Fréttablaðið - 10.02.2023, Page 11
Guðmundur
Steingrímsson
n Í dag
Í gær náði ég mér í nokkra báru-
járnsafganga hjá manni í Hafnar-
firði, sem ég ætla að nota sem þak
á forláta hjólaskýli. Þessi viðskipti
fóru þannig fram að fésbókarsíða
fólks sem býr yfir afgangsbygg-
ingarefnum var skoðuð, og þar
reyndist sem sagt þessi maður búa
yfir afgöngum af svörtu bárujárni,
sem hann vildi losna við, og ég
þurfti.
Frábær hringrás og góð nýting á
efnum og allir glaðir.
Almennt séð er það mjög gott að
sá kimi hagkerfisins sem höndlar
með afgangsefni og endurnýtingu
á úrgangi, sé vaxandi, og haugar af
dóti séu sóttir og notaðir. Á þessum
hugsunarhætti geta þó verið furðu-
legar hliðar. Til dæmis er grunsam-
legt ef mikil verðmæti fást gefins
á svona síðum eða verið er að selja
til dæmis gullúr eða Apple tölvur á
mjög lágu verði. Slíkt gæti jú verið
þýfi, eða á einhvern hátt illa fengið
fé, eða gæti bent til þess að við-
komandi væri að gefa eitthvað sem
hann í raun ætti ekki, eða kynni
ekki að meta.
Í gegnum tíðina, sem ég hef
skoðað ýmsa miðla í leit að ókeypis
verðmætum eða notuðu dóti á
góðu verði, hef ég rekið augun í það
að íslenska ríkið er mjög umfangs-
mikill aðili í þessum geira. Íslenska
ríkið hefur ítrekað auglýst mjög
ríkuleg verðmæti á þessum síðum
— og þá meina ég mjög, mjög mikil
verðmæti — og þessar auglýsingar
eða færslur hafa iðulega vakið
undrun mína. Ég ætla að nefna
nokkur dæmi.
Fyrir mörgum áratugum, í
notað og nýtt dálki í einhverjum
af gömlu dagblöðunum sá ég til
dæmis að íslenska ríkið auglýsti
heila sjávarauðlind. Auglýsingin
var einhvern veginn svona: Er með
sjávarauðlind — þorsk, ýsu, loðnu,
humar, og margt fleira af fínu
sjávarfangi í sjó umhverfis Ísland.
Fæst ókeypis ef sótt.
Nokkru síðar auglýsti íslenska
ríkið aftur, svona rétt þegar
internetið var að byrja, að mig
minnir. Þá var ríkið að gefa frá sér
orkuauðlind. Auglýsingin, gott ef
hún var ekki á bland.is, hljómaði
einhvern veginn svona: Erum með
fossa, hveri, ár og þess háttar sem
hæglega má nýta til að framleiða
orku. Fæst ókeypis ef sótt.
Ekki var að spyrja að við-
brögðunum. Nokkrir stórir aðilar,
erlendir, sáu sér fljótt leik á borði,
og nú hefur tekist að koma upp
undir 80% af orkunni í þeirra
hendur fyrir slikk. Markmiðinu
náð. Það var ómögulegt að láta
þetta liggja svona ónotað.
En furðulegt samt. Það hefði
vafalítið verið hægt að fá fyrir
þetta gott verð.
En þetta hélt áfram. Bankar fást
fyrir gjafverð. Ríkið vill losna við
þá. Ísland allt, náttúruperlur og allt
meðfylgjandi fæst ókeypis fyrir
túrista. Bara að koma á staðinn.
Íslenska ríkið hlýtur að vera
einhver gjafmildasti aðili sem um
getur í sögu mannkyns. Það sem er
áhugavert við þessar auglýsingar
og færslur íslenska ríkisins um
ókeypis verðmæti, er að í þráðum
og samtölum um þessi viðskipti
ber iðulega á því að einhverjir geri
kröfu um að þeir sem fái verðmæt-
in borgi fyrir þau. Mörgum sárnar
óréttlætið í þessu, sem kallað er.
Mörgum finnst skrýtið að sumir
Ókeypis ef sótt
geti fengið svona verðmæti og
skapað sér mikinn auð úr þeim.
En þessar vangaveltur hafa jafnan
verið útkljáðar með þeim hætti
að sá sem fengið hefur verðmætin
fyrir slikk eða ekki neitt segir ein-
faldlega að hann geti ekki borgað.
Þar með er það mál útrætt. Þeir
sem fengu sjávarauðlindina geta
ekki borgað, segja þeir. Þeir sem
fengu orkuauðlindina geta alls
ekki borgað meira. Allir segjast
fara á hausinn ef þeir þurfa að
borga. Og ríkið gerir ekki athuga-
semdir við þau svör. Þetta er allt
í góðu.
Íslenska ríkið, þrátt fyrir
gagnrýni, lætur ekki af þessari
gjafsemi. Nú síðast hefur örlætið
birst í því að íslenskir firðir hafa
verið auglýstir til notkunar. Aug-
lýsingin hefur hljómað svona:
Höfum fyrirliggjandi nokkra víða
firði með lífríki og þess háttar, til
dæmis á Vestfjörðum, þar sem er
hægt að rækta fiska í sjókvíum.
Fæst ókeypis.
Nú er svo komið að fólk er
farið að reka í rogastans yfir
þessu furðulega hátterni ríkis-
valds. Hvað er hér á seyði? Hvaða
hugsanavilla er hér á ferðinni?
Nú síðast hefur sjálf Ríkisendur-
skoðun barið í borðið og gefið út
skýrslu sem er einn samfelldur
áfellisdómur yfir þessu háttalagi.
Sjókvíaeldi hefur vaxið stjórn-
laust. Fáir stórir aðilar hafa fengið
að vaða í firðina án allrar reglu-
umgjarðar og án þess að þurfa að
borga fyrir leyfi.
Þetta er rugl. Meira að segja
maðurinn í Hafnarfirði hafði vit á
því að rukka smá fyrir þá báru-
járnsbúta sem voru heillegastir. Ég
svaraði auðvitað:
„En þá fer ég á hausinn.“
Djók. n
Frjáls framlög enginn kostnaður!
www.facebook.com/samferdafoundation
Þú finnur okkur á Facebook – ekki hika við að fylgja okkur þar, við
gerum góðverk í hverjum mánuði fyrir íslensku þjóðina.
Hjá okkur í Samferða er enginn kostnaður og allt rennur
óskert til þeirra sem þurfa svo sannarlega á að halda.
Þú getur hringt í eftirtalin númer:
VILTU GLEÐJA FORELDRA LANGVEIKRA BARNA
EÐA FJÖLSKYLDUR ÞAR SEM FORELDRI ER AÐ
GLÍMA VIÐ LÍFSÓGNANDI SJÚKDÓM?
907 1081 - 1.000 kr. 907 1083 - 3.000 kr.
907 1085 - 5.000 kr. 907 1090 - 10.000 kr.
Fréttablaðið skoðun 1110. Febrúar 2023
FÖsTuDAGuR