Víkurfréttir - 12.10.2022, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Kristinn Arnar Sigurðsson opnaði
nýverið fyrirtækið Stormbón við
Grænásbraut 506 í bili nr. 107 á
Ásbrú í Reykjanesbæ. Þar annast
hann öll almenn þrif á bílum, allt
frá þvotti og bóni og upp í mössun
og lakkvörn sem heldur gljáa á
bílnum í um ár og jafnvel lengur
með reglulegu viðhaldi á vörninni.
Kristinn Arnar segir að mikil
vinna sé lögð í bílaþrifin. Allt
yfirborð og föls séu þrifin og efni
borin á plast til að gera það svart
og fái gljáa sem endist í nokkrar
vikur. Þá séu bónefni í dag alltaf
að verða betri og betri. Þau endist
einnig lengur en algeng „bensín
stöðvabón“.
Kristinn Arnar segist fyrst og
fremst hafa verið að hugsa til al
mennings þegar hann stofnaði
Stormbón, að geta boðið heima
fólki upp á bílaþrif og góða þjón
ustu. Hann bjóðist til að sækja bíla
fyrir þrif og skila þeim glansandi
flottum til baka. Hann bjóði upp á
að bílar séu settir í áskrift og séu
þá teknir reglulega í þrif og bón og
áskrifendur njóti ákveðinna kjara.
Frí þrif að utan eftir fimm skipti og
frí alþrif í tíunda skipti.
Einnig taki hann að sér að þrífa
bíla fyrir fyrirtæki. Þannig fái hann
t.a.m. núna bíla iðnaðarmanna um
helgar og þrífi þá, þannig að menn
hefji nýja vinnuviku á hreinum og
fínum bílum.
Tímapantanir má bóka í símum
612 4847 eða 661 7589. Einnig
má senda póst á stormbon1922@
gmail.com.
Stormbón með almenn
bílaþrif og bón á Ásbrú
Kristinn Arnar Sigurðsson opnaði nýverið fyrirtækið Stormbón við Grænásbraut 506 á Ásbrú. VF-mynd: Hilmar Bragi
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
skipað þá Friðjón Einarsson,
Guðmund Björnsson og Grétar
I. Guðlaugsson í byggingarnefnd
Myllubakkaskóla. Auk þeirra er
Kjartan Már Kjartansson, bæjar
stjóri, skipaður í nefndina. Gissur
Hans Þórðarson, verkefnastjóri,
verður tengiliður við byggingar
nefnd. Byggingarnefnd skal reglu
lega leggja fram stöðuskýrslu um
framgang verkefnisins mánaðarlega
í samvinnu við bæjarstjóra. Þetta
kom fram á síðasta fundi bæjarráðs
Reykjanesbæjar.
Bæjarráð samþykkir einnig skipun
stýrihóps verkefnisins, Gissur Hans
Þórðarson, verkefnastjóri, Hlynur
Jónsson, skólastjóri, og Guðlaugur
Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis
sviðs. Stýrihópur er framkvæmda
aðili verkefnisins í samráði við bygg
ingarnefnd.
Bæjarráð samþykkir enn fremur
framlagt frumkostnaðarmat, sem
unnið var af OMR og ARKÍS vegna
endur og nýbyggingar Myllubakka
skóla og kynnt var í bæjarráði 4.
ágúst 2022. Bæjarráð gerir einnig
kröfu um 15% hagræðingu á frum
kostnaðarmati verkefnisins og felur
Regínu F. Guðmundsdóttur, fjár
málastjóra, að vera eftirlitsaðili með
fjárhagslegri framvindu verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir einnig framlögð
frumdrög að teikningum skólans,
sem jafnframt voru lögð fyrir bæj
arráð 4. ágúst síðastliðinn.
Bæjarráð óskar eftir tillögum að
fjármögnun verkefnisins sem og
áætluðu tímaplani frá bæjarstjóra
og vísar til fjárhagsáætlunargerðar
2023–2026.
Bæjarráð samþykkir ofangreint
en Margrét A. Sanders, Sjálfstæðis
flokki, situr hjá við afgreiðslu kostn
aðarmats og á afgreiðslu frumdraga
af teikningum.
Tillaga Friðjóns Einarssonar, formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar, um
að skipuð verði nefnd skipuð starfsfólki íþróttamannvirkja, kjörnum
fulltrúum auk fulltrúa íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ, var sam
þykkt samhljóða á síðasta fundi bæjarráðs. Hlutverk nefndarinnar er
að skoða fjárhagsstöðu félaga og deilda í Reykjanesbæ, meta áætlaða
þörf og koma með tillögur að nýjum samningum sem verða síðan lagðir
fyrir íþrótta og tómstundaráð til umsagnar.
Bæjarráð telur því nauðsynlegt að endurskoða alla rekstrarsamninga
við íþróttafélög í Reykjanesbæ með tilliti til þarfa íþróttahreyfingarinnar
og um leið að skapa betri rekstrargrundvöll deilda. Um leið skal leita leiða
til hagræðingar með auknu samstarfi deilda og félaga til að tryggja velferð
og rekstur. Hlutverk nefndarinnar er því að skoða fjárhagsstöðu félaga og
deilda í Reykjanesbæ, meta áætlaða þörf og koma með tillögur að nýjum
samningum sem verða síðan lagðir fyrir íþrótta og tómstundaráð til um
sagnar. Lagt er til að nefndin verði skipuð starfsfólki íþróttamannvirkja,
kjörinna fulltrúa auk fulltrúa íþróttahreyfingarinnar í Reykjanesbæ.
Skoða fjárhagsstöðu félaga
og deilda í Reykjanesbæ
Samþykkja byggingarnefnd
og stýrihóp Myllubakkaskóla
Kjartan Már Kjartansson fyrir hönd
Reykjanesbær og Steinþór Jónsson
fyrir hönd KEF ehf. undirrituðu
samstarfssamning á þriðjudag um
endurbætur og nýtingu á Vatnsnes
vegi 8, húsi sem sveitarfélagið fékk
í dánargjöf frá Bjarnfríði Sigurðar
dóttur árið 1974.
Húsið hefur staðið að mestu ónotað
um árabil. Ástand hússins er bágborið
og komið er að margvíslegu viðhaldi
að innan og utan. Í júlí 2020 auglýsti
sveitarfélagið fasteignina að Vatns
nesvegi 8 til leigu. Í auglýsingunni
kom fram að húsið þarfnist verulegra
og kostnaðarsamra endurbóta, bæði
að utan og innan. Gert er ráð fyrir að
leigutaki, í samráði við Reykjanesbæ,
sjái um að framkvæma endurbætur
á húsinu sem uppfylla ströngustu
kröfur og greiði þannig leiguna, að
hluta eða öllu leyti.
Þann 30. ágúst 2020 óskaði
Steinþór Jónsson eftir viðræðum
við Reykjanesbæ varðandi mögu
leika á langtímaleigu á fasteigninni
að Vatnsnesvegi 8. Í erindi Steinþórs
lýsir hann meðal annars væntingum
sínum til þess að eiga samstarf við
sveitarfélagið um uppbyggingu í og
við húsið, samstarf um endurbætur
og starfsemi í húsinu. Tillaga Stein
þórs miðaði við að húsið yrði notað
sem móttökusvíta, fundarherbergi
eða sýningarsalur. Jafnvel kaffihús
með léttum veitingum og gæti verið
„Höfði“ Reykjanesbæjar þar sem
stærri fundir og móttökur gætu farið
fram. Nýting sem þessi myndi því
samhliða geta verið lítið byggðasafn,
sögusýning hússins sem og bæjar
félagsins og annarra þátta sem myndu
tengjast í tíma og rúmi.
Í erindinu kemur fram að það sé
vilji til að halda sögu hússins í heiðri
og í þeim anda sem eigendur hússins
höfðu í huga þegar þeir afhentu húsið
til Keflavíkurbæjar. Öllum beri saman
um að Vatnsnes hefur verið eitt
glæsilegasta hús bæjarins og stað
setning þess sé einstök. Að mati Stein
þórs er mikilvægt að halda stílnum og
þeim arkitektúr að mestu leyti eins
og það var upprunanlega hannað og
byggt.
„Fjölskyldan mín hefur verið með
starfsemi á móti þessu þekkta húsi nú
þegar í tæp 50 ár, eða frá 13. febrúar
1972, og höfum því sterkar taugar til
hússins og umhverfisins í heild. Því
má segja að endurbætur á Vatns
nesi er aðeins lítill hluti af þeirri
framtíðarsýn sem við höfum fyrir
svæðið í heild. Ég hef þegar viðrað
hugmyndir að nýta Vatnsnesið fyrir
framtíðarferðaþjónustu, þar sem
húsið væri miðpunktur umhverfisins
en í kring færi fram starfsemi sem
myndi draga til sín innlenda og er
lenda ferðamenn sem og bæjarbúa.
Við sjáum fyrir okkur tengingu við
sjávarleiðina og frekari útsýnissvæði
frá Vatnsnesinu auk þess sem við
teljum að Básvegurinn sjálfur eigi
að vera hugsaður sem lifandi ferða
mannaþjónusta og götulíf eins og
best þekkist í öðrum bæjarfélögum á
Íslandi. Því tengdu hefur undirritaður
nú þegar verið í sambandi við aðila
um að skoða möguleika á glæsilegri
aðstöðu fyrir sjóböð og heitar laugar
við básinn með einstöku útsýni yfir
Faxaflóann og Bergið, í mikilli nálægð
við flest stærstu gistihús og þjónustu
bæjarins. Teikningar og hugmyndir
þessu tengdu myndu koma á okkar
umræðufundi.“
Með samstarfssamningnum geta
loksins nauðsynlegar endurbætur
farið fram á Vatnsneshúsinu og húsið
tekið í notkun í kjölfarið.
Samkvæmt kaupsamningi sem
undirritaður var samhliða sam
starfssamningnum verður KEF ehf.,
einkahlutafélag Steinþórs Jónssonar,
eigandi að 49% hluta fasteignarinnar
(mannvirki án lóðarréttinda).
Kjartan Már Kjartansson bæjar
stjóri, lýsti við undirritunina yfir
ánægju sinni að þetta mál sem hefur
í mjög langan tíma verið í óvissu sé
nú komið í góðan farveg og Reykja
nesbær bindi miklar vonir við að
húsinu og gefendum þess verði nú
sýnd sú virðing sem það/þau eiga
skilið.
Vatnsnesið fær þá sæmd sem það á skilið
Guðlaugur H. Sigurjónsson og Kjartan Már Kjartansson frá
Reykjanesbæ og hjónin Steinþór Jónsson og Hildur Sigurðardóttir frá
KEF ehf. undirrituðu samstarfssamning um Vatnsnesið. VF-mynd/pket
KEF ehf. ætlar að nýta Vatnsnesið fyrir framtíðarferðaþjónustu og sér mikla
möguleika við Básinn, m.a. sjóböð og heitar laugar við ströndina.
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM