Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 36

Rökkur - 01.06.1950, Blaðsíða 36
84 ROKKUR það var þó. Gramur í skapi fór hann að hafa fataskipti. Hann var i tíu mínútur að hafa fataskipti og fór nú i föt úr ullarefni. Pípu sinni og tóbakspung stakk hann í vasann og setti hatt sinn á höfuðið. Er niður kom keypti hann sér eldspýtur og tóbak. Hann var að stinga tóbakinu í vasann, þegar hann allt í einu kom aftur auga á stúlkuna, sem hann hafði orðið fyrir svo miklum áhrifum af. Hún fór gegnum forsalinn og inn í setustofuna. Hún var klædd í dragt úr ullarefni og hélt á regnkápu á handleggnum. Hann sá hana ganga að stól út við einn gluggann. Stólhnn var með háu baki og er hún var sezt var hún gersamlega hulin sjónum hans. Hvert ætlaði hún á slíku kvöldi sem þessu? Einkenni- legar tilfinningar, blandnar forvitni og afbrýðisemi, náðu valdi á honum. Hann ásetti sér að komast að raun um eftir hverjum hún væri að bíða, tók af sér hattinn og sett- ist skammt frá henni, en þannig, að hún gat ekki séð hann. Hann þurfti ekki lengi að bíða. Einn af vikadrengjum gistihússins, einkennisklæddur, gekk til hennar og mælti lágt og kurteislega: „Ungfrú Maureen 0’Donnell?“ Catleigh mundi vel eftir upphafsstöfunum á töskum hennar. Svo að hún hét Maureen O’Donnell — fagurt nafn, nafn, sem ómaði sem unaðslegur tónn. Hún svaraði drengn- um, einkennilega mjúkri og fagurri rödd, með hreim, sem bar þvi vitni að hún var frá Dublin, þótt aðeins vottaði fyrir vestur-írskum málhreim: „Eg er Maureen 0’Donnell.“ „Bifreið yðar er komin, ungfrú.“ „Biddu bifreiðarstjórann að koma hingað inn — þegar.“ „Hingað?“ „Vissulega. Eg verð hér.“ Vikadrengurinn fór og kom aftur að vörmu spori og í fylgd með honum bifreiðarstjóri í dökkleitum einkennis- búningi, sem hélt á liúfu sinni í hendinni. Catleigh virti manninn fyrir sér. Hann var lágvaxinn, en sterklegur, breiðleitur og hrokkinhærður. Augljóst var, að maðurinn hafði einhvrn tíma nefbrotnað. Hann nam staðar fyrir

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.