Fréttablaðið - 08.02.2023, Qupperneq 26
Ford tekur við af
Honda sem hefur
séð Red Bull fyrir vélum
og stígur inn í stöðu sem
Porsche átti að taka.
njall@frettabladid.is
Ford hefur skrifað undir sam-
starfssamning við Red Bull og
systurlið þess Alpha Tauri og snýr
aftur í Formúluna frá 2026–2030
að minnsta kosti. Þetta er í fyrsta
skipti sem Ford kemur í Form-
úlu 1 í 18 ár, en árið 2004 sá Ford
Jordan-liðinu fyrir vélum ásamt
því að reka sitt eigið lið undir nafni
Jagúar. Ford hefur gert góða hluti í
Formúlu 1 gegnum tíðina og hefur
unnið þriðju flesta titla nokkurs
vélarframleiðanda, eða tíu titla
framleiðenda og þrettán titla
ökuþóra. Einnig hefur Ford verið
í vinningssæti alls 174 sinnum í
keppnum Formúlu 1. Síðasti titill
Ford var með Benetton-liðinu
þegar Michael Schumacher hreppti
heimsmeistaratitilinn árið 1994.
Þegar er hafin þróun á vélunum
sem notaðar verða árið 2026 en
þær þurfa að nýta meira rafmagn
og ganga fyrir tilbúnu eldsneyti.
Þróunarvinnan fer fram hjá Red
Bull Technologies en Ford mun
hafa mikil áhrif á þróunina með
því að koma svona snemma inn.
Ford tekur við af Honda sem hefur
séð Red Bull fyrir vélum og stígur
í raun og veru inn í stöðu sem
Porsche átti að taka. Talið er að
fleiri þættir hafi einnig haft áhrif
á ákvörðun Ford. Í fyrsta lagi eru
vinsældir Formúlu 1 í Bandaríkj-
unum á hápunkti en þrjár keppnir
fara þar fram ár hvert auk þess sem
Netflix-sjónvarpsþátturinn Drive
to Survive er mjög vinsæll. Auk
þess stendur til að General Motors,
erkióvinur Ford í Bandaríkjunum,
komi inn í Formúluna gegnum
Cadillac. Til stendur að stofna nýtt
lið með því nafni sem Michael
Andretti mun stjórna en hann
er sonur fyrrverandi meistara
Indycar og Formúlu 1, Mario And-
retti.
Eignarhald í Formúlu 1 getur
verið f lókið og aðkoma Ford að
tilurð Red Bull-liðsins er athyglis-
verð. Fyrir næstum þremur
áratugum fékk Sir Jackie Stewart
Ford til að fjármagna nýtt Form-
úlulið. Liðið hans hét einfaldlega
Stewart Grand Prix og keppti í
þrjú tímabil og vann aðeins eina
keppni, á Nurburgring árið 1999.
Þá seldi Sir Jackie liðið til Ford
sem breytti liðinu til að nota
Jagúar-merkið næstu fimm árin.
Jagúar gekk ekki vel í Formúlu 1
og gerði lítið til að auglýsa merkið
eins og ætlunin var. Þá seldi
Ford liðið til orkudrykkjafram-
leiðandans Dietrich Mateschitz og
fimm árum seinna vann Red Bull
Racing sinn fyrsta heimsmeistara-
titil, þann fyrsta af fjórum með
Sebastian Vettel. Núna er Ford að
koma aftur inn í Formúluna með
liðinu sem það tók þátt í að búa til
seint á síðustu öld. n
Ford kemur aftur
í Formúluna
Barrichello keyrir á Stewart-Ford
bíl sínum á Hungaroring árið 1999.
mynd/epa
njall@frettabladid.is
Þar sem þriðja kynslóð Volkswa-
gen Touareg kom á markað árið
2018 er kominn tími á andlits-
lyftingu bílsins, en samkvæmt
nýjustu njósnamyndum Auto
Express er líklega stutt í að hann
verði kynntur.
Aðeins er um lítils háttar
útlitsbreytingar að ræða en
aðaláherslan er á tækniþáttinn
svo að hann geti betur keppt við
nýjan Mercedes-Benz GLE til
að mynda. Bíllinn mun koma á
MLB Evo-undirvagninum eins
og áður svo að vélbúnaður mun
ekki breytast og því er líklegast að
við sjáum hann helst hérlendis í
tengil tvinn útgáfunni sem er 456
hestöfl samtals. Hvort breytingar
á mælaborði eins og í nýjum ID.7
komi fram í þessum bíl á þó eftir
að koma í ljós. n
VW Touareg fær smávægilega andlitslyftingu
Breytingar að
framan eru
helst á grilli, VW
merki og aðal-
ljósum en einnig
hafa loftinn-
tök stækkað
nokkuð.
mynd/aUTO
eXpReSS
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
12 BÍ L A BL A ÐI Ð 8. febrúar 2023 MIÐVIKUDAGUR