Rökkur - 01.06.1950, Page 7

Rökkur - 01.06.1950, Page 7
ROKKUR 55 sem var mergð leigubifeiða og einkabifreiða og fjölmennt mjög. Hann furðaði sig á því, að dimmt var orðið — dagur að kvöldi kominn. Strætisljóskerin vörpuðu frá sér daufri birtu því að þokuslæðingur var í lofti. Hann varð að nema staðar sem snöggvast aftan við bif- reið, sem stóð kyrr og sá þá, að burðarmaður var að setja í geymsluhólfið aftan í bifreiðinni töskurnar, sem auð- kenndar voru mev stöfunum M. O’D. Þarna hafði óvænt borizt upp í hendurnar tækifæri til þess að sjá aftur mær- ina, sem hafði vísað herra Moxx á dyr. Hann greip pípu sina og fyllti, fór sér að öllu hægt, og kveikti í henni — skýldi loganum með hendinni þannig, að hann gat gægst inn í bifreiðina um leið. f henni sat stúlkan með bláu hettuna. Hann hafði fikað sig nær og er stúlkan varð þess vör, að kveikt var ljós svo nálægt bílrúðunni, sneri hún sér við snögglega. Andartak horfðust þau i augu. Svo var bilhurðnni skellt og bifreiðinni ekið af stað og hvarf hún brátt í umferðinni. Nú mundi hann að líkindum aldrei framar sjá hana. Hann gekk hægt yfir torgið, að götu sem þar var. Öðr- um megin við götuna var grasflöt, og fyrir handan bygg- ingar úr graníti og þeirra meðal ein turnbygging. Efst á turninum var klukka, sem vart varð greind vegna þokunn- ar. Andartak fannst honum, að hann væri kominn til Lund- úna. Svo Likt var umhorfs þarna. „Herra trúr,“ hugsaði Catleigli með sér, þegar liann sá lögregluþjón alveg eins klæddan og „London-Bobby“ (Lundúna-lögregluþjón) koma á móti sér. Hann liafði hjálm á liöfði og brugðið ólinni undir hölcu sér. Og liann bar á herðum regnverju, sem var vot af þokusuddanum og gljáði því öll. Þetta var maður hár vexti með dölíkleitt efrivararskegg, og Catleigh gat ekki varizt því, að fara að hugsa um lögreglukórinn í „Sjóræningjarnir frá Pen- zance“. Og í þessum svifum bergmálaði í granítbygging- unum klukknahljómur úr turninum.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.