Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 2
„Ég get ekki annað en verið ánægður. Meiri- hlutinn heldur og þetta er búin að vera varnar- v i n n a . V i ð erum samstíga í meirihlutanum og höfum talað saman alla leiðina um að halda samstarfinu áfram,“ sagði Friðjón Einarsson, oddviti Samfylkingar og óháðra, á kosninganótt. „V i ð e r u m virkilega ánægð með þetta og höfum fundið þ a ð s í ð u s t u vikur að íbúar í Reykjanesbæ treysta Fram- sókn til að leiða hér vinnuna. Ég er virkilega ánægð með þennan stóra sigur okkar,“ segir Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Fram- sóknarflokksins í Reykjanesbæ. „Við gáfum út alveg stax frá upphafi að ef meirihlutinn myndi halda, þá væri það eðlilega fyrsta samtalið sem við myndum eiga.“ Halldóra Fríða segir vinnuna síðustu fjögur ár hafa skapað þennan góða árangur í kosn- ingunum sl. laugardag. „Við höfum staðið okkur vel, erum vinnusöm og heiðarleg. Það er að skila sér núna í þessum kosningum.“ „Þó svo við séum stærst , þá vonuðumst v i ð t i l þ e s s að ná f jórða m a n n i n u m inn,“ sagði Mar- grét Sanders, oddviti Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanesbæ, í viðtali við Víkur- fréttir á kosninganótt. Margrét segir það hafa komið á óvart í kosninga- baráttunni að hún hafi snúist um Sjálfstæðisflokkinn. „Við höfum ekki verið í meirihluta í átta ár, en einhvernveginn þá stóð þeim ógn af okkur og ég tel að við höfum verið með gríðarlega öflugan hóp.“ „Ég er sátt við það að hafa haldið inni okkar eina manni en hefði gjarnan viljað ná annarri manneskju inn. Úrslitin eru góð skilaboð til okkar í meiri- h l u t a n u m , “ segir Valgerður Björk Pálsdóttir, oddviti Beinnar l e i ð a r. „ Þ a ð voru engin stór ágreiningsmál í kosningabaráttunni og það endaði þannig. Það segir kannski eitthvað um stöðugleika og ró í Reykjanesbæ sem fólk er að kalla eftir áfram,“ segir Valgerður. „Það eru mikil g l e ð i t í ð i n d i að við höfum náð manni inn í bæjarstjórn,“ segir Margrét Þórarinsdóttir, o ddv i t i U m - b ó t a r. M a r - grét sat síðast í bæjarstjórn fyrir Miðflokkinn en söðlaði um og stofnaði Umbót í vor. „Þeir bæjarbúar sem kusu okkur eru greinilega ánægðir með þau verk sem ég hef verið að vinna í bæjarstjórn síðustu fjögur ár. Það var markmiðið að fella þennan meirihluta, því við erum ekki alveg jákvæð fyrir öllu því sem hann hefur verið að gera.“ „Við í Framsókn erum gríðar- lega ánægð með úrslit kosning- anna. Við viljum þakka traustið sem okkur er sýnt. Þetta er mikill sigur og það er ákall eftir áherslum og stefnumálum Fram- sóknarflokksins. Það er bara gleði í okkar herbúðum að við höfum bætt við okkur manni í Suðurnesjabæ. Þetta er virki- lega jákvætt,“ segir Anton Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ, um úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Suðurnesjabæ um liðna helgi, þar sem Framsóknarflokurinn fékk tvo menn kjörna. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Meirihluti Reykjanesbæjar styrkti stöðu sína í sveitarstjórnarkosn- ingunum Reykjanesbæ en kjörsókn hefur aldrei verið lægri og var að- eins 47,4%. Framsóknarflokkurinn er sigur- vegari kosninganna í Reykjanesbæ og bætti við sig manni. „Við erum ákaflega þakklát með árangurinn og að meirihlutinn haldi sem hann gerði og gott betur,“ sagði Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknar- flokksins. Friðjón Einarsson, oddviti Sam- fylkingar, sagði ánægjulegt að meiri- hlutinn héldi og bætti við sig manni. „Meirihlutinn lagði verk sín í dóm og bæjarstjórann og fékk góða niður- stöður,“ sagði Friðjón. Atkvæðin féllu þannig: B-listi Framsóknarflokks 22,6% - 1.536 atkvæði - þrír bæjarfulltrúar D-listi Sjálfstæðisflokks 28,1 - 1.908 atkvæði - þrír bæjarfulltrúar M-listi Miðflokks 1,8% - 122 atkvæði P-listi Pirata 4,2% - 275 atkvæði S-listi Samfylkingar 22,1% - 1.500 atkvæði- þrír bæjarfulltrúar U-listi Umbótar 8,4% - 572 atkvæði - einn bæjarfulltrúi Y-listi Beinnar leiðar 12,8% - 870 atkvæði - einn bæjarfulltrúi Auðir seðlar voru 139 og ógildir 27. „B-listinn hefur tjáð okkur að hann sé að hefja óformlegar viðræður við D-listann, sem okkur þykir áhuga- vert í ljósi þess að þessir tveir flokkar eru með minnihluta at- kvæða á bak við sig eða 48,8%. En O-listinn og S-listinn er með 51,6% atkvæða,“ segir Jónína Magnús- dóttir, oddviti Bæjarlistans, þegar hún er spurð út í viðbrögð við úr- slitum sveitarstjórnarkosninga í Suðurnesjabæ. „Við höfum sent öllum kjörnum fulltrúum bréf þar sem við áréttum stefnu okkar um að allir vinni saman við bæjarstjórnarborðið, ekki sé hefðbundinn meiri- og minnihluti. Það er okkar vilji og bíðum við eftir við- brögðum þeirra við þeirri bón,“ segir Jónína jafnframt. Bæjarlistinn var stofnaður í byrjun apríl þegar skila átti inn framboðslistanum til yfirkjörstjórnar. „Að fá 427 atkvæði í kosningunum, með tæp 27% fylgi er að mati Bæjarlistans stórsigur og eftirtektarverður árangur fyrir nýtt framboð,“ segir Jónína. „Okkur fannst tími til kominn að bjóða fram undir S-listanum aftur, en hann hafði boðið fram í Sand- gerði í nokkur skipti fyrir sam- einingu Sandgerðis og Garðs. Við renndum nokkuð blint í sjóinn þar sem við vorum með mikið af nýju fólki á listanum og þar á meðal engan sitjandi bæjarfulltrúa, þó svo ég hafi setið í átta ár í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar fyrir sameiningu,“ segir Sigursveinn Bjarni Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar og óháðra, sem bauð fram til bæjarstjórnar í Suðurnesjabæ og fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna. „Við vorum þó vongóð um að vera flokkurinn sem myndi vera í lykilstöðu til að mynda meirihluta og eru því úrslitin að vissu leyti vonbrigði. Okkur grunaði þó snemma í kosningabaráttunni að ef svo færi að B og D næðu meirihluta bæjarfulltrúa að þeir flokkar myndu byrja samtal sín á milli, enda líkar áherslur og lítið um breytingar á stjórnun eða rekstri í þeirra málefnaskrám,“ segir Sigursveinn. Þegar lokatölur úr Suðurnesjabæ voru birtar virðist allt vera opið í meirihlutamyndun. D-listi og B-listi eiga í viðræðum um samstarf sam- starf á komandi kjörtímabili og eru viðræður á frumstigi. Fulltrúar framboðanna funduðu á þriðju- dagskvöld í Suðurnesjabæ. Nánari fréttir af þeim fundarhöldum eru á vef Víkurfrétta, vf.is. Sjálfstæðismenn og óháðir fá þrjá menn kjörna. Framboðið fékk 475 atkvæði eða 29,5%. Bæjarlistinn fékk tvo menn kjörna. Framboðið fékk 427 atkvæði eða 26,5% at- kvæða. Samfylking og óháðir fengu tvo menn kjörna. Framboðið fékk 404 atkvæði eða 25,1% atkvæða. Framsóknarflokkurinn fékk tvo menn kjörna. Framboðið fékk 18,9% atkvæða en 304 greiddu framboðinu atkvæði sitt. Auðir seðlar voru 43 og ógildir níu. Kjörsókn var 60,9%. Allir vinni saman við bæjarstjórnarborðið Grunaði snemma að B og D myndu byrja samtal sín á milli Ræða meirihlutasamstarf Suðurnesjabæ „Ég er mjög ánægður með þann stuðning sem D-listinn fékk í kosningunum og allan þann fjölda sem heimsótti okkur og við áttum í samskiptum við fyrir kosningarnar,“ segir Einar Jón Pálsson, oddviti Sjálfstæðis- manna og óháðra, í Suðurnes- jabæ. „Niðurstaðan er að D-listinn er enn stærsti flokkurinn í Suðurnesjabæ þrátt fyrir að miklar breytingar hafi átt sér stað í aðdraganda kosninga. Það var ljóst að baráttan um stuðninginn yrði mikil enda mjög mikið af flottum fulltrúum að bjóða sig fram og stefnumálin lík. Við fulltrúar D-listans munum leggja okkur fram að vinna að heilum hug fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, nú sem endranær. Á listanum er mikið af nýjum og flottum fulltrúum sem hafa unnið gífurlega vel saman og eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum fyrir sam- félagið. Framtíð bæjarfélagsins er björt og það er okkar allra að vinna að því að svo verði áfram,“ segir Einar Jón. D-listinn enn stærsti flokkurinn í Suðurnesjabæ Ákall eftir áherslum Framsóknarflokksins Framsókn sigurvegari í Reykjanesbæ Lesið nánar um kosningar á vefnum vf is 2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.