Rökkur - 01.06.1950, Page 44

Rökkur - 01.06.1950, Page 44
92 ROKKUR ske mundi hann ekki i lifenda tölu, er hún kæmi til Clo- naleur. Um þetta allt hugsað hún nú — og drauma deyj- andi föður síns. Þegar hann dó var ekkert eftir og hún var reiðubúin að hætta baráttunni og sagði það við lögfræðing ættar- innar, Simon Murdoch, í skrifstofu hans í Galway. Simon var gamall maður. Hann sat við skrifborð sitt með bréf i hendi, setti á sig gleraugun og mælti: „Eg er hér með dálítið, sem eg verð að segja þér frá, Maureen. Eg hefi fengið bréf frá umboðsmanni föður- hróður þíns. Þessi maður hetir Temple Moxx.“ „Er þá föðurbróðir minn, Phelim, á lifi?“ „Hann er á lifi en hann er fátækur eins og þú. Herra Moxx segir, að hann skorti fé til að greiða skatta og skyld- nr af eign sinni.“ „Hversu mikið fé skortir hann?“ „Um það er eklci stafur i bréfinu. Það er aðeins spurt um það, hvort hér sé nokkur, sem geti greitt fyrir hann.“ „Hvernig stendur á, að þú fekkst þetta bréf?“ „Það var skrifað utan á það til afa þíns, en eg var um- boðsmaður hans. Menn af minni ætt hafa farið með mól O’Donnell-ættarinnar í fjóra ættliði.“ „Eg veit það.“ „Og farizt það laglega úr hendi, eða htt heldur,“ tautaði Murdoch gamli. ,,En þetta bréf — mér — tja, það er eitt- hvað grunsamlegt við þetta.“ „Hvers vegna?“ „Eg er reyndur í viðskiptum. Og það legst i mig, að þess Moxx sé argasti lygari.“ „Þú hefir lesið bréfið, en eg ekki.“ „Lestu það,“ sagði hann og rétti henni það. Þegar hún hafði lesið það sagði hann: „Skilurðu nú við hvað eg á?“ „Nei." „Jæja, en mergurinn málsins er þetta: Phelim á jarð- eign — miklar lendur, en þær eru einskis virði til neins. Þó vex skógur á þeim, en trén eru rotin. Og frændi þinn er svo fátækur, að Moxx þessi hefir gert það af velvild

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.