Víkurfréttir - 21.04.2022, Qupperneq 14
Úkraínskur úrvalsdeildarleikmaður í Keflavík
Ivan Kalyuzhnyi, 24 ára miðju-
maður, hefur gengið til liðs við
Keflavík en hann kemur frá FK
Oleksandriya sem leikur í efstu
deildinni í Úkraínu.
Ivan leikur í stöðu miðjumanns og
hefur töluverða reynslu úr efstu og
næst efstu deild í heimalandi sínu.
Ivan kemur sem fyrr segir á láni og
gildir lánssamningurinn fram í júlí.
Ivan kemur væntanlega til með að
styrkja leikmannahóp Keflavíkur
mikið. Verið er að vinna hörðum
höndum að því að fá leikheimild
fyrir Ivan sem er þegar kominn til
landsins með fjölskyldu sinni.
Ivan, Anja, kona hans, og Olivia,
tæplega tveggja ára gömul dóttir
þeirra, voru fegin að vera komin til
landsins en vegna þess hörmung-
arárstands sem ríkir í heimalandi
þeirra hafa þau haldið til hjá vina-
fólki í Póllandi að undanförnu.
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Fræðslusvið - Kennsluráðgjafi
Fræðslusvið - Sálfræðingur
Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur
Hljómahöll - Starfsmaður í tímavinnu
Súlan verkefnastofa - Vefstjóri
Garðyrkjudeild - Sumarstörf
Aspardalur – Búsetuúrræði fyrir fatlaða
Heiðarsel - Deildarstjóri
Heiðarskóli - Náttúrufræðikennari á unglingastigi
Njarðvíkurskóli – Forstöðumaður frístundaheimilis
Njarðvíkurskóli/Ösp sérdeild - Sérkennari/þroskaþjálfi
Stapaskóli - Starfsmenn skóla
Starf við liðveislu
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Keflvíkingar hófu leik í Bestu
deild karla í knattspyrnu í byrjun
vikunnar þegar þeir mættu
liði Breiðabliks á útivelli. Það
tók Blika ekki nema rétt rúma
mínútu að brjóta varnarmúra
Keflavíkur og komast yfir. Áður
en blásið var til hálfleiks hafði
Breiðablik skorað þrívegis og
lauk leiknum með yfirburðasigri
Blika, 4:1.
Keflvíkingar mættu ekki til-
búnir til leiks og því fór sem fór.
Strax á fyrstu mínútu reyndi á
Sindra Kristinn Ólafsson, mark-
vörð Keflvíkinga, sem varði í horn
en upp úr hornspyrnunni skoruðu
Blikar frysta markið. Fyrri hálf-
leikur var einstefna að marki
Keflavíkur og mátti litlu muna að
fleiri mörk litu dagsins ljós. Smá
lífsmark vaknaði hjá Keflavík eftir
að Patrik Johannesen skoraði fyrir
Keflavík á 77. mínútu en þá höfðu
Blikar þegar skorað fjórða mark
sitt.
Annar erfiður leikur bíður Kefl-
víkinga en í næstu umferð taka
þeir á móti Val á HS Orkuvell-
inum. Leikið verður næstkomandi
sunnudag,
Adam Ægir leikur með Keflavík í Bestu deildinni
Keflvíkingar styrktu leikmannahóp
sinn um helgina þegar tveir nýir leik-
menn skrifuðu undir samninga við
knattspyrnudeildina. Adam Ægir
Pálsson snýr aftur til Keflavíkur á
lánssamningi frá Víkingi Reykjavík
en Adam þekkir vel til í Keflavík
þar sem hann lék með liðinu 2019
og var síðan seldur á miðju sumri
2020 til Víkings. Adam er kant-
maður og kemur til með að styrkja
Keflavíkurliðið mikið fyrir komandi
átök í Bestu deildinni.
„Ég er mjög sáttur við hvernig
þetta endaði. Ég er kominn til að
styrkja Keflavík og að taka þátt í
þeirri velgengni sem hefur verið í
gangi hjá Keflavík síðan ég fór.“
Hvað varð til þess að Keflavík varð
fyrir valinu?
Fyrst og fremst þá líður mér rosa-
lega vel hérna hjá Keflavík, ég þekki
Sigga Ragga vel og mér líður mjög
vel að spila undir hans stjórn. Það
er mjög gott að vera hérna – svo ein-
falt er það. Ef ég myndi fara á lán frá
Víkingi þá fannst mér ekkert annað
koma til greina en Keflavík.“
Adam Ægir kemur á lánssamningi
eins og fyrr segir og er lengd hans
óákveðin. „Kannski verð ég hálft
tímabilið, kannski allt tímabilið –
það kemur bara í ljós,“ segir Adam
Ægir sem er þegar orðinn löglegur
með Keflavík.
Adam Ægir í leik með Keflavík Lengjudeildinni 2020.
Það má reikna með að talsvert eigi eftir að mæða á
Sindra Kristni í marki Keflvíkinga í sumar.
Keflavík tapaði fyrir
Blikum í fyrstu umferð
Slæm byrjun í
Bestu deildinni
Úrslit leikja og fréttir af íþróttaviðburðum á
Suðurnesjum birtast reglulega á vefnum
vf.issport
Óska nær 23 milljóna króna í neyðarstyrki vegna Covid-19
Aðalstjórn Ungmennafélags Njarð-
víkur og aðalstjórn Keflavíkur,
íþrótta- og ungmennafélags, hafa
sent íþrótta- og tómstundaráði
Reykjanesbæjar erindi þar sem
óskað er eftir neyðarstyrkjum vegna
taps sem myndaðist við heimsfar-
aldur Covid-19. Samtals er óskað
eftir tæpum 23 milljónum króna.
Lagt var fram erindi frá aðalstjórn
Ungmennafélags Njarðvíkur um
neyðarstyrk að kr. 7.791.847 vegna
tekjutaps af völdum Covid-19 árið
2021. Aðalstjórn Keflavíkur óskar
eftir neyðarstyrk að kr. 15.000.000
vegna tekjufalls af völdum Covid-19
árið 2021.
„Íþrótta- og tómstundaráð leggur
áherslu á að reynt verði eftir fremsta
megni að bæta knattspyrnudeild-
unum upp ætlað tap sem myndaðist
vegna heimsfaraldursins,“ segir í af-
greiðslu ráðsins.
Úr bikarslag Keflavíkur og Njarðvíkur 2019.
sport