Víkurfréttir - 18.05.2022, Page 8
Milan Stefán Jankovic flúði yfirvofandi stríð í Júgóslavíu og kom til Grindavíkur fyrir 30 árum síðan.
„Það var mjög skrítið að vera í Júgóslavíu á þessum tíma, í liðinu mínu voru Serbar, Króatar,
Slóvenar o.fl. en okkur leið öllum eins og Júgóslövum – en allt í einu breyttist allt.“
„Hva’ er í gangi í rúglinu?“ (við-
komandi þarf að hafa talað við
Jankó eða heyrt hann í viðtali en ís-
lenska hans er skemmtilega bjöguð
... hann virðist ekki geta sagt U, allt
með U-i breytist í Ú og því ákvað
greinarhöfundur að skrifa t.d. orðið
rugl sem rÚgl í þessari grein, til að
reyna ná mállýsku Jankós.)
Milan Jankovic þarf ekki að kynna
fyrir knattspyrnuáhugafólki, hið
minnsta þeim sem hafa fylgst með
íslenskri knattspyrnu síðan 1992
en þá kom þessi geðþekki Júgóslavi
til Grindavíkur til að leika með liði
knattspyrnudeildar Grindavíkur sem
þá var í næstefstu deild. Á þessum
tíma var heldur betur byrjað að
krauma undir niðri í Júgóslavíu eins
og landið hét þá og stuttu síðar hófst
borgarastyrjöld og braut Júgóslavíu
upp í nokkrar þjóðir.
Sökum ástandsins í gamla heima-
landinu þá tóku Milan og Dijana,
konan hans, ásamt börnunum Marko
og Jovana, ákvörðun um að setjast
að á Íslandi og gerast íslenskir ríkis-
borgarar. Þá var reglan sú að taka
þurfti upp íslenskt nafn og bættust
þessi nöfn við fjölskylduna; Milan
Stefán, Dijana Una, Jovana Lilja og
Marko Valdimar.
Jovana, sem er fædd árið 1985, býr
í Þýskalandi ásamt unnusta sínum,
Arnóri Þór Gunnarssyni, og eiga þau
tvö börn. Arnór fór til Þýskalands til
að leika handbolta og er ennþá að
spila í Þýskalandi.
Marko, sem er fæddur árið 1990,
býr í Noregi í dag ásamt barnsmóður
sinni, Berglindi Ýr Hrafnsdóttur,
og eiga þau tvö börn. Marko fór til
Noregs til að leika knattspyrnu og
er að þjálfa þar í dag.
Frá því að Milan, þessi goðsagn-
arkenndi knattspyrnumaður og
þjálfari, kom til Íslands hefur hann
alltaf verið kallaður Jankó en í dag
gegnir hann starfi aðstoðarþjálfara
fyrstu deildarliðs Grindvíkinga auk
þess sem hann sér um alla afreks-
þjálfun. Fróðir menn segja að vand-
fundinn sé betri þjálfari á grasinu.
Víkurfréttir settust niður með
Jankó og röktu úr honum garnirnar.
Ungur og upprennandi leikmaður
„Ég er fæddur 1960 í Júgóslavíu, n.t.t.
í Zagreb í Króatíu, en er Serbi frá
Bosníu. Ástæða þess að móðir mín
fæddi mig í Zagreb er að eldri systir
mín dó í fæðingu í Bihac í Bosníu
en þar var ekki eins gott sjúkrahús
eins og í Zagreb og mamma vildi
ekki taka neina áhættu. Við bjuggum
alltaf í Bihac og þar byrjaði ég að
spila fótbolta.“
Jankó gekk vel og var fljótlega
orðinn fyrirliði liðsins þrátt fyrir
ungan aldur. Hann vakti mikla eftir-
tekt og stórliðið Rauða stjarnan frá
Belgrad keypti hann þegar hann
var einungis tuttugu ára gamall. Á
þessum árum var Rauða stjarnan
stórt lið á evrópskan mælikvarða
og t.d. varð liðið Evrópumeistari
meistaraliða árið 1991 (í dag er
þetta Meistaradeildin, Champions
League). Erfitt var að komast í aðal-
liðið á þessum tíma og Jankó spilaði
með varaliðinu. Rauða stjarnan vildi
gera samning við hann til fjögurra
ára og lána hann á meðan hann öðl-
aðist reynslu en Jankó vildi leita á
önnur mið og gekk aftur til liðs við
gamla liðið í heimabænum, Bihac.
Fljótlega var hann búinn að taka
við fyrirliðabandinu, átti þrjú mjög
góð ár og vakti athygli annarra liða
– gat valið úr nokkrum tilboðum og
tók að lokum ákvörðun um að ganga
til liðs við Osjek í Króatíu. Þetta var
árið 1984 og hann lék í sjö ár með
liðinu, til ársins 1991. Athyglisvert
að þegar hann samdi við Osjek fékk
hann íbúð sem hluta af laununum
og einhvern pening líka en þetta var
fyrir tíma „Bosman-samningsins“
(eftir að belgíski knattspyrnumað-
urinn Jean-Marc Bosman fór í mál
við liðið sem hann var runninn út
af samningi hjá, þá breyttist landslag
knattspyrnufólks gríðarlega og þeir
voru ekki lengur „eign“ liðsins eftir
að samningur rann út) og þegar lið í
Júgóslavíu báru víurnar í Jankó sagði
Osjek að Jankó þyrfti að skila íbúð-
inni ef hann myndi yfirgefa liðið! Þar
sem Dijana konan hans var komin í
góða vinnu í banka ákváðu þau að
búa áfram í Osjek.
Á þessum tíma var ungur og ansi
upprennandi leikmaður að koma
upp hjá Osjek, Davor Suker, en
hann átti eftir að verða einn besti,
ef ekki sá besti sóknarmaður heims,
lék m.a. með Real Madrid á Spáni.
Jankó hefur haldið góðum kynnum
við hann allar götur síðan og þegar
Suker, sem er Króati og gegndi
stöðu formanns króatíska knatt-
spyrnusambandsins um tíma, kom
til Íslands þegar þjóðirnar mættust
þá hittust gömlu liðsfélagarnir að
sjálfsögðu.
Jankó lék það vel á þessum tíma
að hann var á leiðinni með lands-
liði Júgóslavíu í lokakeppni HM
‘90 á Ítalíu en á þessum tíma voru
Júgóslavar á meðal bestu knatt-
spyrnuþjóða heims og voru taldir
líklegir til afreka á HM ‘90. Sumir
myndu segja að það sé hreinlega
magnað að Jankó skyldi vera í þeim
hópi, og sýni hversu frábær knatt-
spyrnumaður hann var, fyrst hann
var á leiðinni með liði Júgóslavíu
á HM en í liðinu voru t.d. Dejan
Savicevic og Zvonimir Boban sem
voru lykilleikmenn ítalska stórliðsins
AC Milan. Jankó var sem sagt á leið-
inni á stærsta íþróttamót heims en
nokkrum mínútum fyrir leikslok í
síðasta leik tímabilsins 1989, reið
ógæfan yfir:
„Ég var búinn að spila mjög vel
þetta tímabil, var valinn besti varn-
armaðurinn í júgóslavnesku deild-
inni og nokkur lið í Evrópu voru
að skoða mig, m.a. frá Frakklandi
og Grikklandi. Ég var kominn í 24
manna HM-hópinn og allt leit vel út
en í síðasta leiknum, þegar nokkrar
mínútur voru eftir, þá áttum við
horn og ég hoppaði upp í skallabolta
en sneri hnéið á mér þegar ég lenti
og sleit krossbönd. Á þessum tíma
þýddi það níu til tólf mánuði frá fót-
bolta og því fór HM-draumurinn.
Ég var frá allt næsta tímabil (‘90
tímabilið) en ‘91 gat ég byrjað
aftur að spila.“
Um þetta leyti, í kringum
1990, fann Jankó, ásamt öðrum
Júgóslövum, að eitthvað slæmt
lá í loftinu. Júgóslavía var stofnað
sem sambandsríki í kjölfar seinni
heimsstyrjaldarinnar og saman-
stóð af sex lýðveldum; Bosníu-
Hersegóvínu, Króatíu, Makedóníu,
Svartfjallalandi, Serbíu og Slóveníu.
Landið gekk í gegnum mikið hag-
Ég var búinn að
spila mjög vel
þetta tímabil, var valinn
besti varnarmaðurinn í
júgóslavnesku deildinni
og nokkur lið í Evrópu voru
að skoða mig, m.a. frá
Frakklandi og Grikklandi.
Ég var kominn í 24 manna
HM-hópinn og allt leit vel út ...
Sigurbjörn Daði Dagðbjartsson
sigurbjornd@gmail.com
Jankó á fyrsta ári sínu með Grindavíkingum.
Jankó vakti mikla eftirtekt og stórliðið Rauða stjarnan frá Belgrad
keypti hann þegar hann var einungis tuttugu ára gamall.
Á þessum árum var Rauða stjarnan stórt lið á evrópskan mælikvarða
og t.d. varð liðið Evrópumeistari meistaraliða árið 1991.
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM
„Ég er Serbi frá Bosníu – fæddur í Króatíu
en ég hef alltaf litið á mig sem Júgóslava“