Fréttablaðið - 08.02.2023, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Verðbólgumarkmið Seðla-
bankans eru að eðli ekki ósvipuð
mínum þyngdarmarkmiðum.
Þetta kemur ekki á óvart því fyrir
liggur að ég ber ábyrgð á hvoru
tveggja, eðlilega á eigin þyngd
en einnig verðbólgunni eins og
annar ótíndur almenningur. Í
báðum tilvikum eru sett mark-
mið sem mögulega eru ekki beint
raunhæf en ég hef tekið eftir því
að árangur minn í þyngdar- og
verðbólgustjórnun helst í hendur
á tímaás. Til dæmis var ég í
góðum málum til ársins 2018 en
þá um sumarið byrjaði aðeins
að halla undan fæti; nokkur kíló
og smá verðbólguskrið. Ég náði
tökum á þessu haustið árið eftir,
en frá vori 2020 er ég í ruglinu.
Ég er sumsé eitthvað frá þyngd-
armarkmiðum mínum, þó ég
borði hollt, hreyfi mig og skamm-
ist í sjálfri mér reglulega. Samt
safnast kílóin. Ég viðurkenni að
hafa gefið út óraunhæfar spár um
aðlögun að þyngdarmarkmiðinu
en það hefur helst gerst í mát-
unarklefum fataverslana. Síðustu
60 mánuði hef ég þannig verið
um það bil 4–5 prósentum frá
markmiðum mínum í að minnsta
kosti 45 mánuði. Ekki gott.
Þegar kemur að verðbólgu-
stjórnun er ég lengra frá mark-
miðinu, þó að vextir séu upp úr
öllu valdi og ég skammist í sjálfri
mér daglega. Samt vex verð-
bólgan. Ég hef ekki gefið út spár,
við erum með sérstofnun í því,
en þær eru jafnáreiðanlegar og
mátunarklefaspárnar mínar. Í 10
af 60 mánuðum hefur þetta verið
viðunandi hjá mér. Í 50 mánuði
hefur markmiðið ekki náðst og
nú er svo komið að við erum
engin 4 prósent fram úr mark-
miðum heldur fjórfalt!
Afsakið. n
Markmið
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
Lífið er að muna
að febrúar er oftast
bara 28 dagar
Lífið er ... að mæta því óvænta
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN