Fréttablaðið - 10.02.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT Austurmörk 21 • 810 Hveragerði
Hornsteinn
60 ára afmælissýning
11/02 – 20/08 2023
FÖSTUDAGUR 10. febrúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Jóhanna B. Magnúsdóttir garðyrkju-
fræðingur sér um fræðsluna.
starri@frettabladid.is
Boðið verður upp á fræðslu um
ræktun matjurta og fræskipti-
markað að henni lokinni í Borgar-
bókasafninu Sólheimum í Reykja-
vík á morgun, 11. febrúar. Þar mun
Jóhanna B. Magnúsdóttir garð-
yrkjufræðingur fjalla um ræktun-
aráætlun matjurta, sáningu og
forræktun mismunandi tegunda,
vaxtarrými og jarðveg í beðum.
„Það er alls ekki nauðsynlegt að
eiga garð til að rækja grænmeti.
Á svölum og pöllum sem snúa í
sólarátt er hægt að rækta ýmislegt,
til dæmis salat, steinselju, spínat,
baunir, grænkál og jafnvel kúrbít.
Einnig kryddjurtir, svo sem salvíu,
kóríander, dill og timjan,“ segir
Jóhanna.
Skipst á fræjum
Ræktendur kannast flestir vel við
að sitja uppi með slatta af fræjum
sem vilja fara forgörðum. „Ef við
ætlum að rækta tíu plöntur af
blómkáli er gott að deila restinni
af fræjunum með öðrum, enda
eru um 100 til 150 fræ í pokanum.
Reyndar má geyma flest fræ milli
ára en kosturinn við að taka þátt í
fræskiptimarkaði er ekki síst félags-
skapurinn enda gaman að hitta fólk
með sömu áhugamál og við sjálf.“
Fræðslan hefst klukkan 11 og fræ-
skiptimarkaðinum lýkur klukkan
15 en stendur út vikuna, eða til 18.
febrúar. n
Nánari upplýsingar á borgarboka-
safn.is, undir viðburðir.
Fræðsla um
ræktun matjurta
Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari og söngkonan GDRN flytja íslenskar tónlistarperlur í Hörpu á morgun laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Taumlaus tónlistarsköpun í kortunum
Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari hefur í mörgu að snúast þessa dagana. Undanfarnar
vikur hefur hann leitt Idol-hljómsveitina í samnefndum þáttum. Á morgun flytja hann og
GDRN lög af plötu sinni, Tíu íslensk sönglög, í Hörpu og ný plata er væntanleg frá honum. 2