Rökkur - 01.01.1940, Blaðsíða 14

Rökkur - 01.01.1940, Blaðsíða 14
14 RÖKKUR Þótt hann þjáðist af kulda hug- leiddi hann vandamál lífsins. Hvers vegna voru styrjaldir háðar? Hvers vegna var svo mikið lagt á nienn'inu, hvers vegna urðu þeir að hungra og þola kulda og neyð, þegar öllum gæti liðið vel? iHví var guð á himnum — svo óra langt í burtu? Hví var hann ekki nær mönnunum — nógu nærri ? Hvi ólu menn hugmyndir —- hvi létu menn hleypidóma og hjá- trú og annað slíkt, sem alt var óljóst og reikult, ná tökum á sér? Hvers vegna hötuðust þjóðirnar? Hvi urðu menn að búa við svívirðingar og margt viðbjóðslegt og að lokum að horfast í augu við dauðann? Hvers vegna? Hvers vegna? Stormurinn var enn í sínum versta ham og endrum og eins lyfti Vasile hægri liönd sinni og þurkaði snjóinn af augum sín- um. ‘Hví kom vetur — og sumar? Hví voru menn hraktir svo langt á brott fná því, sem þeim var kærast? Hvi vöknuðu þess- ar þrár í huganum? Hvi hafði það g'erst, sem var svo Ijúft, og gat aldrei gerst aftur? Hvers vegna? Hvers vegna? Vasile skildi það ekki. Æ, en þarna, langt í fjarska var einhver ljósglæta? Einhver Ijósrönd, — eins og föl rák á dökkum himni. Var nýr dagur að renna? Var þessi ógnarnótt á enda? Vasile starði á ljósrákina, sem honum fanst hann liafa séð úti í fjarskanum. Var komið undir dögun? Var i raun og veru nýr dagur að renna? En Ijósrákin stækkaði ekki, varð ekki rauðari — og þó var hreyf- ing á henni — hún virtist lireyf- ast — virtist færast nær — það var Ijós, sem færðist nær —- til hans. Ljósið kom til lians! Þegar Vasile reyndi síðar, þegar bjart var orðið, að segja hinum frá þessu — félögunum, sem höfðu sofnað, vildu þeir ekki trúa frásögn hans — og þó höfðu þeir sofið, en hann, Vasile hafði verið glaðvakandi — en þannig voru mennirnir, eins og hinn vantrúaði Tómas, þeir urðu að þreifa á til þess að trúa..... Vasile sá veru í hvitri skikkju nálgast. Færast nær sér hægt og stöðugt. Hún gekk yfir snævi þakta sléttuna, þessi vera, um- vafin hirtu — og veran sjálf var birta, Ijós, og svo var ljósmagn hennar mikið, að Vasile furðaði sig á að þeir skyldu ekki vakna, félagar hans, og hann skildi það alclrei. En fyrir aftan veruna var eins og löng Ijósrák í snjónum, —

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.