Fréttablaðið - 08.02.2023, Blaðsíða 32
Merkisatburðir |
Þetta gerðist | 8. febrúar 1998
1924 Nevada verður fyrsta ríki bandaríkjanna til að taka
mann af lífi með gasi.
1925 Tveir togarar farast á Halamiðum, Leifur heppni og
robertson, og með þeim 68 menn. einnig ferst vél-
bátur með sex mönnum og fimm manns verða úti.
1935 enskur togari strandar við Svalvogahamra á milli
Dýrafjarðar og arnarfjarðar og 14 manna áhöfn
hans ferst.
1971 NaSDaQ-hlutabréfamarkaðurinn hefur starfsemi.
1974 Concorde-þota lendir í
Keflavík.
1980 Kvikmyndin Veiðiferðin
er frumsýnd í reykjavík
og á akureyri. Leik-
stjóri er andrés Ind-
riðason.
Þennan dag árið 1998 lést hinn ástsæli rithöfundur, skáld
og Nóbelsverðlaunahafi Halldór Kiljan Laxness. Halldór
fæddist 23. apríl árið 1902 og er talinn einn helsti íslenski
rithöfundur tuttugustu aldar. Hann var sonur Sigríðar Hall-
dórsdóttur (f. 1872) og Guðjóns Helgasonar (f. 1870).
fyrstu æviárin bjó hann í reykjavík en flutti að Laxnesi
í Mosfellssveit árið 1905. aðeins 14 ára gamall fékk hann
sína fyrstu grein birta í Morgunblaðinu undir nafninu H.G.
Á ferli sínum skrifaði Halldór yfir fimmtíu bækur, blaða-
greinar, samdi ljóð, leikrit og fleira. Hann hlaut Nóbelsverð-
laun í bókmenntum árið 1955. frá árinu 1945 átti Halldór
fast heimili á Gljúfrasteini í Mosfellssveit og haustið 2004
keypti ríkissjóður Gljúfrastein af auði Laxness, ekkju Hall-
dórs, og opnaði þar safn til minningar um skáldið. auður gaf
safninu innbú þeirra hjóna. Halldór Laxness var tvíkvæntur
og eignaðist fjögur börn. n
Halldór Laxness lést
Skáldsögur
1919 barn náttúrunnar
1924 Undir Helgahnúk
1927 Vefarinn mikli frá
Kasmír
1931-32 Salka Valka
1934-35 Sjálfstætt fólk
1937-40 Heimsljós
1943-46 Íslandsklukkan
1948 atómstöðin
1952 Gerpla
1957 brekkukotsannáll
1960 Paradísarheimt
1968 Kristnihald undir
Jökli
1970 Innansveitarkronika
1972 Guðsgjafaþula
Okkar ástkæri
Helgi Daníelsson
Lyngheiði 4, Hveragerði,
lést á heimili sínu 31. janúar.
Bálför fer fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Sérstakar þakkir fyrir einstaka
umönnun til starfsfólks blóð- og krabbameinsdeildar,
11 E og G á Landspítala við Hringbraut.
Sigrún Sigurðardóttir
Auður Ýr Helgadóttir Erlendur Svavarsson
Hildur Helgadóttir Ingólfur Bjargmundsson
Eggert Þór Ólason Aníta Margrét Aradóttir
barnabörn
Fimmtán ár eru í dag síðan Fló
á skinni var frumsýnt í Sam-
komuhúsinu gamla á Akureyri.
Eftirvæntingin var mikil og segir
í frétt Fréttablaðsins að uppselt
hafi verið á 24 fyrstu sýningarnar.
Leikhópurinn samanstóð af
ungum leikurum í bland við
reynslubolta. Jóhannes Haukur
Jóhannesson segir það hafi verið
stórkostlegt að leika sýninguna
enda varla autt sæti.
benediktboas@frettabladid.is
Hinn kunni gamanleikur George Fey-
deau, Fló á skinni, var frumsýndur á
þessum degi í Samkomuhúsinu gamla
á Akureyri fyrir 15 árum. Alveg eins og
sýningarnar sem settar voru upp 1973
og 1989 varð Flóin mjög vinsæl. Uppselt
var á fyrstu 24 sýningarnar sem fóru í
sölu en María Sigurðardóttir leikstýrði
stórum hópi leikara í sviðsetningu á
nýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar.
Flóin var fyrst sýnd hér á landi í leik-
hússtjóratíð Vigdísar Finnbogadóttur í
Iðnó og gekk þá í þrjú leikár við miklar
vinsældir sem má ekki síst þakka leik
Gísla Halldórssonar. Velgengni hennar
varð til þess að Leikfélag Reykjavíkur
réðst aftur í sviðsetningu hennar í Borg-
arleikhúsinu. Munu hátt í 70 þúsund
gestir hafa séð þessar sýningar.
Flóin er eitt margra verka sem George
Feydeau skrifaði á hátindi franska
borgaralega farsans. Verkið dró dám
af tvískinnungi í borgaralegu siðferði á
keisaratímanum seinni í Frakklandi en
Feydeau var afar snjall byggingarmeist-
ari í f léttu blekkinga, misskilnings og
feluleiks sem útheimti tiltekinn fjölda
útganga í opið rými.
Þrettán leikarar tóku þátt í sýning-
unni, þar á meðal Jóhannes Haukur
Jóhannesson, sem þarna var nýút-
skrifaður. „Ég man að leikhúsaðsóknin
á Akureyri var það gríðarleg að við
vorum að leika um sex sýningar í viku
og fundum mikinn meðbyr með leik-
félaginu og því sem við vorum að gera,“
rifjar hann upp.
„Þetta var eins og mastersnám að fara
norður að leika. Svo gekk sýningin mjög
vel og við komum með hana suður og
sýndum hana hér í Reykjavík.
Ég man að Árni Tryggvason lék lítið
hlutverk og Þráinn heitinn Karlsson á
móti honum þannig að við fengum að
stíga á svið með gömlu meisturunum
og snillingunum – sem var ótrúlega
gaman og sérstakt. Eitthvað sem manni
þykir vænt um eftir á,“ segir Jóhannes og
heldur áfram: „Svo var Randver þarna.
Það var æðislegt að hafa hann þarna.“
Hann segir að koma Magnúsar Geirs
Þórðarsonar í leikhússtjórastólinn
hafi hleypt miklum krafti í starfið. „Ég
held að það sé alveg hægt að slá því
föstu. Þó að það hafi verið starfsemi
þar í marga tugi ára þá færði hann þetta
upp á næsta plan hvað varðar metnað.
Hann talaði alltaf um að við værum ekki
að gera leikhús bara fyrir Akureyringa
heldur allt landið. Hann lagði gríðar-
legt púður í að gera samninga við flug-
félögin og reyndi að fá allan bæinn með
í að skapa stemningu og með ferðum
norður. Að fara norður á skíði og leikhús
og út að borða. Honum tókst vel til eins
og dæmin sanna og við fundum vel fyrir
því. Þegar við stóðum á sviðinu sex sinn-
um í viku og ekki autt sæti í húsinu.“ n
Fimmtán ár síðan Fló á skinni
var frumsýnt norðan heiða
Leikhópurinn sem sýndi fló á skinni samanstóð af reynsluboltum í bland við unga og nýútskrifaða leikara. Mynd/Aðsend
Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. fréttAblAðið/Anton brink
Þetta var eins og masters-
nám að fara norður að
leika.
Jóhannes Haukur Jóhannesson
16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 8. FeBRúAR 2023
mIÐVIKUDaGUR