Fréttablaðið - 14.02.2023, Page 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Andrea Aldan Hauksdóttir er fædd
og uppalin í miðbænum og hefur
alltaf líkað vel við miðbæinn.
„Ég sleit barnsskónum á Baróns-
stígnum. Öll fjölskyldan býr líka
miðsvæðis, sem er mjög þægilegt
og ég lifi bíllausum lífsstíl. Það að
geta labbað allt það helsta sem
ég þarf að fara er yndislegt,“ segir
Andrea Aldan sem er myndlistar-
maður að mennt með árs fornám
úr Myndlistaskólanum í Reykjavík
og bakkalárgráðu í myndlist úr
LHÍ.
Er ætlað að búa hér
„Það er frekar krúttleg saga á bak
við hvernig ég endaði í þessari
íbúð, en ég hef búið á sama stiga-
gangi í þessu húsi í að verða sjö
ár,“ segir Andrea. Hún flutti inn
í herbergi á þriðju hæð hússins
þegar hún kom aftur heim frá
London 2015 og bjó þar í þrjú ár
uns hún keypti íbúð með fyrr-
verandi kærasta. „Sambandið
gekk ekki og ég fór út í skiptinám.
Þegar ég kom heim snemma árs
2020 var gamla herbergið mitt á
þriðju hæðinni laust til útleigu. Ári
seinna ætlar leigusalinn á þriðju
hæð að selja, en þá er risið laust og
ég flyt hingað.
Það fyrsta sem stakk mig þegar
ég flutti inn í risið var gamli, ljóti
gólfdúkurinn, sem mér fannst
draga rýmið mikið niður. Ég hafði
fengið leyfi til að mála hann en
lagði ekki í það fyrr en ég keypti
íbúðina sjálf.“ Það fór svo að eftir
ár í risinu var íbúðin sett á sölu og
Andrea keypti hana. „Mér finnst
eins og mér sé ætlað að búa hérna.
Mér líður og hefur alltaf liðið mjög
vel í þessu húsi. Mér finnst líka
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Andrea notar spegla til þess að stækka íbúðina og dreifa birtunni. Peysan er hennar eigin hönnun og handverk.
FRéttABLAðið/ERniR
Í eldhúsinu er mosagrænn veggur-
inn fallegur bakgrunnur fyrir öll fal-
legu listaverkin hennar Andreu.
Andrea leikur sér með óhefðbundnar litasamsetningar
og lakkaði meðal annars dyrakarmana í áberandi litum.
Það myndu ekki allir þora í limegrænt
og gult eldhús, en það verður að
segjast að það kemur ótrúlega vel út.
Stofan er í uppáhaldi hjá Andreu Öldu enda þykir henni
skemmtilegt að fá fólk í heimsókn.
Andrea segist hrifin af hringlaga
formum sem sést vel. Endurtekning-
in gerir einhvern sérstakan galdur.
Andrea heillast af litagleðinni í Suður-Ameríku og Mar-
okkó og það sést í íbúðinni hennar.
vera góður andi í húsinu og frá-
bærir nágrannar. Þú finnur heldur
ekki betri staðsetningu, finnst
mér.“
Speglar birtuna
Íbúðin er skráð 47 fermetrar en
þar sem hún er undir risi er gólf-
flöturinn mun stærri. Rýmið er vel
skipulagt og eru þar þrjú svefnher-
bergi og stofa. „Mér fannst íbúðin
bjóða upp á mikla möguleika,
en nú þegar eru til teikningar
til að stækka eldhús og bæta við
svölum. Draumurinn væri að bæta
við hæð og vera með myndlistar-
stúdíó heima. Ef það fæst ekki
leyfi fyrir því væri ég til í að bæta
við kvistum. Íbúðin er lítil og það
vantar svolítið birtu, sem er leiðin-
legt fyrir plöntusjúka konu eins
og mig. Ég hef sett spegla til móts
við gluggana til að reyna að grípa
og dreifa dagsbirtunni betur og
stækka rýmið. Það hefur verið ferli
að sjá hvers konar plöntur lifa af
skammdegið og skort á sólarljósi.
Ég er mjög hrifin af hringlaga
formum, en í stofunni eru fjórir
hringlaga speglar. Tveir úr Góða
hirðinum sem ég málaði, einn úr
Ikea og fjórði er frá Rúmfatalag-
ernum. Aftan á útidyrahurðinni
eru líka speglaflísar úr Ikea sem
mér finnst koma skemmtilega út.
Ég er hrifnust af gömlum hús-
gögnum með sál og hef fengið
margt gefins á Facebook, málað og
gert upp. Ég hef líka verslað mikið
í Góða hirðinum og á nytjamörk-
uðum en er samt með einhver
Ikea-húsgögn auðvitað. Á baðinu
yfir klósettinu er gamall spegill
sem ég fann í Góða hirðinum og
pússaði og lakkaði bláan. Stelpa
í Skreytum hús-grúppunni á
Facebook kannaðist við hann, en
hann er frá ömmu hennar og afa.
Það fannst mér krúttlegt.
Uppáhaldsstaðurinn í íbúðinni
er klárlega stofan. Mér finnst mjög
gaman að bjóða fólki í mat og spil,
og svo eyði ég mestum tíma þar. Sá
hlutur sem setur svo punktinn yfir
i-ið er ljósakrónan í miðri íbúðinni
sem ég fékk í Lömpum í Hafnarfirði
og lítur út eins og hálfgerður kol-
krabbi,“ segir Andrea.
Páfuglinn í fjölskyldunni
Það fyrsta sem blasir við þegar
komið er inn í íbúðina er einstök
litagleði og óvæntar og heillandi
litasamsetningar. Aukaherbergið
leigir Andrea út til grískrar vin-
konu sinnar, Jaris, sem kennir í
Alþjóðaskólanum í Garðabæ. „Hitt
herbergið er mjög lítið svo ég leigi
það stundum út í styttri tíma. Síðast
var starfsnemi frá Ítalíu í Kling og
Bang sem bjó með okkur í nokkra
mánuði.
Jaris treystir mér alfarið til að sjá
um sameiginleg rými og hanna.
Hún er mjög hrifin af fjólubláum
sem ég var sjálf ekki fyrir. En nú
er ég komin á fjólubláu línuna og
endaði með að mála baðherbergið
í fjólubláum og ljós-túrkís, sem er
minn uppáhaldslitur. Svo búa hérna
auðvitað læðurnar Nóra og Ylfa,
þær stjórna öllu.“
Andrea var ekki alltaf svona
litaglöð. „Upp úr tvítugu varð ég
óhræddari við að fara eigin leiðir
í persónulegum stíl í fatavali og
umhverfi mínu. Æskuheimilið var
voðalega gráleitt. Pabbi er verkfræð-
ingur og mun íhaldssamari á liti en
ég og mamma. Þau eru skilin í dag.
Mamma er nokkuð litaglaðari en
pabbi en hún er meira fyrir austur-
lensk áhrif, dekkri og jarðbundnari
liti en ég. Ég er klárlega páfuglinn í
fjölskyldunni,“ segir Andrea.
Málar yfir mistökin
Andrea hefur ferðast víða og segir
ferðalögin hafa haft mikil áhrif á
sinn stíl. „Ég heillast mikið af lita-
sprengjunum í Suður-Ameríku,
Marokkó og Mexíkó en ég fór með
mömmu til Marokkó árið 2021.
Það virðist hafa síast inn í undirvit-
undina því stuttu síðar var íbúðin
mín orðin eins og regnboginn hafi
komið í heimsókn og ælt yfir hana,“
segir Andrea og skellir upp úr.
„Ég fer samt í gegnum tímabil
með liti. Fyrir nokkrum árum var
ég með bláan á heilanum og íbúðin
sem ég bjó í var hálfgert fiskabúr.
Þegar mig vantaði meiri heilun og
ró var ég sjúk í grænan. Þá var eld-
húsið dökkgrænt og margir veggir
mosagrænir. Þegar ég var að klára
námið í Listaháskólanum var stans-
laust verið að loka skólanum út af
faraldrinum og við máttum ekki
fara í stúdíóin okkar,“ segir Andrea.
Á meðan fékk hún meðal annars
útrás fyrir sköpunargleðina í því að
hanna, prjóna og hekla peysur sem
hana langar til að gera meira af í
framtíðinni.
„Sköpunarþörfin fékk líka útrás í
íbúðinni. Listnámið opnaði hugann
á marga vegu og breytti því hvernig
ég sé rými. Við erum í stöðugri
þróun og göngum í gegnum ólík
tímabil. Ekkert varir að eilífu og
mistök eru oft besta gjöfin. Ef eitt-
hvað virkar ekki er alltaf hægt að
mála yfir það og byrja upp á nýtt,“
segir Andrea. n
Fyrir
nokkrum
árum var
ég með
bláan á
heilanum
og íbúðin
sem ég bjó
í var hálf-
gert fiska-
búr.
Andrea Aldan
2 kynningarblað A L LT 14. febrúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR