Rökkur - 01.06.1950, Side 27

Rökkur - 01.06.1950, Side 27
ROKKUR 75 miðdegisverðurinn bíður yðar vafalaust enn. Viljið þér að eg fylgi yður til gistihússins?“ „Nei,“ sagði Catleigh með áherzlu. „Eg vil fara einn, ef yður stendur á sama.“ Hann kinkaði kolli til Moxx og þegar hann var kominn út úr borðstofunni greikkaði hann sporið. Hann næstum hljóp niður stigann. Hann heyrði lögregluþjóninn kalla á ef.ír sér, en ansaði því engu. Hann vonaði, að fundum þeirra bæri aldrei saman aftur. Moxx lokaði dyrunum á eftir lögregluþjóninum og studdist svo upp að dyrastaf og þurrkaði svitann af enni sér. Honum var léttir af því, að hann var farinn, þótt fjarri vær, að öllum áhyggjum væri af honum létt. Því næst gekk hann til félaga síns. „f hamingju bænum; Hambly, horfðu ekki svona á mig,“ sagði hann. „Hver er hún, Moxx?“ „Æ, eg verð víst að segja þér frá því. Það er kínversk sölustelpa. Etta heitir hún. Eg hélt, að það hefði verið hún sem kallaði á mig. Stúlka kallaði á mig. Þess vegna fór eg niður á bryggjuna.“ Hambly var dauðskelkaður á svip. „Kinverjar,“ sagði hann. „Þeir eru ekki nein lömb við að leika,“ sagð hann. „Eg óttast —“ „Talaðu ekki svona heimskulega, Hambly, það er ekk- ert að óttast. Hvað óttastu annars?“ „Að eg verði stunginn rýtingi í bakið — eða að poki verði dreginn á höfuð mér og að mér verði svo hent í höfnina.“ Moxx ýtti frá sér diskinum. Hann minntist þess hvernig honum leið, er hann var að kafna í polcanum. „Eg hefi misst alla matarlyst,“ sagði hann.

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.