- prentara að gjöf. Prenturunum er ætlað að örva sköpunarhugsun hjá nemendum skólanna núna þegar Sísköpunarsprettur er að hefjast hjá grunnskólakrökkum í Reykjanesbæ. „Við hjá Rotaryklúbbi Keflavíkur vorum að leita okkur að verkefni fyrir þetta starfsár. Við plægðum akurinn og sögðum við sjálf okkur að þetta ár ætluðum við ekki að fara í gróðursetningu, heldur gera eitthvað annað. Við lásum í gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja og þar kom þessi áhersla varðandi sköpun og hönnun í ljós. Svo erum við svo heppin að Haukur Hilm- arsson, sem er kennari í Stapaskóla, er einnig í Rotaryklúbbi Keflavíkur og hann benti okkur á þessa hug- mynd að taka þátt í, að styrkja Sí- sköpunarsprettinn. Þetta þróaðist út í það að þetta væri sniðuga leiðin fyrir okkur, að kaupa þessa þrívíddarprentara í skólana, til að örva þessa sköpunarhugsun hjá krökkunum,“ segir Hannes Frið- riksson, formaður Rotaryklúbbs Keflavíkur í samtali við Víkur- fréttir. Sísköpunarsprettur grunnskóla Reykjanesbæjar hefur göngu sína Rotaryklúbbur Keflavíkur færði grunnskólum þrívíddarprentara Frá afhendingu þrívíddarprentaranna. Skólastjórar grunnskólanna, rotaryfélagar, fulltrúar Reykjanesbæjar og Haukur Hilmarsson, kennari í Stapaskóla. 4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.