Víkurfréttir - 18.05.2022, Side 16
Mundi
Það vantaði allan
„kraft úr Kókómjólk“
í þessar kosningar ...
Dauft var það
Sveitarstjórnarkosningar sem fóru
fram um allt land síðustu helgi, voru
afar tíðindalitlar fannst manni heilt
yfir og hvergi voru þær daufari en
í Reykjanesbæ. Kjörsókn var afar
dræm og í raun alveg ömurleg eða
rétt rúmlega 47% sem ætti að vera
mikið áhyggjuefni. Það þurfa ein-
hverjir aðrir að rýna mun betur í
þessi mál en ein tillaga frá mér væri
að gera þetta kosningaferli rafrænt
enda tæknin til staðar núna árið
2022. RÚV fjallaði svo um kosning-
arnar í Reykjanesbæ af sama áhuga
og íbúar bæjarins sýndu þeim eða
í heilar ellefu sekúndur. Reyndar
var kosningasjónvarpið um helgina
jafnvel verra og vandræðalegra en
framlag Þjóðverja í Eurovision þetta
árið (sem rak þar lestina með ekkert
stig) og er þá mikið sagt.
Allir flokkar voru svo að venju
sigurvegarar í kosningunum en
enginn þó meiri en Framsókn sem
poppuðu sig bókstaflega á toppinn.
„Varnarsigur“ er samt orð orðanna
eftir svona kosningar. Sjálfur fylgdist
ég ágætlega með kosningabaráttunni
hér í bæ og tók þátt í nokkrum við-
burðum hjá flokkunum sem buðu
hér fram. Ágætir viðburðir svo sem
og allir að gera sitt besta en þetta
ferli allt saman styrkti enn frekar þá
skoðun mína að kannski væri betra
að fá að velja fólk frekar en flokka.
Í öllum flokkum fann ég nefnilega
aðila sem ég gæti vel stutt við bakið
á og aðra sem ég gæti það bara alls
ekki. Hefði viljað fá að merkja við
ellefu aðila af þessum listum sem
boðið var upp á í ár og sumir sem
ég hefði valið voru ekki einu sinni
ofarlega á listum sinna flokka en að
mínu mati fólk sem ég hefði viljað sjá
í bæjarstjórn. Ætla þó ekki að kvarta
enda lýst mér svo sem ágætlega á
þessa ellefu aðila sem komust í bæj-
arstjórn að þessu sinni. Meirihlutinn
af þeim eru konur sem er jákvætt
og þarna er t.d. einn besti söngvari
þjóðarinnar, Sverrir Bergmann (plús
einn sá slakasti, Guðbergur Reynis)
og óska ég öllu þessu fólki innilega til
hamingju og óska þeim velfarnaðar í
störfum. Framtíð Reykjanesbæjar er
nefnilega björt og þar er best að búa!
Það er samt deginum ljósara að
einhverjar breytingar þurfum við
a.m.k. að gera því eins og sást um
helgina þá er áhuginn á þessum
kosningum sorglega lítill. Hvet
flokkana til þess að skoða þessi mál
betur enda skammarlegt að einungis
47% okkar nýtum rétt sem forfeður
okkar börðust fyrir með kjafti og
klóm.
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
Kjósendur nota oft tækifærið á kjördegi að gera eitthvað skemmtilegt. Þessir tveir hópar
mættu á kjörstað í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, annars vegar ungar konur að „gæsa“
Ágústu Evu vinkonu sína og síðan voru ungir herramenn í stuði með Kókómjólkur-
Klóa, Guðna Frey Róbertssyni, sem útbýtti drykknum góða til kjósenda í skemmtilegri
steggjun. VF-myndir: Páll Ketilsson
Gæsir og steggir á kjördegi
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
hefur staðfest afgreiðslu bæjar-
ráðs sem samþykkti samhljóða að
veita heimild til ráðningar á sumar-
starfsmanni vegna álags á starfs-
fólk fjölskyldusviðs við móttöku
vegalausra barna í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
Ráða sumarstarfs-
mann vegna móttöku
vegalausra barna
Atvinnuleysi í Reykjanesbæ
mældist 8,8% um mánaðarmótin
febrúar/mars. Atvinnuleysið hefur
verið í kringum 10% frá því í ágúst,
en lækkaði nú loks um 1% á milli
mánaða. Atvinnuleysi fór hæst í
24,9% um síðastliðin áramót.
Jákvæð áhrif endurheimtar flug-
farþega eru að koma fram og vonir
standa til að atvinnuleysi lækki enn
frekar í yfirstandandi mánuði.
Jákvæð áhrif endur-
heimtar flugfarþega
Kadeco auglýsir eftir umsóknum um starf viðskipta-
og þróunar stjóra, starf verk efna stjóra og starf við
verk efna umsjón. Við leitum að fólki til að taka þátt
í að byggja upp teymi Kadeco og móta þróunar svæði
umhverfis Keflavíkur flugvöll með okkur.
Sótt er um störfin á Alfred.is.
Nánari upplýsingar er að finna á kadeco.is.
Framtíðartækifæri
hjá Kadeco
KEFLAVIK AIRPORT DEVELOPMENT COMPANY