Víkurfréttir - 18.05.2022, Page 10
Kamilla Ósk Jensdóttir er átján
ára Keflvíkingur sem býr í Njarð-
vík. Kamilla er á íþrótta- og
lýðheilsubraut í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og er fótboltaþjálfari
hjá Keflavík. Hennar stærsta
áhugamál er að safna Crocs
skóm en hún á alls tólf pör.
Kamilla Ósk er FS-ingur vikunnar.
Á hvaða braut ertu?
Ég er á íþrótta- og lýðheilsubraut.
Hver er helsti kosturinn við FS? Helsti
kosturinn við FS er fólkið og forseti í
eyðum.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Líklegastur til að
vera frægur er Helgi Rúnar Hafsteinsson,
hann verður frægur á TikTok einn daginn.
Skemmtilegasta sagan úr FS:
Skemmtilegasta sagan úr FS er þegar
Ásgeir kennari lét okkur fara í planka í
tíma því við vorum ekki að hlusta á hann.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Auðvelt svar, ég er klárlega fyndnasta
manneskja FS.
Hver eru áhugamálin þín? Helstu
áhugamál mín eru að safna Crocs, þjálfa
og Road Trip með vinum.
Hvað hræðistu mest? Tásur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Ég á ekkert uppáhaldslag en ég elska
Bubba og eiginlega allt með honum, svo
er alltaf gaman að öskra Only Love Can
Hurt Like This með Paloma Faith ein í bíl.
Hver er þinn helsti kostur? Minn helsti
kostur er að mér er alveg sama hvað
öðrum finnst.
Hver er þinn helsti galli? Minn helsti galli
er að ég er rosalega óþolinmóð og verð
pirruð yfir minnstu hlutum.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Ég nota TikTok mjög mikið.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Þegar fólk er ekki feimið og þegar
það er auðvelt að tala við þau.
Hver er stefnan fyrir framtíðina? Ég
stefni á að finna mér vinnu sem ég hef
gaman af.
Ef þú ættir að lýsa sjálfri þér í einu orði
hvaða orð væri það? Ákveðin.
FS-ingur vikunnar: Kam
illa Ósk Jensdóttir
Ung(m
enni) vikunnar: Viktor Garri
Viktor Garri Guðnason er fjór-
tán ára og kemur frá Njarðvík.
Hann er metnaðarfullur körfu-
boltakappi sem hefur gaman af
fjallahjólreiðum og líkamsrækt.
Eftir grunnskóla langar Viktori að
mennta sig og stefnir hann á að
verða bæklunarskurðlæknir. Viktor
Garri er ungmenni vikunnar.
Í hvaða bekk ertu? Ég er í 8. bekk.
Í hvaða skóla ertu? Njarðvíkurskóla.
Hvað gerir þú utan skóla?
Fyrir utan skóla fer ég á körfuboltaæf-
ingar og styrktaræfingar.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Skemmtilegasta fagið er íþróttir.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna? Patrik Joe
Birmingham er líklegastur til að verða
frægur því hann er svo góður í körfu.
Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Skemmtilegasta sagan er þegar vinur
minn kastaði óvart kústi í brunabjölluna.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Fyndnastur í skólanum er Gunnar Páll.
Hver eru áhugamálin þín? Áhugamálin
mín eru körfubolti, fjallahjól og líkams-
rækt.
Hvað hræðistu mest?
Ég hræðist rottur og mýs mest.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Mér finnst eiginlega bara allt fínt.
Hver er þinn helsti kostur? Mínir helstu
kostir eru að ég er hreinskilinn, opinn og
sjálfstæður.
Hver er þinn helsti galli? Minn helsti galli
er að vera óþolinmóður.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Mest notuðu forrit í símanum
mínum er TikTok og Snapchat.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Mér finnst besti eiginleiki í fari fólks
vera heiðarleiki.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Eftir grunnskóla langar mig að mennta
mig og verða bæklunarskurðlæknir.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Ef ég ætti að lýsa
mér í einu orði væri það metnaðarfullur.
Elskar Crocs
Metnaðarfullur
körfuboltakappi
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
Hvað segja ungir frambjóðendur í Reykjanesbæ að afloknum sveitarstjórnarkosningum?
„Ungmenni þurfa að skilja hvað það er
mikilvægt að hafa góða bæjarstjórn“
Þórarinn Darri Ólafsson:
„Fyrir það fyrsta þá held ég að
það mætti fjölga kjörstöðum
innan bæjarfélagsins og svo held
ég að ungt fólk fatti ekki hvað
þetta er mikilvægt og kemur
þeim mjög mikið við og taki lýð-
ræði sem sjálfsögðum hlut,“ segir
Þórarinn Darri Ólafsson, einn af
yngstu frambjóðendunum í ný-
afstöðnum sveitarstjórnarkosn-
ingum, þegar hann var spurður út
í hvers vegna yngsta fólkið skilaði
sér ekki nógu vel á kjörstað.
Þórarinn Darri skipaði 11. sæti á
lista Beinnar leiðar. Hann ákvað að
fara í framboð til þess að vera rödd
ungs fólks í bænum og vegna breyt-
inga sem hann telur vera þarfar en
hvaða breytingar vill hann sjá?
„Sem dæmi finnst mér þurfa fleiri félagsmiðstöðvar
í Reykjanesbæ. Þar sem að við erum aðeins með eina
slíka. Fyrir þá krakka sem búa til dæmis í Innri-Njarðvík
er bara svaka „mission“ að komast í Fjörheima. Einnig
þá finnst mér þurfa að bæta fjárhag til menningarmála
þar sem okkur vantar húsnæði sem allskonar klúbba
starfsemi getur verið í fyrir krakka sem finna sig kannski
ekki í íþróttum en vilja fara eitthvert og kynnast öðrum
krökkum,“ segir Þórarinn Darri.
Aðspurður hver tilfinning hans væri fyrir þátttöku og
kjörsókn ungmenna í Reykjanesbæ segir hann að „margir
hafi verið með í umræðunni en mætingin á kjörstað
var því miður ekki jafn góð.“ Þórarinn Darri segir ungt
fólk taka kosningarétti sem sjálfsögðum hlut en leggur
áherslu á að „það að hafa réttinn til að ákveða hver stýri
landinu eða bænum er alls ekki sjálfsagt.“
Guðmundur Rúnar Júlíusson:
„Ungmenni þurfa að taka þátt í umræðunni og
mæta á kjörstað því þetta hefur áhrif á þau eins
og alla aðra. Tilfinning mín er sú að þátttaka
ungmenna er því miður ekki nógu góð,“ segir
Guðmundur Rúnar Júlíusson en hann var einnig
meðal yngstu frambjóðenda í nýafstöðnum
sveitarstjórnarkosningum.
Guðmundur Rúnar skipaði 16. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur áhuga á pólitík
og var boðið að vera á lista hjá flokknum. „Það
var ekkert annað í stöðunni en að segja já og ég
sé alls ekki eftir því. Ég hef lært mikið og kynnst
frábæru fólki,“ segir hann.
Guðmundur Rúnar telur ungt fólk ekki
gera sér grein fyrir hversu
skemmtileg og lærdómsrík
pólitík geti verið og
hvetur ungt fólk til að
kynna sér stefnur flokk-
anna og mæta á viðburði hjá
þeim.
Þá telur hann að kynna þurfi
framboðin fyrir ungmennum
með áhugaverðum hætti
til að vekja áhuga þeirra.
„Það þarf einnig að gefa
ungu fólki kost á því að
hafa áhrif á stefnuskrá
flokkanna,“ segir hann
og bætir við „ung-
menni þurfa að skilja
hvað það er mikilvægt
að hafa góða bæjar-
stjórn.“
Störf hjá
Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum heimasíðu
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Ævintýrasmiðja - Sumarstarf
Leikskólinn Tjarnasel - Leikskólakennarar
Njarðvíkurskóli - Kennari
Háaleitisskóli - Námsráðgjafi
Háaleitisskóli - Grunnskólakennari á mið- og elsta stig
Velferðarsvið - Búsetuúrræði fyrir fatlaða
Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna.
Velferðarsvið - Stuðningsfjölskyldur
Velferðarsvið - Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks
Sumarstörf fyrir ungmenni með stuðningsþarfir
Starf við liðveislu
Reykjanesbær - Almenn umsókn
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM