Víkurfréttir - 12.10.2022, Blaðsíða 4
„Flóðið 2020 og í vetur voru mjög ólík. Það urðu bara lítilsháttar skemmdir á fjárhúsinu 2020 en túnin
fóru ansi illa þá. Það var ekki skemmtilegt að hreinsa túnin en skólp Grindvíkinga fer í sjóinn ekkert
fjarri þeim stað sem fjárhúsið okkar er og það skilaði sér því miður á túnin okkar,“ segir Kristólína
Þorláksdóttir, Lína í Vík, eigandi fjárhússins í Vík í Grindavík en það varð fyrir miklum skemmdum í
óveðri í byrjun janúar á þessu ári.
Fréttamaður VF hitti Línu og Sig
rúnu Hörpu Harðardóttur, barna
barn hennar, sem segir flóðið hafa
komið með miklum látum á húsið.
„Það flæddi undir öll gólf og
miðjan í húsinu hreinlega þurrkaðist
í burtu. Útveggir fóru og aðkoman
var hrikaleg, húsið hékk nánast
saman á lyginni. Nokkuð ljóst að
ef við hefðum ekki flutt kindurnar
austur í hverfi til Ómars í Bjarma
landi, þá hefðu þær dáið drottni
sínum“.
Lína í Vík segir að það hafi kennt
ýmissa grasa í flóðinu síðasta vetur.
„Það er ótrúlegt hvernig fólk getur
gengið um og hverju það sturtar ofan
í klósettin sín. Allt frá dömubindum í
lyfjaglös en hver heilvita maður á að
vita að þetta á að fara í ruslið, ekki á
haf út! Það var meira af grjóti sem
kom í því flóði en í flóðunum í vetur
var meira af sandi og krafturinn
virðist hafa verið miklu meiri því
fjárhúsið okkar var nánast að hruni
komið.“
Þrjú hverfi í Grindavík
Skv. gömlum heimildum hófst byggð
í Grindavík árið 934 en um aldamót
nítjándu og tuttugustu aldarinnar
var talað um þrjú hverfi í Grindavík,
Þórkötlustaðahverfi austast, Járn
gerðarstaðahverfi fyrir miðju og
Staðarhverfi vestast. Innan Járn
gerðarstaðarhverfis er bújörðin
Vík en þar hefur löngum verið
myndarlegur búskapur, bæði sauð
fjárbúskapur og eins hafa hestar oft
leikið stór hlutverk.
Talið er að fjárhúsið í Vík hafi
verið byggt einhvers staðar á bilinu
19301940 af Guðjóni Gíslasyni.
Fjárskipti urðu árið 1955 en það
þýðir að farga þurfti öllu fé, ekki
vegna riðuveiki heldur garnaveiki.
Við þau tímamót kom bróðir Guð
jóns, Þorlákur, sterkur inn í bú
skapinn og fjárhúsið var stækkað til
muna. Gamli hlutinn er í raun miðja
hússins í dag en þegar mest var þá
er talið að um 170 fjár hafi verið á
vetrarfóðrum.
Veður eru oft válynd á okkar yl
hýra skeri og hefur landinn heldur
betur fengið að finna fyrir því að
undanförnu. Eftir frábæran sept
embermánuð þar sem veðrið minnti
meira á Mallorca en Ísland, hafa
tvær öflugar lægðir kíkt í heimsókn
en þær létu meira á sér bera fyrir
austan land. Síðustu vetur hafa hins
vegar verið okkur hér á suðurhveli
Íslands erfiðir og Grindvíkingar hafa
ekki farið varhluta af því. Í ársbyrjun
2020 kom mesta flóð sem fróðir
menn muna síðan 1924 og síðasta
vetur komu tvö ansi myndarleg
flóð og í þeim varð fjárhúsið í Vík
fyrir miklum skemmdum. Minnstu
munaði að húsið hryndi algerlega en
það stóð en var ansi laskað og því
þurftu eigendur að ráðast í miklar
framkvæmdir.
Varnargarðar nauðsynlegir
„Þegar varnargarðarnir voru fjar
lægðir einhvern tíma í kringum alda
mótin, var alveg ljóst að hætta væri
á ferðum. Það voru einhverjir íbúar
Grindavíkur sem kvörtuðu, vildu
meina að garðarnir skemmdu út
sýnið en það er ansi líklegt að ef það
koma ekki nýir garðar er bara tíma
spursmál hvenær stærra tjón hlýst
af. Við vitum að veðurfarið er að
breytast, hvort sem það er gróður
húsaáhrifum að kenna eða ekki en
alla vega er ljóst að eitthvað þarf að
gera. Við höfum verið í sambandi við
vegagerðina og vonandi mun eitt
hvað gerast í þessum málum sem
fyrst,“ segir Kristólína.
Hvernig gengu endurbætur?
„Við réðumst strax í endurbætur,
auglýstum eftir bárujárni og timbri
og mættum alls staðar mikilli velvild,
við fengum m.a. afgangs timbur frá
nýja Landsbankahúsinu í Reykjavík.
Við höfum fengið efni nánast frá
öllum landshlutum og erum ofboðs
lega þakklát fyrir viðtökurnar. Það
eru mjög laghentir aðilar innan fjöl
skyldunnar og við höfum ekki þurft
að kaupa neina þjónustu iðnaðar
manna.“
Lína segir að það sé beigur í Víkur
fólkinu fyrir komandi vetur.
„Ég er með hjartað í buxunum
yfir komandi vetri. Ég mun ekki þola
aðrar eins endurbætur og nokkuð
ljóst að ég mun pakka saman ef við
lendum aftur í svona tjóni. Þetta
var ofboðsleg vinna og nú er bara
að vona að Vegagerðin svari kallinu.“
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Verið velkomin í nýja og glæsilega
gleraugnaverslun
„Erum smeyk við vetur-
inn ef ekki koma nýir
varnargarðar“
– segir Kristólína Þorláksdóttir, Lína í Vík,
en miklar skemmdir urðu á fjárhúsum
hennar í flóðinu í janúar.
„Miðjan í húsinu
hreinlega
þurrkaðist í
burtu,“ segir
Sigrún Harpa
Harðardóttir.
Kristólína Þorláksdóttir, Lína í Vík, og Sigrún Harpa
Harðardóttir, barnabarn hennar, í fjárhúsinu.
Með þeim á myndinni er dóttir Sigrúnar Hörpu.
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM
Umsjón:
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Grindavíkurfréttir