Víkurfréttir - 18.05.2022, Síða 15
„Við stefnum hátt“
– segir Magnús Sverrir Þorsteinsson,
nýkjörinn formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
Það eru ávallt gerðar miklar vænt-
ingar til körfuknattleiksliða Kefla-
víkur. Á því tímabili sem er nú að
ljúka stóðu liðin ekki fyllilega undir
væntingum, karlaliðið komst í úr-
slitakeppnina en var slegið út í átta
liða úrslitum á meðan kvennaliðið
náði ekki inn í úrslit. Undanfarin
(Covid) ár hafa verið flókin og reynt
mikið á starfsemi íþróttahreyfingar-
innar svo líklega er mikið starf fram-
undan hjá nýrri stjórn deildarinnar.
Hvað er framundan hjá körfuknatt-
leiksdeild Keflavíkur?
„Það er talsvert mikið framundan.
Það er mikið af nýju fólki að koma
inn í stjórn svo við þurfum að hafa
hraðar hendur við að koma okkur
inn í fjármálin, leikmannamálin og
aðra hluti sem þurfa að vera upp á
tíu svo hægt sé að hafa umgjörðina
í kringum karla- og kvennalið fé-
lagsins eins og best verður á kosið.
Við ætlum að leggja mikið á okkur
til að það geti orðið að veruleika
en til þess að svo verði er ætlunin
að enn fleiri komi að starfinu með
okkur en áður hefur verið – svo það
frábæra starf sem unnið hefur verið
hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur
undanfarin ár verði enn betra.“
Verða nýjar áherslur með nýjum
formanni?
„Já, það kemur alltaf eitthvað nýtt
með nýju fólki. Það er nokkuð ljóst
að við munum gera breytingar og
reyna að bæta nokkra þætti. Við
ætlum að leggja okkur vel fram og
markmiðið er að bæta ýmsa þætti.
Vonandi mun það ganga upp. Ætlun
okkar er t.d. að skapa enn meiri og
betri umgjörð í kringum liðin okkar
og sömuleiðis að bjóða upp á meiri
skemmtun á leikjum.“
Umgjörð deildarinnar
Hver eru helstu málin?
„Það er í raun af mörgu að taka en
það má kannski nefna það helst að
við höfum ráðið framkvæmdastjóra
í hlutastarf sem hefur störf strax.
Hann mun sjá um þætti er snúa
að rekstri félagsins og þessum dag-
legu verkefnum. Ætlun okkar er að
semja við þá leikmenn sem Hjalti og
Hörður Axel [Vilhjálmssynir] telja
mikilvæga pósta fyrir framhaldið og
vonandi getum við sótt einhverja
fleiri þótt íslenski „leikmanna-
markaðurinn“ sé bæði lítill og oft
flókinn. Þá er ætlunin að virkja enn
fleiri til að taka þátt í starfi félagsins
svo umgjörðin og rekstur deildar-
innar sé eins og best verður á kosið.
Keflavík býr það vel að við eigum
mikið af frábærum velunnurum og
stuðningsmönnum. Margt af því sem
við ætlum svo að gera lýtur að því
að gera leikmönnum og þjálfurum
Keflavíkur kleift að einbeita sér að
körfuboltanum, hafa gaman og njóta
þess að vera hluti af góðri og þéttri
liðsheild.“
Þið hafið verið að klára samn-
inga við leikmenn þessa dagana,
munum við sjá miklar breytingar á
leikmannahópum Keflavíkur?
„Það er auðvitað smá óvissa með
það. Það er mikið í gangi á skrif-
stofunni þessa dagana. Við erum að
auðvitað að ræða við okkar þjálfara,
endursemja og ræða við leikmenn
sem verið hafa hjá okkur og svo
höfum við verið að skoða hvernig
landslagið er með styrkingar í bæði
karla- og kvennaliðið. Eins og ég
nefndi áðan er markaðurinn lítill
og oft erfiður en vonandi getum
við bætt einhverjum púslum við.
Það er klárt mál að við stefnum á
að koma sterkari til leiks á næsta
tímabili en það verður hins vegar að
ráðast hvort það verði með því að
okkar leikmenn stígi enn meira upp
eða með íslenskum eða erlendum
viðbótum. Nú eða bara sitt lítið af
hvoru!“
Hvert skal stefna á næsta tímabili?
„Við stefnum hátt á næsta tíma-
bili,“ segir Magnús og heldur áfram:
„Krafan er alltaf sú að Keflavík
berjist um það sem í boði er og
allir sem koma að starfi Keflavíkur
í körfubolta setja þar að leiðandi
stefnuna hátt. Við ætlum okkur
kannski einhverjar breytingar en það
verður ekki gerð breyting á þessari
stefnu, það er ljóst ...“
Ný stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er þegar byrjuð að vinna í
leikmannamálum og hefur m.a. endurnýjað samning sinn við þá Jaka Brodnik
og Val Orra Valsson. Á nýliðnu tímabili skilaði Jaka Brodnik fjórtán stigum
og 5,5 fráköstum að meðaltali í leik og Valur Orri skilaði tæpum níu stigum
og fimm stoðsendingum að meðaltali í leik. Á myndinni handsala þeir
Brodnik og Magnús samninginn. Mynd af síðu körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Magnús er þekktari sem
knattspyrnumaður, hér er hann
í leik með Reyni Sandgerði á
síðasta ári. Mynd úr safni Víkurfrétta
Fimm iðkendur frá fimleikadeild Keflavíkur
valdir í landsliðshóp í hópfimleikum
Fimleikasamband Íslands tilkynnti
á dögunum þá 81 iðkanda í hópfim-
leikum sem skipa landsliðshópa
fyrir Evrópumótið í hópfimleikum
2022. Fimm iðkendur frá fim-
leikadeild Keflavíkur voru valdir í
landsliðshópana fyrir mótið en það
verður haldið verður í september.
Þeir Heiðar Geir Hallsson, Leonard
Ben Evertsson og Máni Bergmann
Samúelsson voru valdir í lands-
liðshóp drengja og Katrín Hólm
Gísladóttir í landsliðshóp stúlkna.
Emma Jónsdóttir var síðan valin í
blandað landslið unglinga. Öll æfa
þau hópfimleika með blönduðu
liði Keflavíkur en þetta er í fyrsta
skipti í sögu fimleikadeildar Kefla-
víkur sem strákar frá deildinni
eru valdir í landsliðshóp. Góður
árangur meðal iðkenda fimleika-
deildarinnar á keppnisárinu leynir
sér ekki en þá var Margrét Júlía
Jóhannsdóttir einnig valin í úr-
valshóp stúlkna í áhaldafimleikum
í byrjun maí.
Erika Dorielle Sigurðardóttir,
yfirþjálfari hópfimleika í Keflavík,
segist vera einstaklega stolt af
hópnum og að það verði spenn-
andi að sjá þau takast á við verk-
efnið.
Emma Jónsdóttir, Leonard Ben Evertsson, Máni Bergmann
Samúelsson, Heiðar Geir Hallsson og Katrín Hólm Gísladóttir.
Stökkmótaröð í atrennulausum stökkum fyrir 30+
Næstkomandi laugardag, 21. maí
á milli klukkan 13 og 16, fer fram
keppni í atrennulausum stökkum
fyrir 30 ára og eldri í Blue-höll-
inni. Þetta er annað mótið í stökk-
mótaröð sem Keflavík, íþrótta- og
ungmennafélag, og Ungmenna- og
íþróttafélagið Smári komu í sam-
einingu á laggirnar.
Keppnisgreinar eru hástökk, lang-
stökk og þrístökk án atrennu, þá er
einnig keppt í hástökki með atrennu.
Markmiðið með þessari stökk-
mótaröð er að fjölga mótum fyrir
eldra íþróttafólk sem og að endur-
vekja vinsældir þessara keppnis-
greina frjálsra íþrótta en þær voru
mjög áberandi á árunum 1960–1990.
Nú þegar hafa verið sett á tvö mót
og var hið fyrra hjá Ungmenna- og
íþróttafélaginu Smára í Varmahlíð
23. apríl n.k. og hið síðara 21. maí
hjá Keflavík íþrótta- og ungmenna-
félagi. Nánari upplýsingar um mótin
má sjá á heimasíðu Frjálsíþróttasam-
band Íslands fri.is. Fyrir næsta vetur
vonumst við til að mótunum fjölgi
í a.m.k. fimm. Mótshaldarar vilja
hvetja sem flesta til að taka þátt í
skemmtilegri keppni.
Frá stökkmóti Smára í apríl.
Myndir af Facebook-síðu Ungmenna- og íþróttafélagsins Smára
Keflvíkingurinn Helgi Hólm
undirbýr stökk án atrennu.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BÁRA ÁGÚSTSDÓTTIR
Skipastíg 8, Grindavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 11. maí.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 20. maí klukkan 12.
Sigurður Ragnar Ólafsson
Ágústa Kristín Guðmundsdóttir Snorri Viðar Kristinsson
Guðný Sigurðardóttir Sigþór Gunnar Sigþórsson
Magnús Ólafur Sigurðsson Aom Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Vorferð
Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður farin
fimmtudaginn 9. júní n.k. í Húsafell.
Lagt af stað frá Nesvöllum kl. 09:00 og komið
heim fyrir kvöldmat.
Ferðin kostar kr. 10.000 á mann, innifalið er hádegis-
matur, kaffi og heimsókn að Háafelli.
Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Ingibjörgu,
s: 8633443, Margréti, s: 8963173 og Sigurjóni,
s: 8999875. Skráningu lýkur 2. júní n.k!
Ferðanefndin
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Útskálasóknar
verður haldinn þriðjudaginn 24. maí 2022
kl. 20:00 í Kiwanishúsinu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Sóknarnefnd
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 15