Rökkur - 01.06.1950, Page 38

Rökkur - 01.06.1950, Page 38
86 RÖKKUR „Viljið þér aka með mig til Clonaleur?“ ,,I kvöld, ungfrú?“ „Vissulega.“ „t>að er orðið nokkuð áliðið að leggja í slíkt ferðalag.“ „Það verður enn seinna, ef það dregst á langinn, að við komumst af stað.“ Maðurinn hló aftur með sama ánægjuhreimnum í röddinni. „Eg' verð víst að reyna það,“ sagði hann. — Þau gengu fram hjá Catleigh, en hvorugt sá hann. Hann fór í humáttina á eftir þeim, og er hann kom út á tröppurnar var hifreiðin komin af stað. Það vUr dökk, lokuð bifreið, sem þau óku i. I sömu svifum var annari bifreið ekið á eftir þeim. Um leið kom Catleig'h auga á bifreiðarstjórann. Það var Kínverjinn, sem hann hafði séð í káetuglugganum, sá hinn sami, sem kastað hafði rýtingnum að honum. Það var ekki í fyrsta skipti í kvöld, sem hann varð gripinn ótta, en — nú var hann óttasleginn stúlkunnar vegna. Hann stóð þarna eins og hjálparvana — því að hann sá ekki fram á, að hann gæti gert neitt. Ungfrú Maureen O’Donnell, fná Menlokastala við Cor- ribvatn í Galwayhéraði, írlandi, hallaði sér aftur í hinni lokuðu bifreið, sem hún hafði leigt til fararinnar til Clo- naleur. Maureen var borin og barnfædd i kastala, en hún hafði htið haft af því að segja, að ferðast i bifreiðum, og hún hafði ekki haft kynni af nema gömlum lélegum bifreiðum. Heima hafði henni fallið bezt að aka í hest- vagni, og nóg var af þeim, en enn betur að ferðast um sveitina í veiðivagni, en þeir voru að kalla úr sögunni. Henni fannst þessi skínandi, fallega bifreið dásamlegt farartæld. Sætin voru mjúk og þægileg og bifreiðin upp- hituð. Hún lét fara vel um sig, vafði teppi um fætur sér og liorfði á bifreiðarstjórann við aksturinn. Enn var þoka og umferð var ekki mikil. Hann ók gæti- lega einkum þegar hann beygði fyrir horn. „Þér akið vel, maður minn,“ sagði Maureen.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.