Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 16
Mundi Það vantaði allan „kraft úr Kókómjólk“ í þessar kosningar ... Dauft var það Sveitarstjórnarkosningar sem fóru fram um allt land síðustu helgi, voru afar tíðindalitlar fannst manni heilt yfir og hvergi voru þær daufari en í Reykjanesbæ. Kjörsókn var afar dræm og í raun alveg ömurleg eða rétt rúmlega 47% sem ætti að vera mikið áhyggjuefni. Það þurfa ein- hverjir aðrir að rýna mun betur í þessi mál en ein tillaga frá mér væri að gera þetta kosningaferli rafrænt enda tæknin til staðar núna árið 2022. RÚV fjallaði svo um kosning- arnar í Reykjanesbæ af sama áhuga og íbúar bæjarins sýndu þeim eða í heilar ellefu sekúndur. Reyndar var kosningasjónvarpið um helgina jafnvel verra og vandræðalegra en framlag Þjóðverja í Eurovision þetta árið (sem rak þar lestina með ekkert stig) og er þá mikið sagt. Allir flokkar voru svo að venju sigurvegarar í kosningunum en enginn þó meiri en Framsókn sem poppuðu sig bókstaflega á toppinn. „Varnarsigur“ er samt orð orðanna eftir svona kosningar. Sjálfur fylgdist ég ágætlega með kosningabaráttunni hér í bæ og tók þátt í nokkrum við- burðum hjá flokkunum sem buðu hér fram. Ágætir viðburðir svo sem og allir að gera sitt besta en þetta ferli allt saman styrkti enn frekar þá skoðun mína að kannski væri betra að fá að velja fólk frekar en flokka. Í öllum flokkum fann ég nefnilega aðila sem ég gæti vel stutt við bakið á og aðra sem ég gæti það bara alls ekki. Hefði viljað fá að merkja við ellefu aðila af þessum listum sem boðið var upp á í ár og sumir sem ég hefði valið voru ekki einu sinni ofarlega á listum sinna flokka en að mínu mati fólk sem ég hefði viljað sjá í bæjarstjórn. Ætla þó ekki að kvarta enda lýst mér svo sem ágætlega á þessa ellefu aðila sem komust í bæj- arstjórn að þessu sinni. Meirihlutinn af þeim eru konur sem er jákvætt og þarna er t.d. einn besti söngvari þjóðarinnar, Sverrir Bergmann (plús einn sá slakasti, Guðbergur Reynis) og óska ég öllu þessu fólki innilega til hamingju og óska þeim velfarnaðar í störfum. Framtíð Reykjanesbæjar er nefnilega björt og þar er best að búa! Það er samt deginum ljósara að einhverjar breytingar þurfum við a.m.k. að gera því eins og sást um helgina þá er áhuginn á þessum kosningum sorglega lítill. Hvet flokkana til þess að skoða þessi mál betur enda skammarlegt að einungis 47% okkar nýtum rétt sem forfeður okkar börðust fyrir með kjafti og klóm. LO KAO RÐ ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON Kjósendur nota oft tækifærið á kjördegi að gera eitthvað skemmtilegt. Þessir tveir hópar mættu á kjörstað í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, annars vegar ungar konur að „gæsa“ Ágústu Evu vinkonu sína og síðan voru ungir herramenn í stuði með Kókómjólkur- Klóa, Guðna Frey Róbertssyni, sem útbýtti drykknum góða til kjósenda í skemmtilegri steggjun. VF-myndir: Páll Ketilsson Gæsir og steggir á kjördegi Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur staðfest afgreiðslu bæjar- ráðs sem samþykkti samhljóða að veita heimild til ráðningar á sumar- starfsmanni vegna álags á starfs- fólk fjölskyldusviðs við móttöku vegalausra barna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ráða sumarstarfs- mann vegna móttöku vegalausra barna Atvinnuleysi í Reykjanesbæ mældist 8,8% um mánaðarmótin febrúar/mars. Atvinnuleysið hefur verið í kringum 10% frá því í ágúst, en lækkaði nú loks um 1% á milli mánaða. Atvinnuleysi fór hæst í 24,9% um síðastliðin áramót. Jákvæð áhrif endurheimtar flug- farþega eru að koma fram og vonir standa til að atvinnuleysi lækki enn frekar í yfirstandandi mánuði. Jákvæð áhrif endur- heimtar flugfarþega Kadeco auglýsir eftir umsóknum um starf viðskipta- og þróunar stjóra, starf verk efna stjóra og starf við verk efna umsjón. Við leitum að fólki til að taka þátt í að byggja upp teymi Kadeco og móta þróunar svæði umhverfis Keflavíkur flugvöll með okkur. Sótt er um störfin á Alfred.is. Nánari upplýsingar er að finna á kadeco.is. Framtíðartækifæri hjá Kadeco KEFLAVIK AIRPORT DEVELOPMENT COMPANY

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.