Rökkur - 01.06.1950, Side 29

Rökkur - 01.06.1950, Side 29
RÖKKUR 77 hann gat ekki verið langt í burtu. Ef hann kallaði kynni hann að heyra til hans, en — Kínverjinn mundi taka til fótanna. Meðan hann hikaði bar allt í einu birtu út um gluggann, sem hann stóð undir. Það hafði verið kveikt ljós í herberginu. Kínverjinn leit í áttina til hans i sömu svifum — og Catleigh var ekki i vafa um, að hann mundi hafa þekkt sig þegar. Kinverjinn stakk hendinni leiftur- hratt í vasa sinn. Catleigh sá eitthvað glitra í hendi Kín- verjans og kastaði sér til hliðar. Rýtingur Kínverjans skall i veggnum og valt í grasið. Catleigh beygði sig niður til þess að gripa vopnið og skauzt svo fyrir hornið. Hann dró andann djúpt. Yissulega munaði ekld nema liárs- breidd, að liann slyppi við bana. Það var dimmt þar sem hann stóð og ekkert hljóð heyrðist — en raunar hafði ekkert hljóð heyrzt allan tímann, nema þegar hnífurinn skall á veggnum. Kínverj- inn hafði ekki tekið til fótanna að þvi er virtist — lield- ur horfið inn í runnana. Vel gat verið, að liann biði þar . enn. Catleigh handlék hnífinn. Þetta var ekki neitt leik- fang. Blaðð var langt og mjótt. Þetta var rýtingur; sem ætlaður var til að kasta. Hann var ekki í vafa um, að Kínverjinn hafði þekkt hann sem manninn, sem bjargað hafði lífi Moxx. Yitan- lega gat Catleigh staðið á sama hvað varð um Moxx — en hann var flæktur í málið. Hann gat ekki upprætt grun- inn um, að hann væri við málið riðinn. Og þetta breytti afstöðu Catleighs til lögreglumannsins. Hann hafði ekkert a móti félagsskap lians nú. Hann hugleiddi hvort hann ætti að kasta frá sér hnífn- um, þar sem hann stóð, og hætta á að halda til gistiliúss síns. En þá flaug honum Moxx í hug. Átti hann að aðvara hann? Honum geðjaðist ekki að honum, en hann langaði ekkert til að lesa í blaðinu næsta dag, að Moxx hefði verið myrtur, ef aðvörun frá lionum gæti bjargað honum. Hann var ekki að velta þessu neitt fyrir sér — lagði þegar leið sina að fordyri hússins, gekk inn og hringdi dyrabjöllunni í íbúð Moxx. Og hann var því feginn að komast inn úr þokunni.

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.