Víkurfréttir - 18.05.2022, Page 2
„Ég get ekki
annað en verið
ánægður. Meiri-
hlutinn heldur
og þetta er búin
að vera varnar-
v i n n a . V i ð
erum samstíga í
meirihlutanum
og höfum talað
saman alla leiðina um að halda
samstarfinu áfram,“ sagði Friðjón
Einarsson, oddviti Samfylkingar og
óháðra, á kosninganótt.
„V i ð e r u m
virkilega ánægð
með þetta og
höfum fundið
þ a ð s í ð u s t u
vikur að íbúar
í Reykjanesbæ
treysta Fram-
sókn til að leiða
hér vinnuna.
Ég er virkilega ánægð með þennan
stóra sigur okkar,“ segir Halldóra
Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Fram-
sóknarflokksins í Reykjanesbæ. „Við
gáfum út alveg stax frá upphafi að ef
meirihlutinn myndi halda, þá væri
það eðlilega fyrsta samtalið sem
við myndum eiga.“ Halldóra Fríða
segir vinnuna síðustu fjögur ár hafa
skapað þennan góða árangur í kosn-
ingunum sl. laugardag. „Við höfum
staðið okkur vel, erum vinnusöm og
heiðarleg. Það er að skila sér núna í
þessum kosningum.“
„Þó svo við
séum stærst ,
þá vonuðumst
v i ð t i l þ e s s
að ná f jórða
m a n n i n u m
inn,“ sagði Mar-
grét Sanders,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjanesbæ, í viðtali við Víkur-
fréttir á kosninganótt. Margrét segir
það hafa komið á óvart í kosninga-
baráttunni að hún hafi snúist um
Sjálfstæðisflokkinn. „Við höfum
ekki verið í meirihluta í átta ár, en
einhvernveginn þá stóð þeim ógn af
okkur og ég tel að við höfum verið
með gríðarlega öflugan hóp.“
„Ég er sátt við það að hafa haldið
inni okkar eina manni en hefði
gjarnan viljað ná annarri manneskju
inn. Úrslitin eru
góð skilaboð til
okkar í meiri-
h l u t a n u m , “
segir Valgerður
Björk Pálsdóttir,
oddviti Beinnar
l e i ð a r. „ Þ a ð
voru engin stór
ágreiningsmál í
kosningabaráttunni og það endaði
þannig. Það segir kannski eitthvað
um stöðugleika og ró í Reykjanesbæ
sem fólk er að kalla eftir áfram,“ segir
Valgerður.
„Það eru mikil
g l e ð i t í ð i n d i
að við höfum
náð manni inn
í bæjarstjórn,“
segir Margrét
Þórarinsdóttir,
o ddv i t i U m -
b ó t a r. M a r -
grét sat síðast
í bæjarstjórn fyrir Miðflokkinn en
söðlaði um og stofnaði Umbót í vor.
„Þeir bæjarbúar sem kusu okkur
eru greinilega ánægðir með þau
verk sem ég hef verið að vinna í
bæjarstjórn síðustu fjögur ár. Það
var markmiðið að fella þennan
meirihluta, því við erum ekki alveg
jákvæð fyrir öllu því sem hann hefur
verið að gera.“
„Við í Framsókn erum gríðar-
lega ánægð með úrslit kosning-
anna. Við viljum þakka traustið
sem okkur er sýnt. Þetta er
mikill sigur og það er ákall eftir
áherslum og stefnumálum Fram-
sóknarflokksins. Það er bara
gleði í okkar herbúðum að við
höfum bætt við okkur manni í
Suðurnesjabæ. Þetta er virki-
lega jákvætt,“ segir Anton Guðmundsson, oddviti
Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ, um úrslit
sveitarstjórnarkosninganna í Suðurnesjabæ um
liðna helgi, þar sem Framsóknarflokurinn fékk tvo
menn kjörna.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Meirihluti Reykjanesbæjar styrkti
stöðu sína í sveitarstjórnarkosn-
ingunum Reykjanesbæ en kjörsókn
hefur aldrei verið lægri og var að-
eins 47,4%.
Framsóknarflokkurinn er sigur-
vegari kosninganna í Reykjanesbæ
og bætti við sig manni. „Við erum
ákaflega þakklát með árangurinn og
að meirihlutinn haldi sem hann gerði
og gott betur,“ sagði Halldóra Fríða
Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknar-
flokksins.
Friðjón Einarsson, oddviti Sam-
fylkingar, sagði ánægjulegt að meiri-
hlutinn héldi og bætti við sig manni.
„Meirihlutinn lagði verk sín í dóm og
bæjarstjórann og fékk góða niður-
stöður,“ sagði Friðjón.
Atkvæðin féllu þannig:
B-listi Framsóknarflokks 22,6% -
1.536 atkvæði - þrír bæjarfulltrúar
D-listi Sjálfstæðisflokks 28,1 - 1.908
atkvæði - þrír bæjarfulltrúar
M-listi Miðflokks 1,8% - 122 atkvæði
P-listi Pirata 4,2% - 275 atkvæði
S-listi Samfylkingar 22,1% - 1.500
atkvæði- þrír bæjarfulltrúar
U-listi Umbótar 8,4% - 572 atkvæði
- einn bæjarfulltrúi
Y-listi Beinnar leiðar 12,8% - 870
atkvæði - einn bæjarfulltrúi
Auðir seðlar voru 139 og ógildir 27.
„B-listinn hefur tjáð okkur að hann
sé að hefja óformlegar viðræður við
D-listann, sem okkur þykir áhuga-
vert í ljósi þess að þessir tveir
flokkar eru með minnihluta at-
kvæða á bak við sig eða 48,8%. En
O-listinn og S-listinn er með 51,6%
atkvæða,“ segir Jónína Magnús-
dóttir, oddviti Bæjarlistans, þegar
hún er spurð út í viðbrögð við úr-
slitum sveitarstjórnarkosninga í Suðurnesjabæ.
„Við höfum sent öllum kjörnum fulltrúum bréf þar
sem við áréttum stefnu okkar um að allir vinni saman
við bæjarstjórnarborðið, ekki sé hefðbundinn meiri- og
minnihluti. Það er okkar vilji og bíðum við eftir við-
brögðum þeirra við þeirri bón,“ segir Jónína jafnframt.
Bæjarlistinn var stofnaður í byrjun apríl þegar skila átti
inn framboðslistanum til yfirkjörstjórnar.
„Að fá 427 atkvæði í kosningunum, með tæp 27% fylgi
er að mati Bæjarlistans stórsigur og eftirtektarverður
árangur fyrir nýtt framboð,“ segir Jónína.
„Okkur fannst tími til kominn að
bjóða fram undir S-listanum aftur,
en hann hafði boðið fram í Sand-
gerði í nokkur skipti fyrir sam-
einingu Sandgerðis og Garðs. Við
renndum nokkuð blint í sjóinn þar
sem við vorum með mikið af nýju
fólki á listanum og þar á meðal
engan sitjandi bæjarfulltrúa, þó svo
ég hafi setið í átta ár í bæjarstjórn
Sandgerðisbæjar fyrir sameiningu,“ segir Sigursveinn
Bjarni Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar og óháðra,
sem bauð fram til bæjarstjórnar í Suðurnesjabæ og
fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna.
„Við vorum þó vongóð um að vera flokkurinn sem
myndi vera í lykilstöðu til að mynda meirihluta og eru
því úrslitin að vissu leyti vonbrigði. Okkur grunaði þó
snemma í kosningabaráttunni að ef svo færi að B og D
næðu meirihluta bæjarfulltrúa að þeir flokkar myndu
byrja samtal sín á milli, enda líkar áherslur og lítið um
breytingar á stjórnun eða rekstri í þeirra málefnaskrám,“
segir Sigursveinn.
Þegar lokatölur úr Suðurnesjabæ
voru birtar virðist allt vera opið í
meirihlutamyndun. D-listi og B-listi
eiga í viðræðum um samstarf sam-
starf á komandi kjörtímabili og eru
viðræður á frumstigi. Fulltrúar
framboðanna funduðu á þriðju-
dagskvöld í Suðurnesjabæ. Nánari
fréttir af þeim fundarhöldum eru á
vef Víkurfrétta, vf.is.
Sjálfstæðismenn og óháðir fá þrjá
menn kjörna. Framboðið fékk 475
atkvæði eða 29,5%. Bæjarlistinn
fékk tvo menn kjörna. Framboðið
fékk 427 atkvæði eða 26,5% at-
kvæða. Samfylking og óháðir fengu
tvo menn kjörna. Framboðið fékk
404 atkvæði eða 25,1% atkvæða.
Framsóknarflokkurinn fékk tvo
menn kjörna. Framboðið fékk 18,9%
atkvæða en 304 greiddu framboðinu
atkvæði sitt. Auðir seðlar voru 43
og ógildir níu. Kjörsókn var 60,9%.
Allir vinni saman við
bæjarstjórnarborðið
Grunaði snemma að B og D
myndu byrja samtal sín á milli
Ræða meirihlutasamstarf Suðurnesjabæ
„Ég er mjög ánægður með þann
stuðning sem D-listinn fékk
í kosningunum og allan þann
fjölda sem heimsótti okkur og
við áttum í samskiptum við fyrir
kosningarnar,“ segir Einar Jón
Pálsson, oddviti Sjálfstæðis-
manna og óháðra, í Suðurnes-
jabæ.
„Niðurstaðan er að D-listinn
er enn stærsti flokkurinn í Suðurnesjabæ þrátt fyrir
að miklar breytingar hafi átt sér stað í aðdraganda
kosninga. Það var ljóst að baráttan um stuðninginn
yrði mikil enda mjög mikið af flottum fulltrúum að
bjóða sig fram og stefnumálin lík.
Við fulltrúar D-listans munum leggja okkur fram
að vinna að heilum hug fyrir íbúa Suðurnesjabæjar,
nú sem endranær. Á listanum er mikið af nýjum og
flottum fulltrúum sem hafa unnið gífurlega vel saman
og eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum fyrir sam-
félagið. Framtíð bæjarfélagsins er björt og það er
okkar allra að vinna að því að svo verði áfram,“ segir
Einar Jón.
D-listinn enn stærsti
flokkurinn í Suðurnesjabæ
Ákall eftir áherslum
Framsóknarflokksins
Framsókn sigurvegari í Reykjanesbæ
Lesið nánar um
kosningar á vefnum vf is
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM