Rökkur - 01.06.1950, Síða 43

Rökkur - 01.06.1950, Síða 43
RÖKKUR 91 að hann væri orðinn skógarhöggsmaður í British Colum- bia. Eitt sinn, nokkuru áður en Maureen fæddist, kom skip hlaðið furuborðum i Galwayhöfn, og var viðurinn notaður tíl þess að þilja lesstofu föður hennar í Menio kastala. Hún mundi vel eftir því enn, er hún sat í þessari stofu, htil telpa; mó var brennt í eldstónni og rauðum glömpum brá fyrir á timhurþiljuðum veggjunum. Þarna var gott að vera á kvöldin, þegar kalt var í veðri, og er búið var að kveikja á kertaljósunum var ævintýrabjarmi á öllu. Þetta var áður en eldur lagði hálfan Menlokastala í rúst og þau urðu að flytja inn i austurálmuna. Skömmu seinna dó afi hennar. Eftir það heyrði hún æ sjaldnar minnst á Phelim og skógarhögg hans í British Columbia. En Brian gamh hafði látið föður hennar lofa sér því, að hann skyldi aldrei sættast við Phelim. Þetta loforð hafði verið haldið. Það var ekki fyrr en móðir Maureen var látin og faðir hennar var farinn að þrá hvíldina eihfu, sem hún heyrði aftur á hann minnzt. Menlo var ekki lengur eign þeirra nema að nafninu, margveðsett, jafnvel turnarnir á hallarálmunni, sem eftir stóð, akrarnir illa með farnir og mergsognir og snauðir af frjóefnum, en faðir henriar ól enn sína drauma um að reisa þar allt af grunni, svo að Menlo yrði nýjum ljóma orpið. „Það getur verið að Phelim sé látinn, dóthr,“ sagði faðir hennar. „Það er orðið langt um liðið siðan er eg heyrði frá honum en liann er sá eini, sé hann á lífi, sem nú getur bjargað Menlo. Ef hann er á lífi mun hann gera það vegna nafnsins, sem hann ber. Eg hefi efnt það lof- orð, sem eg gaf föður mínum, að sættast eklci við Plielim, en þú liefir engu lieitið í því efni. Ef eitthvað er satt í sög- unum um auðlegð hans, ætti hann að minnsta kosh að vera allvel fjáður. Segðu honum, að Menlo sé í rústum, og allt sé undir honum komið. Þette hið eg þig að annast, þegar eg er látinn.“ Maureen mundi, að afi hennar var hátt á sjötugs aldri, er hann lézt. Og Phelim var nú liiáaldraður maður. Kann-

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.