Víkurfréttir - 02.03.2022, Blaðsíða 15
Fyrsti Íslandsmeistara-
titill Borðtennisfélags
Reykjanesbæjar
Jón Gunnarsson varð fyrsti Ís-
landsmeistari Borðtennisfélags
Reykjanesbæjar þegar hann stóð
uppi sem sigurvegari í einliðaleik
karla 60–69 ára á Íslandsmóti
öldunga sem fram fór í húsnæði
Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur um helgina.
Piotr Herman, formaður Borð-
tennisfélagsins, vann bronsverð-
laun í einliðaleik karla 40–49 ára
og þá lentu hann og Michał May-
Majewski í öðru sæti í tvíliðaleik
karla í sama aldursflokki.
Fyrstu verðlaun BR á Íslands-
móti komu hins vegar á Íslands-
móti unglinga 2021 þegar Dawid
May-Majewski og Ingi Rafn Dav-
íðsson unnu til bronsverðlauna í
einliðaleik hnokka fæddra 2010
og síðar.
Piotr Herman og Michał May-
Majewski enduðu í öðru sæti
í tvíliðaleik karla 40–49 ára.
Geosilica-mótið í Nettóhöllinni:
820 fótboltastelpur sýndu snilldartilþrif
Það var líf og fjör í Nettóhöllinni um helgina þegar
Geosilica-mótið í knattspyrnu var haldið fyrir stelpur
á aldrinum sjö til tólf ára. Eins og gefur að skilja var
heilmikill hamagangur í höllinni enda yfir átta hundruð
þátttakendur frá átján félögum auk áhorfenda sem
voru komnir til að hvetja sín lið til dáða.
Skipulag mótsins var til fyrirmyndar og gekk
snurðulaust fyrir sig, leikmenn meistaraflokka Kefla-
víkur dæmdu leikina og það sem mestu skipti – allir
skemmtu sér vel.
Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari VF, skellti
sér á fótboltamót og smellti af nokkrum myndum.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 15