Rökkur - 01.01.1940, Blaðsíða 8

Rökkur - 01.01.1940, Blaðsíða 8
8 R Ö K K U R í hvern stað nema hjarta þitt, en hedti þitt eg skar af tryggum hug í hjarta mitt og — hvergi nema þar. Enn má nefna, þó að þetta sé að vísu orðið lengra mál, en til var ætlast: Við hafið (Við hafið eg sat fram á sævarbergs stall). Frjálst er í fjallasal. Sumarnótt (Sólu særinn skýlir). Á heimsenda köldum. Svölurnar (í nótt komu svölurnar sunnan). Haustkvöld (Vor er inndælt eg það veit). Þar er t. d. þessi dásamlega visa: EIli, þú ert ekki þung anda guði kærum: Fögur sál er ávalt ung undir silfurhærum. ----o----- Stgr. Th. er illa við allan uppskafningshátt og mikillæti, svo sem margar stökur lians vitna. Honum þykir lítið varið í „mentaprjálið“ á ytra borði mannsins, „þar anda og hjarta alt er sneytt og ekkert liærra mið.“ Hann kýs niiklu heldur „leirugt gull“ en „gyltan leir“. — Um vonbrigði lífsins kveður hann þessa beisku og alkunnu stöku: Um frelsis vínber seydd við sólar kyngi mín sálin unga bað. En krækiber af þrældóms lúsalyngi mér lifið réttir að. Um breytingu þá, sem orðið hafi á hug og hjartalagi í volki og stríði lífsins, segir skáldið: Hjarta mitt stælist við strið, þó stenst á hvað vinst og hvað tapast: Það, sem mitt þrek hefir grætt, það hefir viðkvæmnin mist. V J

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.