Fréttablaðið - 08.02.2023, Side 38

Fréttablaðið - 08.02.2023, Side 38
FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá. Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að ræða helstu mál líðandi stundar. Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á Hringbraut, dv.is og frettabladid.is Kvikmyndatónlist Gísla Galdurs Þorgeirssonar við hina fádæma vinsælu Villi- bráð er komin á Spotify þar sem fuglahljóð ýmiss konar óma í undirmeðvitund per- sóna myndarinnar. toti@frettabladid.is Fólk streymir enn í bíó á kvikmynd- ina Villibráð sem var frumsýnd fyrir nokkrum vikum og leikstjórinn, Elsa María Jakobsdóttir hefur verið ausin nánast einróma lofi frá frum- sýningu snemma í síðasta mánuði. Góður rómur hefur ekki síður verið gerður að tónlist Gísla Galdurs Þor- geirssonar í myndinni sem þykir bæði styðja myndina og gefa henni óræða fyllingu. „Við Elsa María búum bæði hérna úti í Kaupmannahöfn og þar byrj- uðum við að pæla í þessu,“ segir Gísli um kvikmyndatónlistina sem varð nýlega aðgengileg á Spotify. Þau sem séð hafa og heyrt vita að fuglar ýmiss konar gefa tóninn í Villibráð með söng sínum og kvaki en Gísli segir þau Elsu hafa verið með þann náttúrulega undirleik í huga strax frá upphafi. Hljóðheimur opnast „Þetta var alveg hugmynd sem við vorum að spá í frá byrjun. Fyrst var þetta kannski bara skemmtileg pæling og við vorum á tímabili ekk- ert alveg viss hvort þetta væri bara fyndin hugmynd eða hvort þetta myndi ná að bera tónlist myndar- innar allrar uppi. Þetta er bara svo ótrúlegur heimur og svo tengdist þetta náttúrlega bara alltaf meira því sem var að gerast í myndinni. Karakterunum og einhvern veginn þessu innra dýrslega eðli manns- ins.“ Gísli segist aðspurður, rétt eins og myndin sjálf, hafa fengið mikil og góð viðbrögð við tónlistinni. „Og einmitt frá fólki sem finnst þetta tala dálítið inn í undirmeð- vitundina. Músíkin liggur einhvern veginn þar,“ segir Gísli og bendir á að hann hafi líka unnið, öðruvísi þó, með undirmeðvitundina í tón- list sinni fyrir verkin Ellen B. og Ex í Þjóðleikhúsinu. „Og stundum kannski fattarðu ekki hvort það sé í rauninni eitthvað í gangi eða ekki en á endanum hefur þetta áhrif á heildarupplifunina.“ Litlu smáatriðin Gísli byrjaði að vinna að tónlistinni með Elsu Maríu í Kaupmannahöfn og hélt síðan áfram í fjarvinnu þegar vinna við myndina var í gangi á Íslandi. Hann hafi síðan komið mikið að eftirvinnslunni og þeirri miklu yfirlegu sem þurfti til þess að saman væru, svo vel væri, hljóð, þögn, tónlist og mynd. „Þetta var mikil vinna sem við unnum líka með hljóðmanninum af því það er svo mikið um þagnir í myndinni og við þurftum einhvern veginn að láta þetta flæða rétt. Það eru öll þessi litlu smáatriði sem mér finnst samt einhvern veginn skipta rosalega miklu máli fyrir lokaút- komuna,“ segir Gísli um tímafreka fínpússninguna. „Það var hellings vinna að finna réttu staðina og pásur til þess að þetta virkaði.“ Íslenskur veruleiki heillar Ekki þarf að hafa mörg orð um að allt virkaði þetta og gekk upp eins og vinsældir myndarinnar staðfesta. „Það er alveg ótrúlega skemmti- legt að þetta hafi einhvern veginn farið svona vel,“ segir Gísli um hina almennu ánægju með Villibráð. „Ég var ekki alveg að búast við að þetta yrði svona mikil bomba en ég held líka einhvern veginn að það sé kominn tími á aðeins öðruvísi myndir sem kannski tala bara meira inn í íslenskan veruleika. Fílingur- inn er einhvern veginn smá eins og fólk sé til í það,“ segir Gísli með vísan til alíslenskrar staðfæringar grunnsögu ítölsku myndarinnar Perfetti sconosciuti í handriti Elsu Maríu og Tyrfings Tyrfingssonar. n Fuglar birtu Gísla galdurinn í undirvitund Villibráðar Gísli Galdur elti fuglahljóð ofan í undirmeðvitund Villibráðarinnar. Mynd/Aðsend Söngur Villibráðarinnar á Spotify 1. Villibráð 2. Gæsin 3. Hrossagaukur og fugla- orgían 4. Vesturbær 5. Lundarokk 6. Hestur hneggjar 7. Eldgos 8. Þú ert að fara heim 9. Gæsin og Dauðinn toti@frettabladid.is Á þessari síðu blaðsins í gær var því, ranglega að sjálfsögðu, slegið fram að kráka hefði átt óvænta en tilkomumikla innkomu í nýju tón- listarmyndbandi með píanóleik Víkings Heiðars Ólafssonar á Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns. Þarna var vitaskuld um hrafn að ræða þar sem krákan er afar sjald- séður f lækingur á Íslandi og litlar sem engar sögur fara af slíkum með heimilisfesti hérna og er Engey, þar sem tónlistarmyndbandið var tekið upp, vitaskuld engin undan- tekning. Svo bergnumdir voru þó bæði leikstjóri myndbandsins, Erlendur Sveinsson, og blaðamaðurinn af f lugi krumma yfir höfuð píanó- leikarans að þeim varð tíðrætt um kráku þannig að þótt margt sé líkt með skyldum af ætt hröfnunga varð krummi, að ósekju, kráka. Tónvísi krumminn úti í Engey, fuglavinir og öll önnur sem þetta glannalega ranghermi kom í opna skjöldu eru beðin velvirðingar á rugl- ingnum sem leiðréttist hér með. n Ekki er krummi kráka nema síður sé Hrafninn flýgur en sitjandi kráka sveltur fjarri Íslands ströndum. Mynd/Aðsend Leiðrétting 22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 8. FEBRúAR 2023 MiðViKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.