Víkurfréttir - 12.10.2022, Qupperneq 7
Keflvíkingur fyrst íslenskra
kvenna í aðalráð ICAO
Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir mótar reglur og stefnur í flugmálum
Keflvíkingurinn Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir er fyrst íslenskra kvenna til að skipa eitt af 36 sætum
aðalráðs Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO). Aðalþing ICAO er haldið á þriggja ára fresti og
fer það fram um þessar mundir. Þá var Ísland kosið í aðalráðið í upphafi mánaðar og verður Valdís
aðalfulltrúi og Daninn Ditte Helene Band varafulltrúi Íslands til næstu þriggja ára. Valdís mun einn-
ig stýra starfi NORDICAO, sem er samstarf Norðurlandanna, Eistlands og Lettlands en Valdís hefur
síðustu þrjú ár starfað sem varafulltrúi Finnlands í aðalráði ICAO. Auk hennar á Hlín Hólm, formaður
stýrihóps flugleiðsögu á Norður-Atlantshafi, sæti á þinginu. „Við eigum báðar rætur okkar að rekja
til Keflavíkur og höfum unnið saman síðan ég byrjaði árið 2004 hjá flugmálastjórn,“ segir Valdís.
Alls eru 193 aðildarríki í Alþjóða
flugmálastofnuninni og 36 í ráðinu.
Valdís segir línurnar fyrir komandi ár
vera lagðar á aðalþinginu fyrir kom
andi ár og verkefni ráðsins ákveðin.
„Mín verkefni eru að móta reglur og
stefnur í flugmálum og rekstur al
þjóðaflugmálastofnunarinnar fellur
þar undir, hvernig fjármunum aðild
arfélaganna er varið. Aðalþingið sem
er núna í gangi leggur línurnar og svo
fylgir ráðið þeim eftir,“ segir Valdís.
Þingið sem nú fer fram er sögulegt
og ekki aðeins vegna þess að þetta er
í fyrsta skipti sem kona er aðalfull
trúi fyrir Íslands hönd. „Það er búið
að kjósa núna, þessu er skipt niður í
þrjá flokka og það var kosið í fyrsta
og öðrum flokknum núna á laugar
daginn. Ísland er í flokki númer
tvö og náði sæti þar. Rússland er í
flokki eitt og náði ekki sæti, sem er
að vissu leyti sögulegt. Einnig var
þetta í fyrsta sinn sem kona stýrir
aðalþinginu sjálfu,“ segir Valdís.
Valdís er ekki eini Keflvíkingurinn
sem staddur er í Montreal fyrir
vinnu á aðalþingi ICAO. Auk hennar
er Hlín Hólm en hún tekur þátt í
þinginu fyrir hönd Samgöngustofu.
Hlín er formaður stýrihóps flug
leiðsögu á NorðurAtlantshafi (NAT
SPG) og er jafnframt fyrsta konan
í formannsstöðu hópsins. „Hún er
líka úr Keflavík og við höfum unnið
saman síðan ég byrjaði árið 2004
hjá Flugmálastjórn. Við eigum báðar
rætur okkar að rekja til Keflavíkur og
höfum alltaf fylgst að í þessum verk
efnum. Hún er að gera flotta hluti í
flugheiminum,“ segir Valdís.
Byrjaði að vinna á
Keflavíkurflugvelli
Valdís er með Bachelorgráðu í fé
lagsfræði og diplómu í opinberri
stjórnsýslu og aðra í mannauðs
stjórnun. Valdís hefur verið búsett
í Montreal í Kanada síðan 2019 en
höfuðstöðvar ICAO eru þar. Ferill
Valdísar í flugheiminum hófst í starfi
við innritun á Keflavíkurflugvelli
árið 1992.
„Ég byrjaði að vinna í innritun hjá
Icelandair þegar ég var í háskóla
námi. Ég vann þar samtals í tíu ár
og fór síðan yfir til Flugmálastjórnar
sem sameinaðist svo í Samgöngu
stofu. Þetta byrjaði þar, það leiddi til
þess að ég sótti um að vera varafull
trúi Finnlands í ráðinu og var valin
í það. Núna er ég orðin aðalfulltrúi
Íslands,“ segir Valdís. Hún segist
vera spennt fyrir nýju stöðunni en
segir hana vera mikla áskorun. „Það
er gott að hafa reynsluna frá vara
mannsstöðunni síðastliðin þrjú ár,“
bætir hún við.
Valdís á eiginmann og tvo syni
sem eru 22 og 26 ára að aldri en
þeir eru búsettir á Íslandi. „Yngri
strákurinn minn hefur heimsótt mig
tvisvar sinnum og sá eldri einu sinni,
út af Covid. Maðurinn minn, Sveinn
Ingvarsson, hefur verið hjá mér af
og til undanfarin þrjú ár og þá unnið
fjarvinnu hjá Tryggingamiðstöðinni.
Fjarvinnan hefur auðveldað okkur
lífið hvað það varðar,“ segir Valdís.
Hún segir það hafa verið sérstakt að
búa í Kanada á tímum Covid. „Það
voru svo rosalega ströng höft hér.
Það var útgöngubann frá klukkan
átta á kvöldin til fimm á morgnanna
og það stóð yfir í átta mánuði. Það
er einnig búið að vera mjög skrítið
að vera í þessari vinnu á þessum
tímum, þar sem fundir eru stór hluti
af mínu starfi. Ég þarf að sitja fundi
sem eru þýddir á sex tungumálum
og þeir fundir þurftu að fara fram í
gegnum Zoom,“ segir Valdís.
„Jörðin hóf hinn tryllta dans“
Valdís ólst upp í Keflavík og var
meðal annars fjallkona Keflavíkur
bæjar 1989. Aðspurð hvort tenging
hennar við bæinn sé enn sterk segir
hún: „Ég er uppalin í Keflavík og ég
mæti alltaf á Ljósanótt þegar ég er
heima. Ég er Keflvíkingur en flutti
í bæinn þegar ég fór í háskólanám
og hef í raun ekki flutt þangað aftur
síðan en mamma og pabbi búa þar
ennþá.“ Þá segist hún eiga margar
góðar minningar frá bænum og
einnig góð vinasambönd. „Félagsbíó
og Nýja bíó voru aðalmálið, Bergás
og Stapinn líka. Ég æfði sund með
Njarðvík og ég man mikið eftir skól
anum og körfuboltaliðinu,“ segir hún.
Eftir grunnskóla hóf Valdís nám
við Menntaskólann í Reykjavík
en árið 1989 flutti Valdís til Kali
forníu til að gerast Au Pair. Í samtali
blaðamanns Víkurfrétta við Val
dísi rifjaði hún upp tíma sinn þar.
„Ég fékk tækifæri til þess að vera
á enskunámskeiði á morgnanna og
passa börn og hjálpa til á heimilinu
á kvöldin,“ segir hún aðspurð hvað
dró hana til Kaliforníu. Í október
1989 reið jarðskjálfti að stærð 7.0 á
Richter yfir svæðið sem Valdís var á
og birtu Víkurfréttir aðsenda grein
frá upplifun hennar í blaðinu þann
30. nóvember 1989. „Þegar stóri
skjálftinn kom var ég nýkomin inn
úr dyrunum og stóð inni í herberginu
mínu að lesa bréf að heiman. Þegar
jörðin hóf hinn tryllta dans, datt
mér fyrst í hug að hlaupa til Nanu
og segja Regan að koma til okkar
en einungis Nana (75 ára) og Regan
(sjö ára) voru heima. Þegar allt fór
svo að hrynja úr hillunum sá ég
mig um hönd og ákvað að best yrði
að standa í dyrunum. Ég opnaði
hurðina, tók eitt skref og „búmm“
ljósakrónan frá 1911 hrundi niður
þar sem ég hafði staðið. Ég stóð
í dyrunum og horfði á skúffur og
skápa opnast og lokast í eldhúsinu.
Margt datt með látum í gólfið. Ég
heyrði brak, bresti og brothljóð, auk
þess sem Nana og Regan voru há
grátandi. Ég var í svo miklu uppnámi
að ég kallaði til þeirra á íslensku –
svona er maður gáfaður! Mér fannst
húsið aldrei ætla að hætta að skjálfa
en í raun stóð skjálftinn ekki yfir í
nema 15–30 sekúndur [...] Ég hef svo
vaknað upp þrisvar, fjórum sinnum
á hverri nóttu síðan skjálftinn var,
því það eru sífelldir eftirskjálftar.
Blöðin kalla skjálftann „72ja tíma
skjálftann“ því dansinn tekur vart
enda,“ segir í greininni.
Valdís horfir til baka og segir
upplifunina hafa verið „rosalega“
og bætir við: „Þá var enginn tölvu
póstur og það kostaði svo mikið
að hringja að maður varð að senda
bréf. Fréttirnar bárust ekki svona
hratt eins og í dag. Ég man að fyrsta
manneskjan sem heyrði í mér eftir
þetta var frænka mín í Arizona.
Svona hefur þetta allt breyst,“ segir
Valdís að lokum.
Sigurbergur Björnsson, Jón Gunnar Jónsson, Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson,
Salvatore Sciacchitano, Juan Carlos Salazar, Samuli Vuokila og Hlynur Guðjónsson.
Valdís Ásta Aðalsteinsdóttir ásamt Sigurði Inga
Jóhannsson, innviðaráðherra, og fráfarandi
aðalfulltrúa Finnlands, Samuli Vuokila.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 7