Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 18.05.2022, Blaðsíða 14
Njarðvíkingar hafa heldur betur fengið fljúgandi start á Íslandsmótinu í 2. deild karla í knattspyrnu. Eftir tvær umferðir eru þeir með fullt hús stiga, hafa skorað níu mörk og haldið hreinu, fyrst unnu þeir Þrótt Reykjavík með fjórum mörkum gegn engu á útivelli og síðan var það Magni frá Grenivík sem Njarðvíkingar unnu 5:0. Hólmar Örn Rúnarsson og Bjarni Jóhannsson eru nú á sínu öðru ári með Njarðvík en á síðasta tímabili endaði liðið í sjötta sæti deildarinnar. Víkurfréttir slógu á þráðinn til Hólmars Arnar [Bóa] og heyrðu hvernig hann metur stöðuna. „Jú, þetta fer vissulega vel af stað,“ segir Bói, „en við vitum vel að þetta á ekki eftir að vera svona auðvelt í allt sumar. Báðir leikir hafa gengið fullkomlega upp af okkar hálfu og gaman að byrja svona.“ Svo er það Víkingur á Ólafsvík í næsta leik. Það verður ekki auðvelt verkefni, eða hvað? „Nei, alls ekki. Gaui Þórðar og félagar hafa ekki farið eins vel af stað og við, erum með eitt stig eftir tvo leiki svo þeir vilja fara að sjá sigur. Annars er skemmtileg dagskrá framundan hjá okkur. Fyrst Víkingur á Ólafsvík, svo Keflavík í bikarnum og þá Reynir Sandgerði. Skemmtilegir næstu tíu dagar eða svo.“ Stóri og litli mætast í bikarslag Talandi um það, hvernig leggst í þig að mæta Keflavík í bikarkeppn- inni? „Mér líst bara vel á það,“ segir Bói sem lék vel yfir 200 leiki með Keflavík á árunum 2000 til 2018 en hann spilaði einnig með FH leik- tímabilin 2011 til 2014. „Það verður bara gaman að mæta á minn gamla heimavöll.“ Hvernig meturðu möguleika ykkar á móti þeim? „Þetta verður krefjandi en það er alltaf séns í fótbolta, vonandi náum við að stríða þeim eitthvað. Þeir hljóta að teljast sterkari aðilinn, á pappírunum allavega, en maður veit aldrei. Það má reikna með að sjálfs- traust þeirra hafa beðið einhverja hnekki á meðan okkar er í botni – það gæti haft áhrif.“ Góðar viðbætur Hafa orðið miklar breytingar á hópnum ykkar frá því í fyrra? „Einhverjar breytingar eðlilega, við höfum fengið góðar viðbætur við leikmannahópinn. Magnús Þórir Matthíasson kom til okkar frá Reyni Sandgerði, við fengum Bessa Jó- hannsson frá Gróttu og Oumar Diouck sem er búinn að vera með Fjarðabyggð síðustu tvö ár. Síðan erum við með tvo unga í láni, Viðar Má Ragnarsson frá Keflavík og Úlf Ágúst Björnsson frá FH. Svo gekk Hörður Sveinsson til liðs við okkur frá Reyni.“ Annars segir Bói að hópurinn sé að öður leyti sá sami og í fyrra. „Hreggviður Hermannsson ákvað að vera annað ár með okkur en hann var búinn að vera að þreifa fyrir sér hjá öðrum liðum svo ég er nokkuð sáttur við þann hóp sem við höfum.“ Það má segja að nýju mennirnir í lið Njarðvíkur sé vissulega ágætis viðbót við Njarðvíkurliðið en nýlið- arnir hafa skorað sjö af níu mörkum Njarðvíkinga í 2. deild (Oumar Diouck þrjú, Úlfur Ágúst og Magnús Matthíasson tvö hvor). Hvert er stefnan tekin á þessu tímabili? „Ég fer í engar grafgötur með það að stefnan er tekin upp. Ég tek það samt aftur fram að þetta verður ekki svona auðvelt í allt sumar, deildin verður örugglega jöfn eins og síð- ustu ár – en stefnan er tekin á sæti í Lengjudeildinni að ári,“ segir Hólmar Örn að lokum og miðað við hvernig Njarðvíkingar hafa farið af stað þá gætum við vel verið að sjá þá fara upp í haust. Verður ekki svona auðvelt í allt sumar Það verður bara gaman að mæta á minn gamla heimavöll. Þetta verður krefjandi en það er alltaf séns í fótbolta, vonandi náum við að stríða þeim eitthvað ... Síðasta markið sem Bói skoraði fyrir Keflavík kom úr vítaspyrnu á móti Blikum tímabilið 2018. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Blika, sigraður. Mynd úr safni Víkurfrétta Oumar Diouck hefur skorað þrjú mörk í tveimur leikjum. Hér er hann í bikarleik Njarðvíkur og KFG í annarri umferð Mjólkurbikarsins sem Njarðvík vann 5:2. VF-mynd: JPK Í leik með með Keflavík gegn FH árið 2008. Mynd úr safni Víkurfrétta Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.