Rökkur - 01.06.1950, Page 30

Rökkur - 01.06.1950, Page 30
78 ROKKUR Ling Phi opnaði dyrnar og horfði með grunsemdarsvip á hann. Catleigh gat ekki varist því að hugsa, að hann gæti ekki snúið sér við i Port Albert án þess að sjá Kínverja. „Eg þnrf að finna lierra Moxx.“ Ling Phi hristi höfuðið og ætlaði að skella i lás, en Cat- leigh hindraði hann i þvi og ruddist inn, þnátt fyrir að Ling Phi mótmælti skrækri röddu. Moxx og Hambly litu á hann með furðusvip, er hann kom inn í stofuna. „Mér þykir leitt að baka yður ónæði, herra Moxx, en eg varð á vegi eins Kinverjans, sem reyndi að nema yður á brott. Hann stóð niðri á flötinni og liorfði upp i gluggana á íbúð yðar. Eg lield, að hann hafi þekkt mig — að minnsta kosti varpaði hann þessum hníf að mér.“ Catleigh henti hnífnum á borðið. Moxx reis skelfdur á fætur og Hambly varð fölur sem nár og eins og hálfkæft hræðsluandvarp barst frá brjósti lians. „Herra Catleigh, eg . .“ byrjaði Moxx. „Þakkið mér ekki. Eg er ekki að hugsa um annað en bjarga sjálfum mér. Eg veit ekki í hvað þér eruð flæktur, en hvað sem það er, flækið mér ekki inn í það. Og nú verð eg að fara. Góða nótt.“ Hann var kominn niður í miðjan stiga, þegar Moxx, sem hafði farið á eftir honum, náði i hann. Hann talaði i hvíslingum: „Eg fullvissa yður um það, herra Catleigh, að þér þurfið ekki að óttast um öryggi yðar.“ „Það þykir mér vænt um að hevra. Eg geri ráð fyrir, að þér séuð ekki í neinum vafa um hvernig í öllu liggur, en \dtanlega kemur þetta ekki mér við.“ Moxx hikaði. Svo kinkaði hann kolli. ,,Eg lield eg viti það. Viðskipti. Einliver er að revna að hindra mig i að ná ákveðnu marki.“ „Hvers vegna segið þér ekki lögreglunni frá þessu? Þér beitið þó varla þeim viðskiptaaðferðum, að lögreglan megi ekkert um það vita?“ „Eg get ekki sagt henni frá því,“ sagði Moxx og yppti öxlum. Svo bætti hann við skjótlega: „Misskiljið mig ekki.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.