Rökkur - 01.06.1950, Síða 6

Rökkur - 01.06.1950, Síða 6
54 RÖKKUR sína, þótt þess væri raunar elcki þörf, þvi að þeir gljáðu vel. Meðan hann var að þvo pér um hendurnar kom einn af skipsmönnum og sótti töskur hans. Landgöngustundin var upp runnin. Catleigh fór í jakkann og setti á sig hattinn. Um leið og hann fór út í göngin kom einn skipsmanna með töskur úr klefa konunnar, sem ekkert vildi hafa saman að sælda við Moxx. Catleigh stóð í gættinni meðan skipsmaður fór fram hjá. Hann var með þrjár töskur, allar gamallegar nokkuð, en úr góðu leðri. Fjöldi álímingarmiða var á töskunum og af þvi augljóst, að eigandinn hafði ferðázt allmikið. Á einni töskunni veitti Catleigh athygh upp- hafsstöfunum M. O’D. Þeir voru málaðir með svörtum lit á töskuendann. Hann gekk á land og inn i timburbyggingu allmikla. Var hún illa lýst og dragsúgur mikill. Catleigh tók sér stöðu í röð farþega sem gengu meðfram löngu borði, en innan við það voru tollskoðunarmenn, sem rannsökuðu farangur manna, handahófslega nokkuð. Catleigh hugs- aði lítt um tollskoðunina, viss að hann þurfti engu að kvíða, og var allur hugur hans þessa stund bundinn við stúlkuna, sem liann hafði séð á skipinu. Hann skimaði i kringum sig og gerði sér vonir um, að hann fengi aftur augum litið mærina fögru með bláu hettuna. En þegar hann loks slapp út úr byggignunni með krítarmerki toll- skoðunarmanna á töskum sínum, hafði hann gefið upp alla von um að líta mærina augum framar. Mannmergð mikil var í kringum hann. I dyragættinni kom hann auga á gistihússendil frá gistihúsinu, sem hann ætlaði að búa í. „Hérna,“ sagði Catleigh, „takið við þessum töskum.“ „Já, herra, hafið þér pantað herbergi hjá okkur?“ ,,Jó. Hversu langt er til gistihússins?“ „Þér farið kippkorn eftir árhakkanum — og þér munuð brátt sjá ljósaskiltið.“ „Þökk, eg ætla að ganga þangað.“ Þegar út úr byggingunni kom var framundan torg, þar

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.