Víkurfréttir - 18.05.2022, Qupperneq 11
Úrslit kosninga í Suðurnesjabæ 2022
Jón Norðfjörð, fyrrverandi framkvæmdastjóri Kölku.
Það er vissulega algengt að óvæntir
hlutir gerist þegar kosningar eru ann-
ars vegar. Um það er hægt að nefna
fjölmörg dæmi. Oft og tíðum er ekki
alltaf allt sem sýnist. Ég held að það
megi segja það um nýliðnar kosningar
í Suðurnesjabæ.
Að loknum kosningum núna er
ágætt að reyna að greina niðurstöðuna.
Ég sendi frá mér grein fyrir kosningar
og spáði fyrir um úrslit sem mér fannst
vera líkleg á þeim tíma sem ég skoðaði
málið. Þegar nær dró kosningum þá
fannst mér að spáin mín gæti breyst á
þann veg að D-listinn mundi auka fylgi
sitt og ná fjórða manni inn á kostnað
S-listans, sem mundi þá fá tvo full-
trúa. Ég var þá enn þeirrar skoðunar
að B-listinn mundi fá tvo fulltrúa og
O-listinn mundi fá einn. Sjónarmið mín
byggði ég á mörgum samtölum við fólk
svo og þátttöku kjósenda í fjölmörgum
viðburðum sem framboðin auglýstu.
En ég endurtek, ekki er allt sem sýnist.
Eins og fram kom í áðurnefndri grein
minni, klofnaði D-listinn eftir að sam-
þykkt var að sameinast H-listanum og
tekin var ákvörðun af þeim sem ósáttir
voru um að bjóða fram nýtt framboð,
O-listann. Í svargrein sem forystufólk
O-listans sendi frá sér vegna greinar
minnar og bar fyrirsögnina „Véfréttin
Jón Norðfjörð“, höfnuðu þau fullyrð-
ingu minni um þessa óánægju. Ég vil
aðeins segja um þetta, að ég stend við
það sem ég skrifaði um klofninginn og
óánægjuna, enda hefur þetta komið
alveg skýrt fram í samtölum við mig
og fleiri aðila sem hafa sömu sögu að
segja.
Árið 2018 mynduðu meirihluta
D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra
og Samfylkingin sem bauð fram undir
merki J-lista, Jákvæðs samfélags.
D-listinn fékk þá þrjá fulltrúa og J-list-
inn fékk einnig þrjá fulltrúa. Þannig
hafði meirihluti sjálfstæðismanna og
Samfylkingar sex fulltrúa af níu full-
trúum í fyrstu bæjarstjórninni í Suður-
nesjabæ. Með góðum rökum má segja
að í kosningunum nú hafi meirihlutinn
alls ekki fallið, heldur einungis misst
einn fulltrúa og hafi nú fimm fulltrúa í
stað sex áður. Í minnihluta 2018 voru
H-listi, Listi fólksins með tvo fulltrúa
og B-listi Framsóknar og óháðra sem
fékk einn fulltrúa.
B-listi Framsóknar bætir við sig rúm-
lega 28% fylgi frá kosningunum 2018
og fær tvo fulltrúa í stað eins 2018.
Fylgi D-lista Sjálfstæðismanna
minnkar um rúmlega 4% þrátt fyrir að
hafa sameinast H-listanum. Ef reiknað
er út frá samanlögðu fylgi D og H lista
2018, þá hefur fylgið minnkað um
39%. Þeir fá þrjá fulltrúa nú en fengu
saman fimm fulltrúa 2018.
Fylgi Samfylkingar, S-listans (áður
J-listans), minnkar um 3,8% og fær
listinn tvo fulltrúa, en fékk þrjá 2018.
Svo er það O-
listinn sem fær
26,5% fylgi og tvo
fulltrúa. Þetta fylgi
kom mörgum á
óvart, ekki síst for-
ystumanni D-list-
ans, Einari Jóni
Pálssyni, sem virtist undrandi í viðtali
við Víkurfréttir og sagðist hafa átt von
á meiru. Ég tek undir með Einari Jóni,
fylgi O-listans kom á óvart og í mínum
huga er alveg ljóst að óánægjan með
sameiningu D- og H-lista hefur verið
víðtækari meðal sjálfstæðisfólks en
margir gerðu ráð fyrir. Þetta virðist þá
hafa farið nokkuð leynt í aðdraganda
kosninganna. Það er nefnilega ekki
alltaf allt sem sýnist.
Nú er að sjá hverju fram vindur, við-
ræður D- og B-lista um meirihlutasam-
starf eru nú í gangi ef marka má fréttir
og fróðlegt að sjá hvert það leiðir.
Að endingu óska ég nýjum bæjarfull-
trúum velfarnaðar.
Bestu kveðjur.
Skoðum atkvæðatölur kosninga 2018 og 2022:
2018 2022
B-listi 237 atkvæði 304 atkvæði
D-listi 496 atkvæði 475 atkvæði 2018 fengu D- og
H-listar samtals
779 atkvæðiH-listi 283 atkvæði
J-listi 420 atkvæði
O-listi 427 atkvæði 2022 fengu D-
og O-listar sam-
tals 902 atkvæði
S-listi 404 atkvæði
Bílskúr óskast
Bílskúr óskast í Keflavík/
Suðurnesjum. Verð 5-10 mill.
Bil eða frístandandi.
Gunnar Davíðsson
+4791676990
eða gunnidabb@gmail.com
Garðaúðun Reynis Sig.
• 22 ára reynsla.
• Úðunartímabil; u.þ.b. 15. maí
til 5. júlí.
• Við þjónustum í Hafnarfirði,
Garðabæ, Kópavogi, Borgar-
firði og víðar.
• Við úðum garða og tré í
öllum stærðum.
• Við tökum að okkur að taka
geitungabú og einnig stærra
hreiður. Úðum líka fyrir
kóngulóm.
SMáauglÝSiNgar
Sýnum
samstöðu
fyrir bæinn
okkar!
Þá eru kosningar afstaðnar, við Pí-
ratar og óháðir þökkum þeim sem
studdu okkur kærlega fyrir stuðn-
inginn og að mæta á kjörstað.
Kosningarnar fóru ekki alveg
eins og við vildum en við erum ekki
hætt, verðum áfram í andspyrnu
varðandi málefni sem eru umdeild
og varða íbúa.
Það fyrsta er öryggisvistun, við
erum ekki á móti henni en staðar-
valið þarf að henta slíkri starfsemi
og þarf að vera í sátt við íbúana,
þeir eiga að fá að segja sitt varðandi
málið og tekið sé mark á þeirra af-
stöðu og hún virt.
Annað málið varðar kísilverið,
það þarf að vera algerlega á hreinu
að samið verði um niðurrif þess
með góðu eða illu, munum aldrei
sætta okkur við þetta drasl.
Þriðja málið er varðandi hug-
myndir Sorpu um að Kalka verði
stækkuð svo vel að hún geti annað
öllu sorpi af suðvesturhorninu ef
ekki meira, það er ekki gæfulegt
né minnkar vistsporið að flytja
ruslið eftir Reykjanesbrautinni
fram og til baka, tala nú ekki um þá
mengun sem getur stafað af þessu
sorpi þegar verksmiðjan getur ekki
annað öllu á stuttum tíma og sorpið
safnast upp. Treysti engu varðandi
þetta sorpbrennslumál.
Fjórða málið er svo „hringrásar-
hagkerfi“ þar sem bæjaryfirvöld
skrifuðu undir viljayfirlýsingu varð-
andi ál endurvinnslu í Helguvík við
„dótturfélag“ Almex USA eða mann
fyrir þeirra hönd sem hefur verið í
forsvari fyrir fyrirtæki sem fór m.a.
í gjaldþrot sl. sumar, var áður með
önnur slík fyrirtæki. Ég velti fyrir mér
hvort við séum að fá svipað mál og
með kísilverið og forsvarsmann þess?
Hvernig datt einhverju fyrirtæki í
Ameríku í hug að fara af stað með ál-
endurvinnslu hér? Var það þessi sem
skrifaði undir viljayfirlýsinguna sem
er potturinn og pannan í þessu?
Andstaða gegn þessu verður
fyrst á dagskrá á komandi vikum,
íbúar eiga að fá nákvæmar upp-
lýsingar um þessi málefni, kosti og
galla og fá svo að kjósa í bindandi
kosningu um þessi mál.
Við fórum um hverfin, sáum
margt sem hefur verið lagað og bætt
en einn staður virðist gleymast en
það eru Hafnirnar, það þarf að mal-
bika göturnar þar, koma upp göngu-
stígum og laga/bæta leiksvæðið þar
fyrir börnin. Þar býr einnig kona
með fötlun sem kemst ekki frá húsi
sínu upp á veg þar sem það strandar
á að setja malbikaðan stíg frá húsi
upp á veg sem hún er ekki í aðstöðu
til að gera sjálf en ætti að vera lítið
mál fyrir bæinn svo hún geti notið
örlítið betri lífsgæða. Bæjaryfirvöld
mega ekki gleyma að Hafnir eru
hluti af Reykjanesbæ.
Fh. Pírata og óháðra,
Ragnhildur L. Guðmundsdóttir
Margrét Þórólfsdóttir
Ógnar stefna stjórnvalda
raforkuöryggi á Suðurnesjum?
Sveitarfélagið Vogar hefur nú til um-
fjöllunar umsókn Landsnets hf. um
framkvæmdaleyfi til lagningar Suð-
urnesjalínu 2. Sveitarstjórnin hafði
áður tekið umsóknina til umfjöllunar
og synjað henni en úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála felldi þá
ákvörðun úr gildi og málið því að nýju
til umfjöllunar innan sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn ákvað í kjölfar þessa úr-
skurðar að ráða sérstakan verkefna-
stjóra til að rýna sérstaklega og fara
yfir þær ábendingar, athugasemdir og
ávirðingar sem fram komu í úrskurði
nefndarinnar. Einnig var ákveðið að
fara þess á leit við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands að greind yrði náttúru-
og eldgosavá innan sveitarfélagsins
með tilliti til jarðhræringa og eldsum-
brota á Reykjanesi 2021.
Nú liggja fyrir niðurstöður Jarðvís-
indastofnunar sem bendir á að í ljósi
þess að nýtt tímabil eldsumbrota sé
hafið á Reykjanesi sé mat á áhættu
gjörbreytt. Jafnframt er sýnt fram á
það að tillaga Landsnets um að Suð-
urnesjalína 2 verði lögð samsíða Suð-
urnesjalínu 1 sé ekki skynsamleg ráð-
stöfun. Ljóst er að bæði út frá hættu á
hraunflæði og s.k. höggunarhreyfinga
sé ekki skynsamlegt að allur orku-
flutningur til og frá landshlutanum
sé á tveimur loftlínum sem eru lagðar
samsíða.
Sveitarfélagið Vogar samþykkti
árið 2014 framkvæmdaleyfi fyrir
Suðurnesjalínu 2 en það mál endaði í
kærumálum og dómsmálum sem lykt-
aði með að leyfisveitingin var dæmd
ógild í Hæstarétti árið 2016. Í dómnum
kom m.a. fram það álit Hæstaréttar að
Landsnet hefði ekki lagt nægjanlegt
mat á aðra valkosti en að leggja loft-
línu. Í kjölfarið hóf því Landsnet vinnu
að nýju við umhverfismat, og setti á
laggirnar verkefnaráð sem haft skyldi
samráð við um vinnslu valkostagrein-
ingarinnar. Þeirri vinnu lauk með sömu
niðurstöðu, þ.e. Landsnet lagði áfram
til valkost C, þ.e. að Suðurnesjalína 2
yrði loftlína samhliða Suðurnesjalínu 1.
Á vettvangi verkefnaráðs voru aðrir
valkostir vandlega skoðaðir en jafnan
voru viðbrögð Landsnets við öðrum
valkostum þau að fyrirtækinu bæri
skylda til að fara eftir stefnu stjórn-
valda um flutningskerfi raforku.
Valkostagreining Landsnets var í
kjölfarið send m.a. til Skipulagsstofn-
unar, sem gaf út það álit að skynsam-
legt væri að fylgja valkosti B, þ.e. að
leggja línuna sem jarðstreng samhliða
Reykjanesbraut. Sveitarfélagið Vogar
hefur á öllum stigum málsins lagt til
að strengurinn yrði lagður í jörð, helst
meðfram Reykjanesbraut en til vara
meðfram Suðurnesjalínu 1.
Í upphafi árs 2021 hófst mikil jarð-
skjálftahrina á Suðurnesjum. Þann 19.
mars hófst síðan eldgos í Fagradals-
fjalli sem stóð í sex mánuði. Öllum
má ljóst vera að sú staðreynd að jarð-
skjálftahrina hefur gengið yfir, og að
eldgos átti sér stað, hlýtur að gjör-
bylta öllum fyrri forsendum um lagn-
ingu háspennulínu um svæðið. Niður-
staða Jarðvísindastofnunar er nokkuð
ótvíræðar hvað þetta varðar, og því
má með rökum nú segja að óskynsam-
legt sé að leggja Suðurnesjalínu 2 sem
loftlínu meðfram Suðurnesjalínu 1.
Í ljósi niðurstöðunnar sé það einfald-
lega of mikil áhætta sem því fylgir, og
því skynsamlegt að leita leiða til að
dreifa áhættunni þannig að afhending
raforku til og frá landshlutanum verði
tryggð með minnstri áhættu, auk þess
sem tryggt verði nægjanlegt framboð
af raforku á svæðinu.
Stefna stjórnvalda sem áður hefur
verið nefnd og Landsneti er skylt að
fara eftir, byggir á þingsályktun um
stefnu stjórnvalda um lagningu raf-
lína, og var samþykkt á Alþingi 28.
maí 2015. Ný þingsályktunartillaga var
samþykkt á Alþingi þann 11. júní 2018,
þ.e. þingsályktun um stefnu stjórn-
valda um uppbyggingu flutningskerfis
raforku. Í þessari þingsályktun var
gefinn upp boltinn um endurskoðun
á stefnu stjórnvalda frá árinu 2015 og
tilgreint sérstaklega að þessi þings-
ályktun skyldi tekin til endurskoð-
unar á haustþingi 2019. Ekkert varð
úr þeirri fyrirætlan og því gildir enn
áðurnefnd þingsályktun frá 2015 sem
stefna stjórnvalda.
Þrátt fyrir að áform um lagningu
Suðurnesjalínu 2 hafi verið til umfjöll-
unar í fjölda mörg ár, með tilheyrandi
þrætum og flækjum, hefur frumkvæði
Alþingis um að taka stefnu stjórnvalda
til endurskoðunar verið lítið sem ekk-
ert, ef frá er talin áðurnefnd þings-
ályktun sem samþykkt var árið 2018
en dagaði síðan upp í þinginu. Það eina
sem frést hefur frá hinu háa Alþingi er
að lagt hefur verið fram þingmanna-
frumvarp um að svipta Sveitarfélagið
Voga skipulagsvaldi í málinu og sam-
þykkja með lögum framkvæmdaleyfi
fyrir Suðurnesjalínu 2 samkvæmt
aðalvalkosti Landsnets. Enginn flutn-
ingsmanna frumvarpsins hefur leitað
til Sveitarfélagsins Voga og kynnt sér
sjónarmið eða afstöðu sveitarfélagsins
til málsins. Það er dapurt.
Nú liggur fyrir að Jarðvísinda-
stofnun telur að ekki sé skynsam-
legt að leggja Suðurnesjalínu 2 sem
loftlínu meðfram Suðurnesjalínu 1.
Landsnet situr við sama heygarðs-
hornið og telur sér ekki fært að sam-
þykkja neinn annan valkost en þann
sem samræmist stefnu stjórnvalda. Sú
áleitna spurning hlýtur því að vakna
hvort ekki sé kominn tími til að Alþingi
hefjist handa að nýju og ljúki við end-
urskoðun stjórnvalda um flutningskerfi
raforku í landinu. Verði það ekki gert
stefnir allt í að framkvæmdinni um
lagningu Suðurnesjalínu 2 sem loft-
línu samhliða Suðurnesjalínu 1 verði
þröngvað í gegn, með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum og þar sem afhendingar-
öryggi og flutningskerfi raforku til og
frá Suðurnesjum er teflt í tvísýnu.
Ég hvet alþingismenn til að kynna
sér málin og axla um leið ábyrgð með
því að móta raunhæfa stefnu um flutn-
ingskerfi raforku og raforkuöryggi í
landinu.
Höfundur er bæjarstjóri
Sveitarfélagsins Voga.
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
899 0304
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 11