Rökkur - 01.01.1940, Qupperneq 10

Rökkur - 01.01.1940, Qupperneq 10
10 RÖKKUR MARIE, EKKJUDROTNING RÚMENÍU: ÞAÐ SEM VASILE SÁ-- Niðurl. Vasile gerði krossmark fyrir brjósti sér og fór að þylja bæn fyrir binum látnu. Hann stóð eins og í leiðslu og horfði á þessa þrjá óbrotnu trékrossa, og hann hugsaði um, hverjir það hefðu verið, er þarna höfðu endað lífsskeið sitt. Voru það hermenn sem þarna hvíldu? Eða konur? Eða kannske lítil hörn -—- lítil, illa ldædd börn, sem höfðu dáið af hungri og kulda. Frá því styrjöldin byrj- aði höfðu svo mörg börn dáið úr hungri og kulda......... Eins og sá, sem starir á fjár- sjóð, sem finst óvænt — og þorir ekki að snerta — eins stóð Vasile fyrir framan þessa þrjá krossa. Hann horfði með aðdáun á viðinn, en hann þorði ekki að snerta þá, og liann gat ekki knúið sig til þess að halda áfram. Og nú vaknaði skelfileg liugs- un með honum — ógurleg freisting. Hvi ekki að rífa upp einn þessara krossa og' leggja hann á deyjandi glæðurnar. Þegar alt kemur til alls eru hinir látnu látnir. Þeir sofa svo djúpum svefni, að þeir geta ekki heyrt það, sem fram fer yfir liöfðum þeirra. Guði sé lof, að þeir sofa svona djúpt, því að hvernig gæti nokkurum manni ella dottið annað eins í hug og mér nú, hugsaði Vasile. Hann áræddi nú að ganga nær og lagði hönd sína á einn krossinn — þann, sem næstur var. En þegar hann gerði það varð hann gripinn lielgitilfinn- ingu. Nei, nei, ef hann tæki krossinn væri það vanhelgun — menn eiga að halda minningu liinna látnu í heiðri, — jafnvel lieiðra þá umfram þá, sem lif- andi eru. SKkur verknaður mundi vissulega fordæmdur vera, af guði og mönnum. Hinir látnu geta ekkert gert sér til varnar, þeir eiga grafarró sína undir þvi, að hver sem fram hjá fer virði hana — menn eiga að virða gröfina eins og menn virða þrepin, sem liggja upp að altarinu í kirkjunni — það væri vissulega ógerlegt að taka kross til þess að nota sem hrenni — kross sem var sein- asti virðingarvottur, er sýndur var af þeim, sem elskað hafði þann, er þarna hvíldi. En rödd freistninnar vaknaði

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.