Fréttablaðið - 14.02.2023, Page 12
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
halldór
Frá degi til dags
Svo jafnvel
þeir sem
vilja sækja
sér hjálp
– þurfa að
gjöra svo
vel og bíða.
Bíða þar til
það er jafn-
vel of seint.
Fatlað fólk
getur verið
miklu virk-
ari þátt-
takendur í
samfélag-
inu en
nú er, en
til þess
þurfum við
viðhorfs-
breytingu
með nýrri
framtíð.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Fyrsta samráðsþing í málefnum fatlaðs fólks verður
haldið á fimmtudaginn í þessari viku í Hörpu í
Reykjavík. Á samráðsþinginu verða kynnt drög
að tillögum starfshóps fjölda samstarfsaðila um
fyrstu landsáætlun um innleiðingu og framkvæmd
samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs
fólks. Á sama tíma stendur yfir í forsætisráðuneyt-
inu undirbúningur að lögfestingu samningsins og
stofnun Mannréttindastofnunar. Á samráðsþing-
inu, sem ber yfirskriftina Ný framtíð, verður leitast
við að greina tækifærin fram undan og hvað skipti
máli þegar horft er til framtíðar.
Í starfi mínu sem ráðherra hef ég lagt mikla
áherslu á þau sjálfsögðu réttindi að fatlað fólk
njóti mannréttinda og mannfrelsis til fulls
og til jafns við aðra. Farið hefur fram kröftug
vinna hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, fulltrúa
sveitarfélaga og fjölda ráðuneyta við undirbúning
landsáætlunar innar.
Á undanförnum misserum hef ég stutt við fjöl-
mörg umbótaverkefni félagasamtaka, hagsmuna-
samtaka og annarra sem ætlað er að bæta lífsgæði
fatlaðs fólks og aðgengi þess að samfélaginu í takt
við áherslur samnings Sameinuðu þjóðanna.
Í síbreytilegum heimi tæknibreytinga hef ég lagt
ríka áherslu á að tryggja stafrænt aðgengi fatlaðs
fólks. Við höfum nú stigið fyrsta skrefið í því
verkefni með opnun stafræns talsmannagrunns
þar sem persónulegir talsmenn fatlaðs fólks geta nú
fengið aðgang að stafrænu pósthólfi skjólstæðinga
sinna og sinnt margvíslegum rafrænum erindum.
Nýlega tók síðan til starfa vinnuhópur um
starfs- og námstækifæri fyrir fatlað fólk í samvinnu
okkar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
og mennta- og barnamálaráðherra, auk fjölmargra
annarra aðila sem vinna nú að tillögum til að auka
tækifæri fatlaðs fólks til náms og starfa.
Fatlað fólk getur verið miklu virkari þátttak-
endur í samfélaginu en nú er, en til þess þurfum
við viðhorfsbreytingu með nýrri framtíð. Ég bind
miklar vonir við öll þau verkefni sem nú eru í
vinnslu í málefnum fatlaðs fólks, samfélagi okkar
til heilla. n
Ný framtíð
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
félags- og vinnu-
markaðsráðherra
ser@frettabladid.is
Áminning
Það getur verið svo gott sem
óbærilegt fyrir miðaldra og
þaðan af rosknara fólk að
skoða tilkynningarnar sem
rignir yfir það á samfélags-
miðlum, frá degi fram á dimma
nátt, svo sem fésbókinni,
sem mun vera orðin að helsta
athvarfi gamalmenna – og að
sama skapi helst til forpokuð
að mati yngra fólksins. Nema
hvað. Eldri mannskapurinn á
fésbók er sumsé eltur uppi af
alls konar auglýsingum sem
minnir hann þráfaldlega á
hvað aldurinn færist yfir, en
þar gengur á með húðvörum og
stinningarlyfjum, legþurrks-
sprautum og bakflæðistöflum,
brjóstsviðapillum og horm-
ónamixtúrum af öllu tagi …
Stutt eftir
En þetta er ekki nóg. Fésbókin
getur verið miklu miskunnar-
lausari en þetta. Jafnvel ófor-
skömmuð, ef út í það er farið.
Og allt í þágu sölumennsk-
unnar. Hún er farin að fylgja
manni fram á grafarbakkann
í bókstaflegri merkingu. Eða
hvernig getur maður túlkað
það öðruvísi en að tíminn sé að
verða naumur þegar tilkynn-
ingar um haganlega gerða leg-
steina eru farnar að dúkka upp
á þessum blessaða miðli? Og
auglýsingin taki af öll tvímæli
í þokkabót, því ekki einasta
bjóðist manni tveir steinar
fyrir einn, heldur sé maður
númer eitt í röðinni … n
Töluvert var fjallað um mikla aukn-
ingu heimilisofbeldis í kórónaveiru-
faraldrinum en vandinn varð svo
aðkallandi að Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin hvatti ríkisstjórnir
um allan heim til að grípa til aðgerða. Ísland
var engin undantekning í þessum efnum, en
færri vita kannski, að á liðnu ári, árinu sem lífið
fór aftur í fyrri skorður eftir samkomutakmark-
anir og lokunaraðgerðir, var slegið met í fjölda
tilkynninga um heimilisofbeldi hér á landi!
Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem
einstaklingur verður fyrir af hendi einhvers
nákomins. Gerandi og þolandi eru skyldir eða
tengdir og háttsemin felur í sér ofbeldi, hótun
eða eignaspjöll.
Fyrstu sex mánuði liðins árs bárust lögregl-
unni sjö tilkynningar á dag um heimilisofbeldi
eða ágreining. Sjö tilkynningar á dag! Sjö heimili
í molum hvern einasta dag! Reyndar vitum við
að raunverulega talan er hærri enda viðkvæmur
flokkur þar sem alls ekki öll mál rata á borð lög-
reglu. Samkvæmt þessu fjölgaði tilkynningum
um tæplega 13 prósent samanborið við árin
á undan og eru heimilisofbeldismál nú orðin
meira en helmingur líkamsmeiðinga- og mann-
drápsmála sem koma á borð lögreglu.
Flest tilvikin, eða tvö af þremur, eru af hendi
maka eða fyrrum maka en málum þar sem um
er að ræða fjölskyldutengsl, svo sem ofbeldi á
milli barna og foreldra, fjölgar einnig og eru
tæplega 32 prósent heimilisofbeldismála. Það
kemur svo varla á óvart að í um 80 prósentum
tilfella er árásaraðilinn karl og í meirihluta til-
fella, eða tæplega 80 prósent, brotaþolinn kona.
Fyrir helgi var tilkynnt um að áframhaldandi
rekstur ofbeldisgáttar Neyðarlínunnar væri
tryggður. Ofbeldisgáttina má finna á vefsíðu
Neyðarlínunnar, 112.is, en þar er safn upplýs-
inga fyrir þolendur, aðstandendur og gerendur
á íslensku, ensku og pólsku. Framkvæmdastjóri
Neyðarlínunnar sagði við tilefnið að ásókn í
úrræðin sem í boði eru hafi margfaldast frá því
vefurinn var settur í loftið.
Það má vera að sú vitundarvakning skýri
að einhverju leyti téða fjölgun tilkynninga en
markmiðið hlýtur þó alltaf að vera að fækka
sjálfum tilfellunum og koma þannig í veg fyrir
þær átakanlegu afleiðingar ofbeldis sem sannað
hefur verið að ganga mann fram af manni. Til
þess þarf vissulega aukna fræðslu – en aðallega
þarf að hugsa vandann heildstætt.
Biðlisti er plássfrekt hugtak í íslensku sam-
félagi. Biðlistar í áfengis- og vímuefnameðferð,
biðlistar hjá sálfræðingum og biðlistar hjá geð-
læknum telja hundruð, jafnvel þúsundir. Svo
jafnvel þeir sem vilja sækja sér hjálp – þurfa að
gjöra svo vel og bíða.
Bíða þar til það er jafnvel of seint. n
Sjö heimili á dag
12 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 14. FeBRúAR 2023
ÞRIðJuDAGuR