Fréttablaðið - 10.02.2023, Qupperneq 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
bakþankar |
Odds Ævars
Gunnarssonar
Ég elska að kaupa. Kaupa, kaupa,
kaupa, kaupa, kaupa, kaupa,
kaupa, kaupa, kaupa, kaupa.
Ég er líka Íslendingur. Að kaupa.
Að neyta. Það er íslenska leiðin.
Ég hef áður sagt frá því hversu
gaman mér finnst að fara út að
borða. Borða, borða, borða, borða.
Það er bara eins og ég segi oft:
Amazing.
Að fá sér drykk á happy hour
eftir vinnu. Amazing. Kaupa ný
húsgögn. Amazing. Fara í keilu.
Amazing. Fara í bíó. Amazing. Í
leikhús. Amazing.
Það er svo gaman að kaupa. Allt
sem hugurinn girnist og efna-
hagurinn leyfir. Og aðeins meira
en það.
Hvenær byrjaði maður að elska
að neyta? Ég veit það ekki, því ég
man ekki eftir öðru en að mér hafi
alltaf fundist geðveikt að neyta og
neita mér ekki um neitt. Neyta,
neyta, neyta, neyta, neyta, neyta,
neyta, neyta, neyta.
Það kom mér því gersamlega
í opna skjöldu og mikið á óvart
þegar ég frétti nýlega að ég væri að
gera eitthvað rangt. Hvað í ósköp-
unum er þessi verðbólga segiði?
Hvað segirðu að bjórinn kosti?
1.650? Í alvörunni? 9,9 prósenta
verðbólga? Í alvörunni? Ertu að
grínast?
Spurði Google. VAR VERÐBÓLG-
AN 70% 1983 TIL 1984?!?! Hvernig
er það hægt?!?!?!?!?!?!
Bíddu nú við, var Ásgeir að
hækka stýrivexti? Aftur? Eru
Íslendingar í góðærisvanda? Ha?
Er það góðæri að neyta?!? Ég hélt
að það væri dyggð Sem ég hef
samviskusamlega skreytt mig
með í tæplega þrjátíu ár. Er ég að
verða 30 ára?!?! Hvað er það? Ég er
neyslan og verðbólgan er í mér! n
Neyslan, hún er ég
As
tri
dL
in
dg
re
n
9líf
Bubbi Morthens
Söngleikur
Eftir
Thomas
Vinterberg
Mátulegir
MACBETH
Fleiri sýningar á borgarleikhus.is
midasala@borgarleikhus.is | 568 8000
Barnasýning ársins 2022 Fyrir fólk í leit af
nýjum tækifærum