Rökkur - 01.06.1950, Side 24

Rökkur - 01.06.1950, Side 24
72 ROKKUR herra Moxx,“ sagði Catieigh, „en ihúarnir líklega, sumir hverjir — láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna?“ Loks fékk Moxx mælt. Hann stóð snögglega á fætur. .Heri’a Catleigh, mér þykir þetta mjög leitt. Eg er sann- færður ums að grunur hefir fallið á yður alveg að ástæðu- lausu. Eg vona, að þér haldið ekki, að eg —“ „Þér þekkið þá þennan heiðursmann, herra?“ sagði lög- regluþjónninn og virtist mega riáða af svip hans, að þetta væri allt öðru vísi en hann hafði búist við. „Vissulega þekki eg hann,“ sagði Moxx stuttlega. „Það ei að segja — eg — við kynntumst á skipinu á leið hingað frá Seattle. Hvernig gat yður doltið í hug að —?“ Lögreglumaðurinn lyfti upp hönd sinni. „Afsakið mig, herra. Eg rakst á herra Catleigh fyrir of- an tröppurnar, skömmu áður en eg van5 var við yður. Hann hélt á hatti í hendinni. Hinum sanxa hatti, sem þér þekktuð — hattinum yðar. Lýsing yðar á árásarmanni yð- ar gæti sem bezt átt við hann, herra. Þér eruð vissir xxm, að hann er ekki maðurinn?“ „Þetta nær engri átt,“ sagði Moxx og gekk fram og bjóst til að taka í hönd Catleigh. „Herra Catleigh, mér fellur þetta mjög illa. Viljið þér ekki snæða hádegisverð með mér á morgun. Eg mun reyna að koma því til leiðar5 að l>ér fáið betra álit á okkur en þér hafið fengið af fyrstu kynnum.“ Catleigh tók í hönd lxans framrétta, en sleppti henni þegar aftur. „Þökk,“ sagði hann, „eg var í þann veginn að setjast að miðdegisverði, þegar lögreglumaðurinn kom. Ef málið er til lykta leitt á viðunandi hátt mun eg hverfa aftur til gisti- húss míns.“. Lögreglumaðurinn ræskti sig. „Herrar mínir, afsakið, en málið er ekki til lykta leitt.“ Hann opnaði litlu vasabókina sína og byrjaði að lesa: „Klukkan sex var eg að gegna venjulegum varðskyldu- störfum niðri á bryggju, þegar strandferðaskipið frá Seattle kom. Eg veitti hexra Moxx athygli, er hann fór á- samt öðrum farþegum. Hann lagði leið sína eftir bökkun-

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.