Víkurfréttir - 18.05.2022, Page 4
„Ég er ánægð með að
við jukum við fylgi
okkar en hefði viljað
ná manni með mér.
Við háðum heiðarlega
kosningabaráttu og
tókum ekki þátt í skít-
kasti af neinu tagi þótt
spjótin beindust oft að
okkur á óvægin hátt,“
segir Ásrún Helga Kristinsdóttir,
oddviti Framsóknarflokks í
Grindavík.
„Mér finnst mikilvægt að milli
þeirra sem mynda meirihluta ríki
gagnkvæmt traust og virðing. Fólk
þarf að vera samkvæmt sjálfum sér
og samtaka í því að fylgja málum
eftir sem það stefndi að í kosninga-
baráttunni.
Fari það svo að við í
Framsókn förum ekki
i meirihluta þá hef ég
áhyggjur af því að mál
sem við lögðum áherslu
á og brunnum fyrir en
hinir flokkarnir ekki fái
ekki vægi.
Við höfum hitt fulltrúa
Miðflokksins en náðum
ekki saman um myndun meiri-
hluta, hins vegar kom hugmynd
frá mínum flokki að við kæmumst
að samkomulagi um samstarf á
breiðum grundvelli og bæjarstjórn
starfi án minni- og meirihluta sér-
staklega i ljósi þess að samstarf
milli flokka hefur verið gott í
Grindavík,“ segir Ásrún Helga.
Samstarf á breiðum grund-
velli og bæjarstjórn starfi
án minni- og meirihluta
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
„Þetta kom okkur á óvart.
Við höfum unnið alveg
gríðarlega vel á kjörtíma-
bilinu og ég fann að það
var meðbyr með okkur. Ég
gerði mér væntingar um
að ná inn öðrum manni
og að við yrðum tvö en
mig óraði ekki fyrir því að
við yrðum þrjú og sigur-
vegarar kosninganna. Langstærsti
flokkurinn,“ segir Didda, Hallfríður
Hólmgrímsdóttir, oddviti Mið-
flokksins í Grindavík. Miðflokk-
urinn var ótvíræður sigurvegari
bæjarstjórnarkosningar í bænum
og fékk þrjá bæjarfulltrúa. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk tvo, Fram-
sóknarflokkurinn einn og Rödd
unga fólksins einn.
Eruð þið að fara í meirihlutasam-
starf eða eru hin framboðin að raða
sér upp á móti ykkur?
„Ég vona nú að það sé einhver mis-
skilningur. Ég sá umræðu um þetta í
morgun. Ég ætla nú rétt að vona að
fólk eða flokkarnir hér í bæ séu að
fara gegn vilja fólksins. Ég
trúi því eiginlega ekki, ekki
fyrr en að það sé að fullu
reynt með meirihlutasam-
starf með Miðflokknum. Ég
ætla rétt að vona að þetta
sé bara stormur í vatns-
glasi.“
Eruð þið að ræða við ein-
hverja.
„Já, þetta er á viðkvæmu stigi. Það
er hægt að orða það þannig að það
séu þreifingar í gangi en ekkert verið
fundað formlega. Við teljum samt að
hinir flokkarnir eigi að líta til okkar í
samstarfi. Ég geri ráð fyrir að menn
reyni að ná saman við okkur áður en
þeir fara að reyna eitthvað annað. Ég
trúi ekki öðru en að það verði niður-
staðan að það fari fram formlegir
fundir með okkur áður en þeir fari
saman í sæng með hinum.“
Hvað skapaði þennan mikla
meðbyr sem þið fenguð?
„Ég held að þetta sé bara traust. Við
erum búin að vinna alveg ótrúlega
vel á kjörtímabilinu. Ég hef ein verið
í bæjarstjórninni frá Miðflokknum
og hef sýnt þessu staðfestu. Ég hef
staðið í lappirnar og kannski aðeins
staðið í meirihlutanum stundum. Ég
styð öll góð málefni en þegar mér
finnst að einhverjum málaflokki
vegið þá stend ég fast í lappirnar
og gef ekki tommu eftir. Þá er ég
kannski helst að vísa í leigumálin í
Víðihlíð sem var mikið réttlætismál.
Svo stóð ég þversum í kokinu á þeim
í launaumræðunni og svo öll þessi
smáu mál. Þetta er bara traust sem
fólk ber til okkar, mín og fólksins á
listanum.·
Nú hefur stuðningur við Mið-
flokkinn verið að minnka á lands-
vísu, þannig að staðan í Grindavík
er svolítið á móti straumnum.
„Ég er alltaf á móti straumnum. Við
erum sér framboð hérna. Kjósendur
eru að kjósa fólkið á listanum. Margir
hafa verið að kjósa Miðflokkinn en
mikið til var þetta líka bara fólk að
kjósa okkur frambjóðendur á list-
anum.“
„Við erum
þakklát
fyrir að hafa
haldið okkar
manni inni og
varðandi meiri-
hlutaviðræður
þá eru þreif-
ingar í gangi
en engar form-
legar viðræður byrjaðar,“ segir
Helga Dís Jakobsdóttir, oddviti
Raddar fólksins í Grindavík, spurð
út í úrslit sveitarstjórnarkosninga
í Grindavíkurbæ.
Miðflokkurinn vann stórsigur
í bæjarstjórnarkosningunum í
Grindavík. Flokkurinn fékk 32,4%
atkvæða og þrjá menn kjörna. Talin
voru 1623 atkvæði en kjörsókn var
64,1%.
B-Listi Framsóknarflokks 324
atkvæði (20,2%) og einn mann
kjörinn. D-Listi Sjálfstæðisflokks
397 atkvæði (24,8%) og tvo menn
kjörna. M-listi Miðflokks 519 atkvæði
(32,4%) og þrjár menn kjörna. S-listi
Samfylkingar 149 atkvæði (9,3%) og
engan mann kjörinn. U-listi Raddar
unga fólksins 212 atkvæði (13,2%) og
einn mann kjörinn.
Auðir seðlar voru tuttugu og
ógildir voru tveir.
Í Sveitarfélaginu Vogum féll meiri-
hluti E-listans. Greidd voru 653
atkvæði í sveitarstjórnarkosning-
unum sl. laugardag af 1039 á kjör-
skrá en kjörsókn var 62,8%.
D-listi fékk 242 atkvæði (39,1%)
og þrjá menn kjörna. Listinn vinnur
einn mann. E-listi fékk 229 atkvæði
(37,0%) og þrjá menn kjörna. Listinn
tapar einum manni. L-listi fékk 148
atkvæði (23,9%) og fær einn mann
kjörinn.
Auðir seðlar voru tuttugu og fimm
og ógildir voru níu.
Birgir Örn Ólafsson, odd-
viti E-listans í Sveitar-
félaginu Vogum, segir
það vera fyrsta verkefnið
eftir kosningar að ræða
mögulegan nýjan meiri-
hluta við sjálfstæðismenn
í Vogum. E-listinn missti
hreinan meirihluta sinn til
átta ára í kosningunum á
laugardaginn.
Voru vonbrigði á missa meiri-
hlutann?
„Jú, vissulega. Það eru alltaf von-
brigði að missa meirihluta. Hafandi
verið með hreinan meirihluta í tvö
kjörtímabil þá eru þetta viðbrigði.“
Eru þreifingar í gangi?
„Menn eru aðeins búnir að þreifa.
Við höfum tekið spjallið og gerðum
það fljótlega eftir að niður-
stöður lágu fyrir. Við ætlum
að hittast og taka ákvörðun
um hvort við ætlum í
meirihlutaviðræður. Það
er næst á dagskrá að við og
sjálfstæðismenn taki fyrsta
samtalið.“
Birgir segir spennandi
tíma framundan í sveitar-
félaginu og fólk sé að kalla eftir góðri
samvinnu. „Það hefur verið mjög
góð samvinna milli listanna síðasta
kjörtímabil og við eigum ekki von á
öðru en það haldi áfram. Við erum
í spennandi umhverfi hér í Sveitar-
félaginu Vogum eins og annars-
staðar á Suðurnesjum. Það er mikil
uppbygging og jákvætt framundan,“
segir Birgir Örn Ólafsson, oddviti
E-listans í Vogum.
„Ég er bara mjög sáttur
við úrslit kosninganna.
Okkar ósk var að það yrði
ekki hreinn meirihluti
hjá neinu framboðanna
og það gekk eftir,“ segir
Kristinn Björgvinsson,
oddviti L-listans, Lista
fólksins, í Sveitarfélaginu
Vogum.
L-listinn hélt sínum manni í bæjar-
stjórn Sveitarfélagsins Voga og jók
fylgi sitt um rúmlega „Það vantaði
ekki nema um fimm atkvæði að við
næðum öðrum manni inn, sem er
að sjálfsögðu örlítil vonbrigði, en
við göngum sátt frá kosningunum
og ánægð með það traust sem við
hlutum og ætlum að gera
okkar besta hvort heldur
ef það er í meirihluta eða
minnihluta,“ segir Kristinn.
Kristinn segist engar
fréttir hafa af meirihluta-
viðræðum þegar Víkur-
fréttir heyrðu í honum um
hádegisbil á mánudag. „ÉG
veit ekki hvort E- og D-listi
séu að ræða saman og ætli að mynda
sex manna meirihluta. Það hefur
allavega enginn haft samband við
okkur ennþá. Við erum bara spök og
sjáum hvað tíminn leiðir í ljós,“ segir
hann að endingu. L-listinn hafi ekki
ennþá boðið D- eða E-listanum upp
í pólitískan dans.
„Teljum að hinir flokkarnir eigi
að líta til okkar í samstarfi“
„Þakklát fyrir
að halda okkar
manni inni“
– segir Hallfríður Hólmgrímsdóttir, oddviti Miðflokksins í Grindavík
Miðflokkurinn sigurvegari með
þriðjung atkvæða í Grindavík
Göngum sátt frá kosningunum
Vonbrigði að missa meirihluta
Meirihlutinn fallinn í
Sveitarfélaginu Vogum
vf is
Lesið nánar um
kosningar á vefnum
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM