Víkurfréttir - 18.05.2022, Page 14
Njarðvíkingar hafa heldur betur fengið fljúgandi start á Íslandsmótinu í 2. deild karla í knattspyrnu.
Eftir tvær umferðir eru þeir með fullt hús stiga, hafa skorað níu mörk og haldið hreinu, fyrst unnu
þeir Þrótt Reykjavík með fjórum mörkum gegn engu á útivelli og síðan var það Magni frá Grenivík
sem Njarðvíkingar unnu 5:0. Hólmar Örn Rúnarsson og Bjarni Jóhannsson eru nú á sínu öðru ári með
Njarðvík en á síðasta tímabili endaði liðið í sjötta sæti deildarinnar.
Víkurfréttir slógu á þráðinn til
Hólmars Arnar [Bóa] og heyrðu
hvernig hann metur stöðuna.
„Jú, þetta fer vissulega vel af stað,“
segir Bói, „en við vitum vel að þetta
á ekki eftir að vera svona auðvelt í
allt sumar. Báðir leikir hafa gengið
fullkomlega upp af okkar hálfu og
gaman að byrja svona.“
Svo er það Víkingur á Ólafsvík í
næsta leik. Það verður ekki auðvelt
verkefni, eða hvað?
„Nei, alls ekki. Gaui Þórðar og félagar
hafa ekki farið eins vel af stað og við,
erum með eitt stig eftir tvo leiki svo
þeir vilja fara að sjá sigur. Annars
er skemmtileg dagskrá framundan
hjá okkur. Fyrst Víkingur á Ólafsvík,
svo Keflavík í bikarnum og þá Reynir
Sandgerði. Skemmtilegir næstu tíu
dagar eða svo.“
Stóri og litli mætast í bikarslag
Talandi um það, hvernig leggst í
þig að mæta Keflavík í bikarkeppn-
inni?
„Mér líst bara vel á það,“ segir Bói
sem lék vel yfir 200 leiki með
Keflavík á árunum 2000 til 2018
en hann spilaði einnig með FH leik-
tímabilin 2011 til 2014. „Það verður
bara gaman að mæta á minn gamla
heimavöll.“
Hvernig meturðu möguleika ykkar
á móti þeim?
„Þetta verður krefjandi en það er
alltaf séns í fótbolta, vonandi náum
við að stríða þeim eitthvað. Þeir
hljóta að teljast sterkari aðilinn, á
pappírunum allavega, en maður veit
aldrei. Það má reikna með að sjálfs-
traust þeirra hafa beðið einhverja
hnekki á meðan okkar er í botni –
það gæti haft áhrif.“
Góðar viðbætur
Hafa orðið miklar breytingar á
hópnum ykkar frá því í fyrra?
„Einhverjar breytingar eðlilega, við
höfum fengið góðar viðbætur við
leikmannahópinn. Magnús Þórir
Matthíasson kom til okkar frá Reyni
Sandgerði, við fengum Bessa Jó-
hannsson frá Gróttu og Oumar
Diouck sem er búinn að vera með
Fjarðabyggð síðustu tvö ár. Síðan
erum við með tvo unga í láni, Viðar
Má Ragnarsson frá Keflavík og Úlf
Ágúst Björnsson frá FH. Svo gekk
Hörður Sveinsson til liðs við okkur
frá Reyni.“
Annars segir Bói að hópurinn
sé að öður leyti sá sami og í fyrra.
„Hreggviður Hermannsson ákvað að
vera annað ár með okkur en hann
var búinn að vera að þreifa fyrir sér
hjá öðrum liðum svo ég er nokkuð
sáttur við þann hóp sem við höfum.“
Það má segja að nýju mennirnir
í lið Njarðvíkur sé vissulega ágætis
viðbót við Njarðvíkurliðið en nýlið-
arnir hafa skorað sjö af níu mörkum
Njarðvíkinga í 2. deild (Oumar
Diouck þrjú, Úlfur Ágúst og Magnús
Matthíasson tvö hvor).
Hvert er stefnan tekin á þessu
tímabili?
„Ég fer í engar grafgötur með það
að stefnan er tekin upp. Ég tek það
samt aftur fram að þetta verður ekki
svona auðvelt í allt sumar, deildin
verður örugglega jöfn eins og síð-
ustu ár – en stefnan er tekin á sæti í
Lengjudeildinni að ári,“ segir Hólmar
Örn að lokum og miðað við hvernig
Njarðvíkingar hafa farið af stað þá
gætum við vel verið að sjá þá fara
upp í haust.
Verður ekki
svona auðvelt í allt sumar
Það verður bara
gaman að mæta
á minn gamla heimavöll.
Þetta verður krefjandi en
það er alltaf séns í fótbolta,
vonandi náum við að stríða
þeim eitthvað ...
Síðasta markið sem Bói skoraði fyrir Keflavík kom úr vítaspyrnu
á móti Blikum tímabilið 2018. Gunnleifur Gunnleifsson,
markvörður Blika, sigraður. Mynd úr safni Víkurfrétta
Oumar Diouck hefur skorað þrjú mörk í tveimur leikjum.
Hér er hann í bikarleik Njarðvíkur og KFG í annarri umferð
Mjólkurbikarsins sem Njarðvík vann 5:2. VF-mynd: JPK
Í leik með með Keflavík gegn FH árið 2008.
Mynd úr safni Víkurfrétta
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
sport